Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 4
Helgarblað 16.–19. desember 20164 Fréttir
S
tjórn eignarhaldsfélagsins
Glitnis HoldCo áformar að
inna af hendi eingreiðslu
upp á samtals 5,3 milljónir
evra, jafnvirði um 630 millj
óna íslenskra króna, til Steinunnar
Guðbjartsdóttur og Páls Eiríkssonar,
en þau skipuðu slitastjórn Glitnis allt
þar til slitabúið lauk nauðasamning
um í árslok 2015.
Greiðslan er hluti af samkomu
lagi Glitnis við Steinunni og Pál um
að sérstakur sjóður að jafnvirði átta
milljarða króna, sem var settur á fót
fyrir um ári og átti að tryggja skað
leysi þeirra gagnvart mögulegum
málsóknum kröfuhafa til ársins 2025,
verði lagður niður og fjármunirnir
þess í stað greiddir að stærstum
hluta út til núverandi hluthafa fé
lagsins. Auk þess að fá greiðslu í
peningum, sem nemur að óbreyttu
um 315 milljónum króna á mann, þá
mun Glitnir jafnframt sjá um að út
vega Steinunni og Páli tíu milljóna
evra tryggingu sem gildir til næstu tíu
ára. Sú trygging á að standa straum af
ýmsum kostnaði sem gæti að öðrum
kosti fallið á þau, með sambærilegum
hætti og skaðleysissjóðurinn hefði
gert, vegna mögulegra málshöfðana í
tengslum við fyrri ákvarðanir og störf
slitastjórnar Glitnis.
Ávinningur fyrir hluthafa
Á sérstökum hluthafafundi sem hefur
verið boðaður 19. desember næst
komandi munu hluthafar Glitnis
greiða atkvæði um tillögu stjórnar
Glitnis að fyrirhuguðu samkomu
lagi við fyrrverandi slitastjórn bank
ans. Fastlega er gert ráð fyrir því að
mikill meirihluti hluthafa félagsins
muni greiða atkvæði með tillögunni
enda hafa þeir hagsmuni af því að fá
úthlutað til sín mun fyrr en ella þeim
fjármunum sem hingað til hafa ver
ið lagðir til hliðar í skaðleysissjóðinn.
Samkvæmt hinu nýja samkomulagi
stjórnar Glitnis við Steinunni og Pál,
sem DV hefur undir höndum, kem
ur meðal annars fram að verði það
samþykkt þá sé í kjölfarið hægt að
greiða út 58 milljónir evra til hlut
hafa. Höfuð stóll skaðleysissjóðsins
er núna 68 milljónir evra – sú fjárhæð
jafngilti einu prósenti af heildareign
um slitabúsins fyrir nauðasamning –
en vegna núverandi vaxtaumhverfis í
Bandaríkjunum og Evrópu hafa þeir
fjármunir verið ávaxtaðir á neikvæð
um vöxtum.
Þá gerir samkomulagið við
Steinunni og Pál sömuleiðis ráð
fyrir því að Glitnir muni veita þeim
skaðleysisábyrgð sem fellur úr gildi
11. janúar árið 2020. Sú skaðleysis
ábyrgð er hins vegar að hámarki 3,53
milljónir evra, jafnvirði um 420 millj
óna króna, og aðeins verður hægt
að ganga á hana eftir að fyrrverandi
meðlimir slitastjórnar hafa nýtt að
fullu tíu milljóna evra trygginguna
sem Glitnir mun útvega þeim. Ef
engar málsóknir verða höfðað
ar gegn Steinunni og Páli á næstu
þremur árum þá munu þau fá til við
bótar 590 þúsund evra eingreiðslu,
eða sem nemur um 70 milljónum
íslenskra króna á núverandi gengi,
eftir að skaðleysisábyrgð Glitnis
rennur úr gildi í ársbyrjun 2020.
Fordæmalaust flækjustig
Þrátt fyrir að Steinunn og Páll fái
greidda verulega fjármuni í sinn
hlut, auk þess að vera úthlutað sér
stakri tryggingu til tíu ára, þá er rétt
að geta þess að með samkomu
laginu munu þau samþykkja að taka
á sig stóran hluta af þeirri áhættu
sem fylgir mögulegum málsóknum á
næstu árum. Í dag liggur sú fjárhags
lega áhætta nánast alfarið á herðum
hluthafa Glitnis. Þannig er skemmst
að minnast þess gríðarlega kostn
aðar sem Kaupþing þurfti að standa
straum af vegna skaðabótakröfu sem
breski kaupsýslumaðurinn Vincent
Tchenguiz höfðaði á hendur Jóhann
esi Rúnari Jóhannessyni, fyrrverandi
formanni slitastjórnar Kaupþings, í
lok árs 2014. Breskir dómstólar vís
uðu málinu frá fyrr á þessu ári og
þurfti Tchenguiz að greiða Jóhann
esi Rúnari 310 milljónir króna vegna
málskostnaðar.
DV upplýsti fyrst um að til stæði að
koma á fót sérstökum skaðleysissjóði
til handa slitastjórn Glitnis þann 1.
september 2015. Í samtali við blaðið
á þeim tíma útilokaði Steinunn ekki
að slitastjórnin myndi segja sig frá
störfum ef kröfuhafar myndu ekki
fallast á slíka tryggingu fyrir skaðleysi
þeirra. Til þess kom hins vegar aldrei
enda samþykktu kröfuhafar nánast
samhljóða slíkan skaðleysissjóð á
kröfuhafafundi skömmu síðar.
Steinunn benti einnig á að sam
bærilegt skaðleysi til handa meðlim
um slitastjórnarinnar vegna starfa
við slitameðferðina væri í samræmi
við það sem tíðkast í flestum öðrum
löndum. Í ljósi þess fordæmalausa
umfangs og flækjustigs sem leiðir af
uppgjöri Glitnis þá sagði hún að það
væri „fullkomlega óeðlilegt að setja
einstaklinga í þá stöðu“ að eiga hættu
á að ósáttir kröfuhafar – eða þriðji
aðili – geri kröfur á hendur þeim
persónulega. „Við verðum að hafa í
huga að kröfuhafar Glitnis eru skráð
ir í 52 löndum og lögsögum.“
Lítið eftir af eignum
Slitabú Glitnis lauk nauðasamning
um sem fyrr segir í desember 2015
í kjölfar þess að kröfuhafar bankans
samþykktu að inna af hendi stöðug
leikaframlag til íslenskra stjórnvalda
að fjárhæð um 240 milljarða króna
miðað við bókfært virði eignanna á
þeim tíma. Þar munaði mestu um 95
prósenta eignarhlut í Íslandsbanka.
Stærstu kröfuhafar Glitnis við sam
þykkt nauðasamninga voru vog
unarsjóðirnir Solus Alternative Asset
Management, Davidson Kempner
Management og Silver Point. Í dag
er Glitnir eignarhaldsfélag, stýrt af
þriggja manna stjórn, og er félagið
á góðri leið með umbreyta öllum
óseldum eignum í lausafé og greiða
út til hluthafa. Samkvæmt nýjasta
árshlutareikningi Glitnis námu eign
ir félagsins um 343 milljónum evra,
jafnvirði 40 milljarða króna, í lok
september á þessu ári. Helmingur
þeirra eigna var í formi reiðufjár og
bundinna bankainnstæðna. n
Fengu 60 þúsund á tímann
Tímagjald slitastjórnar Glitnis var hækkað verulega í byrjun 2015, sem var síðasta starfs-
ár hennar, og nam þá 390 evrum, jafnvirði um 60 þúsunda íslenskra króna á þáverandi
gengi. Tímagjald Steinunnar og Páls, eins og greint var frá í umfjöllun DV um miðjan
septembermánuð 2015, hafði áður verið 35 þúsund krónur. Þegar slitameðferð búsins
hófst snemma árs 2009 nam tímagjaldið hins vegar sextán þúsund krónum.
Í samtali við DV á þeim tíma sem frétt blaðsins birtist nefndi Steinunn að í sam-
anburði við helstu ráðgjafa kröfuhafa slitabúsins séu þóknanir til handa slitastjórninni
ekki háar. Þannig væri tímagjaldið aðeins um þriðjungur af því sem erlendir ráðgjafar
kröfuhafa Glitnis rukka á tímann. Þá væru helstu innlendu ráðgjafarnir að sama skapi að
fá hærri þóknun á útselda vinnustund vegna starfa fyrir erlenda kröfuhafa en slitastjórn
Glitnis.
Samtals námu þóknanagreiðslur til slitastjórnar Glitnis 381 milljón króna á árinu
2015, samkvæmt ársreikningi Glitnis. Greiðslur til slitastjórnarinnar tvöfölduðust á
milli ára en samtals námu þær 190 milljónum 2014. Að því gefnu að greiðslurnar hafi
skipst jafnt á milli Steinunnar og Páls þá hafa þau fengið hvort fyrir sig tæplega sextán
milljónir í þóknun á mánuði á árinu 2015.
n Stjórn Glitnis áformar að greiða
Steinunni og Páli 5,3 milljónir
evra n Samkomulag um að
leggja niður 8 milljarða
króna skaðleysissjóð
Taka á sig meiri áhæTTu gegn
630 milljóna eingreiðslu Fyrrverandi slitastjórn Glitnis Páll Eiríksson og Steinunn Guð-bjartsdóttir.
Mynd SiGtryGGur Ari
Hörður Ægisson
hordur@dv.is
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Sjálfstætt starfandi
apótek í Glæsibæ
Okkar markmið er að veita þér og þínum framúrskarandi þjónustu og ráðgjöf
Fylgist með okkur á Facebook.com/Lyfsalinn
Uppakomur • Leikir • Tilboð
Opnunartími: Virka daga 8.30-18
Laugardaga 10.00-14.00