Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Qupperneq 20
Vikublað 24.–26. maí 20168 Viðhald húsa - Kynningarblað
Skjólverk: Alhliða
viðhald og endurbætur
B
yggingafyrirtækið Skjól-
verk ehf. hefur verið starf-
andi frá árinu 1987, eða
í rétt tæp 30 ár. Megin-
þungi starfsemi fyrirtæk-
isins liggur í viðhaldi og endurbót-
um á húsnæði, umfram verkefni á
sviði nýbygginga. Skjólverk sinn-
ir reglulegu viðhaldi og endurbót-
um á hátt á þriðja þúsund íbúðum á
höfuðborgarsvæðinu í samstarfi við
stærstu fasteignafélög landsins, þar
inni eru meðal annars fjölmargar
íbúðir í félagslega húsnæðiskerfinu.
En Skjólverk sinnir líka þjónustu við
einstök húsfélög og vinnur því fyrir
bæði litla og stóra aðila.
Einstakur reynslu- og
þekkingargrunnur
Hjá Skjólverki starfar hópur fag-
lærðra iðnaðarmanna á hin-
um ýmsu sviðum. Víðtæk þekk-
ing þeirra og reynsla gagnast vel
við hin ýmsu vandamál sem hefð-
bundnar byggingaraðferðir á Ís-
landi hafa í för með sér. Margt er
vel gert við byggingu íbúða hér á
landi en aðferðirnar og byggingar-
efnin hafa líka skapað vandamál á
borð við húsasveppi, raka, skort á
loftun á þökum og slæma hljóðvist.
Þessi vandamál takast starfsmenn
Skjólverks á við, til dæmis með því
að skipta út byggingarefnum þar
sem við á. Hér kemur stór reynslu-
banki Skjólverks að góðum notum
en fyrirtækið vinnur auk þess oft í
nánu samstarfi við arkitekta og sér-
fræðinga á sviði byggingarverkfræði
og byggingareðlisfræði.
Heildarmynd og forgangsröðun
Skjólverk kappkostar að beita bestu
og nýjustu aðferðum hverju sinni
við lagfæringar og endurbætur. Fyr-
irtækið virkjar þar, auk þekkingar
og reynslu eigin starfsmanna, náið
samstarf sitt við sérhæfða sam-
starfsaðila með mikla menntun og
reynslu hver á sínu sviði. Afrakstur
þess er lækkun viðhaldskostnað-
ar og betri heildarsýn yfir ástand
og rekstur fasteigna. Skjólverk býð-
ur upp á alhliða viðgerðir á öll-
um tegundum fasteigna, til dæmis
glugga og glerskipti, endurnýjun og
viðgerðir á þakefnum, uppsetningu
á utanhússklæðningum, pípulagn-
ir, raflagnir, múrvinnu, málun, dúk-
lagningar og fleira. Auk einstakra
viðhalds- og endurbótaverkefna
býður fyrirtækið upp á nýbyggingar
og viðbætur fasteigna og veitir auk
þess langtímaþjónustu og ráðgjöf
(LCC) vegna viðhalds fasteigna.
Stórt og smátt – allar iðngreinar
Skjólverk tekur bæði að sér stór
og smá verk á sviði lagfæringa og
endurbóta og vinnur jafnt fyrir stóra
sem smáa aðila, eins og fyrr segir.
Sérhæfð þekking og kunnátta iðnað-
armanna Skjólverks spannar vítt svið
en fyrirtækið hefur á sínum vegum
iðnmeistara og faglærða iðnaðar-
menn í eftirtöldum greinum:
Húsasmíði - málun - trésmíði -
innréttingar/hurðir - múverk - dúka-
lögn/veggfóður- pípulagnir- pappa-
lagnir/dúkur- raflagnir- niðurrif
- blikksmíði - stíflulosun.
Hver sá aðili sem þarf á þjónustu
iðnaðarmanna að halda, jafnt í stór-
um sem smáum verkefnum, getur
haft samband við Skjólverk og fengið
tilboð í verk.
Skjólverk er til húsa að Ármúla 8,
108 Reykjavík. Sími er 898 4520 og
netfang skjolverk@skjolverk.is
Á vandaðri heimasíðu fyrirtæk-
isins,www.skjolverk.is, er að finna
gagnlegar upplýsingar um starfsem-
ina og þá þjónustu sem í boði er. n