Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 24.05.2016, Blaðsíða 24
Vikublað 24.–26. maí 201616 Sport eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði Fylgstu með þessum á EM í Frakklandi n Margar stórstjörnur til sýnis í sumar en þessir leikmenn gætu stolið senunni A llra augu verða á Evrópumótinu í knatt­ spyrnu sem fram fer í Frakk­ landi í sumar. Íslenska karla­ landsliðið tekur þar þátt í sínu fyrsta stórmóti og spennan orðin mikil. Í fyrsta skipti taka nú 24 þjóðir þátt í lokakeppn­ inni sem fram fer 10. júní til 10. júlí næstkomandi. Ekki aðeins verða fjölmargar stórstjörnur sem munu leika listir sínar víðs vegar um Frakk­ land, heldur munu fjölmargir ungir og efnilegir leikmenn vonast til að koma sér á framfæri. DV ákvað að taka saman nokkur nöfn sem gætu gert gæfumuninn fyrir lands­ lið sín í sumar. Sumir eru þekktari en aðrir, einhverjir eiga ekki víst byrjun­ arliðssæti, en allir eiga það sameig­ inlegt að vera spennandi leikmenn sem vert er að fylgjast með í sumar. Listinn er ekki tæmandi en þessir leikmenn gætu sprungið út og stolið senunni ef tækifærin gefast. n Leroy Sané Landslið: Þýskaland Félagslið: Schalke Aldur: 20 Kantmað- urinn ungi er í 27 manna úrtakshópi Þýskalands en hann lék sinn fyrsta aðallandsleik með heimsmeisturunum aðeins 19 ára gamall. Þykir hafa allt til að bera til að verða heimsklassaleikmaður. Hann hefur leikið með Schalke frá árinu 2013. Skoraði 8 mörk í Bundesligunni í vetur í 33 leikjum. Hefur verið orðaður við Liverpool, Man City og Real Madrid. Mun líklega ekki byrja marga leiki en gangi allt að óskum verður hann eftirsóttur í lok móts. Michy Batshuayi Landslið: Belgía Félagslið: Marseille Aldur: 22 Framherji sem hefur verið á mála hjá Marseille í Frakklandi frá árinu 2014. Skoraði 22 mörk og lagði upp níu í 49 leikjum með liðinu á tímabilinu. Hefur ver- ið orðaður við Lundúnaliðin Tottenham og West Ham að undanförnu. Hans bíður erfitt verkefni að berjast við Christian Benteke, Romelu Lukaku og Divock Origi um framherjastöðuna í gríðarvel mönnuðu liði Belga. Oscar Hiljemark Landslið: Svíþjóð Félagslið: Palermo Aldur: 23 Miðjumaðurinn var fyrirliði Svía sem vann EM U-21 árs landsliða í fyrra og verður í hópnum hjá Erik Hamren í Frakk- landi í sumar. Hann átti fantagott tímabil með Palermo á Ítalíu sem fengu hann frá PSV í Hollandi í fyrra. Hiljemark er áræðinn, líkamlega sterkur, með gott jafnvægi og tækni. Svokallaður box-to-box miðjumaður sem getur bæði varist og skorað. Meiðsl settu strik í reikninginn hjá honum í Hollandi en miklar vonir eru bundnar við hann í sænska landsliðinu í framtíðinni. Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Myndir EPA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.