Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 6
Helgarblað 16.–19. desember 20166 Fréttir
Dalvegur 6-8 • 201 Kópavogur • Sími 535 3500
Draupnisgata 6 • 603 Akureyri • Sími 535 3526
www.kraftvelar.is • kraftvelar@kraftvelar.is
BT rafma
gnstjakk
ar
- auðveld
a verkin
!
• 1300 kg. lyftigeta
• 24V viðhaldsfrír rafgeymir
• Innbyggt hleðslutæki (beint í 220V)
• Aðeins 250 kg. að þyngd
Sat fyrir eldri ekkjum
í bílastæðakjallara
K
arlmaður á sextugsaldri
var úrskurðaður í vikulangt
gæsluvarðhald grunaður um
fjárkúgun. Var honum gefið
að sök að hafa reynt að blekkja eldri
konu til að greiða sér allt að 300 þús-
und krónur. Samkvæmt heimildum
DV hefur maðurinn stundað það að
koma sér fyrir í bílastæðakjallara í
Glæsibæ. Þar hefur hann fylgst með
eldri konum og tekið niður bílnúmer
á ökutækjum þeirra þegar þær voru
að yfirgefa bílastæðahúsið.
Maðurinn notaði bílnúmerið
til að finna út hvar konurnar áttu
heima. Hafði hann svo samband
símleiðis, laug því að hann væri að
hringja fyrir lögfræðistofuna Lögvá
og að viðkomandi kona hefði ekið
á barn. Tekið skal fram að ekki er til
nein lögfræðistofa með þessu nafni.
Til að komast hjá kæru bauð hann
konunni að borga skaðabætur og
málið yrði látið niður falla.
Lögreglan er með önnur tilvik af
svipuðum meiði til rannsóknar og
eru meintir brotaþolar í flestum til-
vikum eldri konur. Upp komst um
málið þegar maðurinn hringdi í
konu sem hann taldi að væri ekkja.
Brá henni mikið að heyra að hún
hefði slasað barn og lét eiginmann
sinn hafa símann sem áttaði sig á að
maðkur var í mysunni. Kærðu hjónin
málið til lögreglu. Í kjölfarið var gerð
húsleit hjá manninum og lagt hald á
tölvur og síma.
Veistu meira um málið, sendu
okkur skeyti á abending@dv.is n
ritstjorn@dv.is
„Þetta er eins og að upp-
lifa stöðuga jarðskjálfta“
n Íbúar langþreyttir á látlausu ónæði n Einn flúði að heiman og gistir hjá vinafólki
É
g er gjörsamlega að sturlast á
þessu ástandi. Þetta er eins og
að upplifa stöðuga jarðskjálfta,“
segir Helga Nótt Gísladótt-
ir, íbúi við Vesturgötu, í sam-
tali við DV. Ástandið sem um ræðir
eru framkvæmdir verktakafyrirtækis-
ins Mannverks á Naustreit í miðbæn-
um, sem afmarkast af Tryggagötu,
Norður stíg og Vesturgötu. Háværar
framkvæmdir hafa staðið yfir síðan
um miðjan ágúst og var áætlaður
verktími 10–12 vikur. Verkið hefur taf-
ist um rúman mánuð og ekkert útlit er
fyrir að það klárist í bráð.
Niðurrif, kæra og almennt vesen
Framkvæmdirnar við Tryggvagötu
hafa verið milli tannanna á fólki allt
frá því að verktakafyrirtækið Mann-
verk reif niður svokallað Exeter-hús
á reitnum í leyfisleysi. Það hús var
byggt árið 1904 og var friðað. Eftir
talsvert moldviðri baðst fyrirtækið
afsökunar og hét því að endurreisa
húsið í upprunalegri mynd. Síðan
þá hefur fyrirtækið átt í góðu sam-
starfi við Minjastofnun um endur-
uppbygginguna. Niðurrifið var kært
til lögreglu og er sú kæra enn í ferli.
Jarðvegsframkvæmdir við
Naustreit hófust þann 18. ágúst síð-
astliðinn samkvæmt tilkynningu á
heimasíðu Naustreitsins. Áætluð
verlok voru í byrjun nóvember. Rúm-
um tveimur vikum eftir áætluð verk-
lok barst tilkynning inn á heima-
síðu Naustreits um vinnu við losun
klappar sem taka átti 2–3 daga. Síð-
an þá hefur hávaðinn verið ærandi
og flestir íbúar í nærliggjandi húsum
reyna að forðast eftir fremsta megni
að vera heima hjá sér fyrr en um
kvöldmatarleytið á virkum dögum.
Það eiga þó ekki allir kost á því.
Sprengjuhöllin vannýtt gullnáma
„Ég er að jafna mig eftir krabba-
meinsaðgerð og þetta hefur verið
hreint helvíti að búa við þetta. Hér
nötrar allt frá átta að morgni og
fram til rúmlega 18, alla virka daga
og stundum um helgar líka,“ segir
Helga Nótt, þegar hún tekur á móti
blaðamanni og ljósmyndara á heim-
ili sínu. Hún kallar húsið „Sprengju-
höllina“ og grínast með að ferða-
þjónustufrömuðir hefðu átt að sjá
sér leik á borði og leyfa erlendum
ferðamönnum að upplifa íslenska
jarðskjálfta í allri sinni dýrð. „Þeir
gætu setið hérna með kaffi og nötr-
að allan daginn. Þetta er eiginlega
vannýtt gullnáma,“ segir Helga Nótt
og hlær. Hún er fyrrverandi loðdýra-
bóndi en hennar helsta verkefni nú
er að reyna að ná fyrri heilsu, með
húmorinn að vopni.
Lifir kannski í ár með hár
„Ég á að byrja í lyfjameðferð eftir
áramót en er að íhuga hvað ég geri.
Kannski ákveð ég að lifa í ár með
hár,“ segir hún glettin. Óhætt er að
segja að hávaðinn sé ærandi, takt-
föst höggin berast að utan og nísta í
merg og bein. Allt leikur á reiðiskjálfi
innandyra. „Það er hægt að sýna
ákveðinn skilning á því að ónæði
fylgi svona framkvæmdum. Hins
vegar er glórulaust að hefja fram-
kvæmdir svona snemma á daginn og
um helgar á maður að fá frið. Það er
að mínu mati mannréttindabrot að
hafa þetta yfir sér um helgar,“ segir
Helga Nótt.
Flúði að heiman
DV heyrði í nokkrum nágrönnum
Helgu sem allir höfðu sömu sögu
að segja. Hávaðinn væri ærandi en
þeir sem eru í vinnu á hefðbundnum
skrifstofutíma eru þolinmóðari
gagnvart ástandinu. „Ég reyni að vera
í vinnunni fram yfir kl.18 á hverjum
degi og þá verð ég ekki var við þetta.
Hins vegar er ég með útlendinga í
heimsókn og þetta er erfitt fyrir þá,“
segir einn viðmælandi sem ekki vill
láta nafn síns getið. Annar nágranni
Helgu Nætur, James Falama, vinnur
á næturvöktum og þarf því að hvílast
yfir daginn. „Ég flúði að heiman fyrir
rúmum mánuði og gisti hjá vina-
fólki. Þetta er afar hvimleitt ástand
sem ég er að verða mjög þreyttur á.
Það er ekki möguleiki að sofa í þess-
um hávaða,“ segir James.
Byrjuðu seinna en auglýst var
„Við hörmum þau óþægindi sem
nágrannar okkar verða fyrir vegna
framkvæmdanna. Þessari jarðvegs-
vinnu lýkur á allra næstum dögum
og þá tekur uppbyggingin við,“ segir
Hjalti Gylfason, framkvæmdastjóri
Mannverks, í samtali við DV. Að hans
sögn hefur fyrirtækið reynt að vanda
sig í hvívetna til þess að sem minnst
ónæði verði af framkvæmdum en
tafirnar á framkvæmdunum megi
rekja til breytts verklags.
„Við hófum ekki klapparlosun fyrr
en 11. október, mun seinna en fyrst
var auglýst. Það kom í ljós að klöpp-
in var lausari í sér en talið var í fyrstu
og þá var ákveðið að nota svokallað-
an „vökvaripper“ til þess að kroppa
hana upp. Við höfum því ekki þurft
að sprengja eina einustu sprengju
og aðeins þurft að beita fleygun í
nokkrum tilvikum. Þær aðferðir
valda mun meira raski,“ segir Hjalti.
Þá nefnir hann að Mannverk
hafi, í samstarfi við byggingafull-
trúa Reykjavíkurborgar, leitað allra
leiða til þess að gera framkvæmd-
irnar bærilegar fyrir nærliggjandi
umhverfi. „Við beittum svokallaðri
saumtækni, eða saumborun, þar
sem allur úthringurinn er boraður
til þess að rjúfa hljóð – og hristings-
leiðni til nærliggjandi lóða. Það er
óhjákvæmilegt að þétting byggð-
ar skapi tímabundin óþægindi sem
þessi en við róum að því öllum árum
að halda þeim í lágmarki,“ segir
Hjalti. n
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is Helga Nótt Gísladóttir
Nágrannar við uppbyggingu Mann-
verks að Tryggvagötu eru orðnir
langþreyttir vegna ónæðis sem fylgir
framkvæmdunum. MyNd SiGtryGGur Ari