Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Page 22
Vikublað 24.–26. maí 201614 Menning
Elísabet K. Jökulsdóttir er hinn atvinnurithöfundurinn
í forsetakapphlaupinu. Fyrsta bók Elísabetar, ljóðabókin Dans í lokuðu
herbergi, kom út árið 1989, þegar hún var 31 árs. Síðan hefur hún sent frá
sér fjölda ljóðabóka, smásagna, endurminninga og skáldsagna, auk þess
sem leikrit eftir hana hafa verið sett upp hér á landi og erlendis. Elísabet er
tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár fyrir bókina Ástin ein
taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett, en fyrir þá bók hefur hún einnig hlotið
Fjöruverðlaunin og lesendaverðlaun Menningarverðlauna DV.
Ný námskeið
Hringsjá
Náms- og starfsendurhæfing
Frekari upplýsingar og skráning í síma 510 9380 eða á hringsja.is
Ný námskeið í maí
• Í FÓKUS - að ná fram því besta
með ADHD - hefst 25. maí
• SjálFSStyrKiNg - hefst 25. maí
• StyrKleiKAr og NúvitUND
- hefst 25. maí
• MiNNiStæKNi - hefst 30. maí
• tölvUr 2 - hefst 25. maí
er ekki kominn tími til að gera eitthvað
Póetískur forsetaslagur
n Sex forsetaframbjóðendur hafa spreytt sig á ritvellinum n Ljóð, vísindaskáldsögur, sjálfshjálpar-
Í
slendingar hafa löngum stært
sig af því að vera bókaþjóð –
annar hver frónbúi er sagð-
ur hafa gefið út bók. Það kem-
ur því ekki á óvart að meirihluti
þeirra níu Íslendinga sem enn eru
í framboði til forseta hafa gert sig
gildandi á ritvellinum. Það er auð-
vitað mikilvægt að forsetinn sé orð-
hagur og snjallmæltur því emb-
ættið hefur hingað til ekki síst falist
í því að spjalla við fólk, halda ræð-
ur og ávörp um ágæti og yfirburði
þjóðarinnar. n
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Andri Snær
Magnason er líklega
sá forsetaframbjóðandi
sem hefur selt flestar
bækur og hlotið flest
verðlaun fyrir afrek sín á
bókmenntasviðinu. Hann
gaf út sína fyrstu ljóðabók
árið 1995, Ljóðasmygl og
skáldarán, þá 22 ára gamall. Bókina gaf hann
út hjá eigin útgáfufyrirtæki, Nykur. Ári seinna
komu út smásagnasafnið Engar smá sögur og
ljóðabókin Bónusljóð sem tengdi saman lág-
vöruverslunarkeðjuna og gleðileikinn guðdóm-
lega eftir Dante. Bónus gaf bókina út. Síðan
hafa komið út hin margverðlaunaða barnabók
Sagan af Bláa hnettinum, vísindaskáldsagan
LoveStar, Draumalandið, og barnabókin
Tímakistan. Andri Snær hefur auk þess skrifað
leikrit, handrit að heimildamynd og smásögur,
nú síðast smásöguna Lególand.
Guðni Th. Jóhannesson hefur á sínum
ritferli fyrst og fremst gefið út sagnfræðirit, meðal
annars um þorskastríðin, forsetatíð Kristjáns Eldjárns
og hrunið. Hann hefur tvisvar verið
tilnefndur til íslensku bókmennta-
verðlaunanna fyrir ævisögu Gunnars
Thoroddsen og bókina Óvinir ríkisins.
Á tíunda áratugnum, áður en hann
helgaði sig sagnfræðinni, þýddi hann
þó einnig fjórar spennusögur eftir
bandaríska spennusagnakónginn
Stephen King: Örlög, Furðuflug,
Bókasafnslöggan og Betrun; Námsfús
drengur.
Úr ljóðinu Englafriður
eftir Elísabetu Kristínu Jökulsdóttur
Það er friður við borðið,
þegar við erum saman,
við öll við borðið
Það er friður við hafið
um vor, og æðarfuglinn úar.
Eitt vor enn: Á Íslandi.
Í Líbanon eru þeir með það á heilanum
að friður sé hugarró.
Enda kúlnagöt á öllum húsunum.
Í Sýrlandi hugsa þeir mikið um friðinn,
hann er efst í huga þeirra
og leiða okkur um rústirnar
sem mörkuðu upphaf okkar menn-
ingar.
Á Íslandi ríkir friður þegar allir
eru búnir að kaupa allt
sem þá vantar. Og þegar engan
vantar.
Hreinsunareldurinn
Úr Bónusljóðum eftir Andra Snæ
Magnason
Ísland er hreinasta
landið með tærasta
vatnið og ferskasta
loftið
þökk sé öllum
hreinlætisvörunum.
Á brúsanum stendur að All Off
ofnhreinsir virki alveg ævintýra-
lega vel en ég held að það hafi
hvergi staðið hvað Hans og Gréta
notuðu til að hreinsa ofninn.
Óháðar rannsóknir sýna að allir
uppþvottalegirnir eru betri en
samsvarandi lögur í hvítum brúsa
frá fyrirtæki sem hafði eflaust
ekki efni á óháðri rannsókn.
Ég er ekki frá því
að hárlos mitt stafi
að einhverju leyti
af 2 lítra sjampóinu
sem losar líka stíflur.