Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 14
Helgarblað 16.–19. desember 201614 Fréttir
R
áðherrar ríkisstjórnarinnar út
deildu alls rúmlega 31,5 millj
ónum króna af ráðstöfunarfé
sínu til að styrkja hin ýmsu verk
efni og málefni á árinu 2016.
Alls hafa ráðherrar Framsóknarflokks
og Sjálfstæðisflokks veitt 118 milljónum
króna til styrkþega frá því að ríkisstjórn
flokkanna tók við árið 2013.
DV óskaði eftir sundurliðuðum
upplýsingum frá hverju ráðuneyti yfir
úthlutanir af ráðstöfunarfé ráðherra,
sem oftast er kallað skúffufé, það sem af
er árinu 2016. Óskað var eftir upplýsing
um um fjárhæð, styrkþega, tilefni styrk
veitingar og hvenær hver styrkur var
veittur. Þar sem ráðherraskipti höfðu
orðið á árinu var beðið um sundurliðun
úthlutana eftir ráðherrum.
Meðal þess sem ráðherrar vörðu
fjármunum ríkisins í að þessu sinni
var að styrkja knattspyrnufélag Litla
Hrauns, svo hægt væri að fá þjálfara
til að stýra reglulegum æfingum og þá
notaði utanríkisráðherra rúmlega 1,8
milljónir króna í að endurnýja tölvu
kost starfsmanna ráðuneytisins í síð
asta mánuði, svo fátt eitt sé nefnt.
Athygli vekur einnig að Guðni Th. Jó
hannesson, forseti Íslands, ákvað að
endurgreiða styrk frá utanríkisráð
herra eftir að ljóst var að hann yrði for
seti. Einhverjir ráðherrar hafa haldið
áfram að veita styrki eftir kosningar.
118 milljónir á kjörtímabilinu
Svörin sem fengust voru misítarleg.
Sum ráðuneyti veittu upplýsingar
um dagsetningar styrkjanna en hjá
öðrum fengust þær upplýsingar ekki.
Óskað var eftir upplýsingum um styrk
veitingar ársins 2016 sérstaklega þar
sem þegar hafði verið greint frá út
hlutunum áranna 2013, 2014 og 2015 í
Fréttablaðinu í byrjun þessa árs. Upp
lýsingar um úthlutanir 2016 höfðu hins
vegar ekki birst áður, fyrr en nú. Árin á
undan höfðu ráðherrar alls úthlut
að 86,7 milljónum króna samkvæmt
þeim upplýsingum sem Fréttablaðið
birti, en að viðbættum fjárútlátum ráð
herranna í ár nemur heildarupphæðin
rúmlega 118 milljónum króna.
Reglulega gagnrýnt
Þótt til séu verklagsreglur um ráðstöf
unarfé ráðherra í hverju ráðuneyti þá
eru engar samræmdar reglur til um
þessar úthlutanir. Skúffufé ráðherra
hefur margoft verið gagnrýnt í gegnum
tíðina, meðal annars fyrir ógagnsæi og
að með því geti ráðherrar dælt út ríkis
fé að eigin geðþótta eftir hugðarefnum.
Í hverjum fjárlögum er ákveðin
Svona eyddu ráðherrar 31
n 118 milljónum veitt í styrki frá 2013 n Lilja setti 1,8 milljónir í að endurnýja tölvur n Guðni Th. endurgreiddi styrk eftir forsetakjörið
Þessu höfðu
ráðherrar
útdeilt áður
Árin 2013, 2014 og 2015
n Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
þáverandi forsætisráðherra:
5,4 milljónir
n Kristján Þór Júlíusson
heilbrigðisráðherra: 7,9 milljónir
n Eygló Harðardóttir, félags- og
húsnæðismálaráðherra: 8,4 milljónir
n Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra: 9,1 milljón
n Gunnar Bragi Sveinsson, þáverandi
utanríkisráðherra: 7,1 milljón
n Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra: 5,5 milljónir
n Sigurður Ingi Jóhannsson,
þáv. sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra: 7,2 milljónir
n Sigrún Magnúsdóttir umhverfisráð-
herra (tók við 1. jan. 2015) ráðuneytið
heyrði undir Sigurð Inga þar á undan:
6,5 milljónir
n Illugi Gunnarsson, mennta- og
menningarmálaráðherra: 13,1 milljón
n Ólöf Nordal innanríkisráðherra
(frá des. 2014) þar áður Hanna Birna
Kristjánsdóttir: 16,5 milljónir
Alls úthlutað af ráðherrum á
árunum 2013–2015: 86,7 milljónir
Alls að árinu 2016
meðtöldu: 118 milljónir
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Forsætisráðherra
Átta styrkir eftir að hann varð forsætisráðherra
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson veitti
tæpa milljón í styrki af ráðstöfunarfé
sínu áður en hann sagði af sér í kjöl
far Wintrismálsins í byrjun apríl. Sig
urður Ingi Jóhannsson, sem þá tók við
hefur síðan veitt 1,1 milljón króna í
átta verkefni, eftir að hafa haldið að sér
höndum í þeim efnum í sjávarútvegs
og landbúnaðarráðuneytinu. Með
fylgjandi tafla sýnir veitta styrki frá 1.
janúar til 8. desember.
Verkefni Upphæð í kr. Ráðherra
Jarðskjálftaráðstefna á Húsavík 31. maí–3. júní 2016, Þekkingarnet Þingeyinga, Ragnar Stefánsson 500.000 Sigmundur Davíð
Vopnafjarðarskóli, Lego hönnunarkeppni á Tenerife 150.000 Sigmundur Davíð
Íþróttasamband lögreglumanna, Sigvaldi Eggertsson, - Eftir einn ei aki neinn - átak gegn ölvunarakstri 30.000 Sigmundur Davíð
Barnaspítali Hringsins, Sólveig S. Hafsteinsdóttir barnalæknir. Ráðstefna NOBHO/NOBOS,
um krabbamein hjá börnum 27.–31. maí 2016
300.000 Sigmundur Davíð
Afrika Lole - til að halda Fest Afrika 2016 50.000 Sigurður Ingi
Kór Langholtskirkju, til að halda uppi menningarstarfi fyrir ungt fólk 100.000 Sigurður Ingi
Skákfélagið Hrókurinn, Hrafn Jökulsson, vegna verkefna Hróksins á Grænlandi og Íslandi 50.000 Sigurður Ingi
Jóhann Friðrik Friðriksson, málþing um mikilvægi heilsueflingar 100.000 Sigurður Ingi
Haukur Arnþórsson, rannsókn, ritun og útgáfa bókar um störf Alþingis í aldarfjórðung 1991–2016 300.000 Sigurður Ingi
Hinsegin dagar í Reykjavík 2016 200.000 Sigurður Ingi
Karlakór Reykjavikur, Gestur Svavarsson, vegna kostnaðar við 90 ára afmæli árið 2016. 150.000 Sigurður Ingi
Jólahátíð fatlaðra, André Bachmann Sigurðsson 150.000 Sigurður Ingi
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson: 980.000 kr.
Sigurður Ingi Jóhannsson 1.100.000 kr.
Alls veitt af ráðstöfunarfé ráðherra: 2.080.000 kr.
milljón af Skúffufé Sínu í ár