Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Side 23
Helgarblað 16.–19. desember 2016 Kynningarblað - Flutningaþjónusta 3
Persónuleg þjónusta
og öryggi í fyrsta sæti
Sendó ehf,
sími: 551-1010
F
yrirtækið Sendó ehf. var
stofnað af eigendum þess,
þeim Erni Steinar Arnarsyni
og Lindu Dröfn Jónsdóttur,
í ágúst 2006. Sendó er byggt
á áratugareynslu Arnar í flutninga-
bransanum sem hann hefur starfað
við síðan árið 1991. Það er því óhætt
að segja að hér sé reynslu- og þekk-
ingarmikið flutningafyrirtæki á ferð.
„Þetta byrjaði allt með einum
sendibíl,“ segir Örn. „Þetta var síð-
an fljótt að vinda upp á sig og í dag
rekur Sendó um átta bíla alls auk
þess að vera með ýmis önnur tæki á
boðstólum.
Ekkert of stórt eða of lítið
fyrir okkur
Örn leggur áherslu á að aðalmark-
mið Sendó sé að bjóða alhliða og
vandaða flutningaþjónustu fyrir
jafnt einstaklinga sem fyrirtæki. „Við
leggjum okkur fram við að vera með
persónulega og góða þjónustu þar
sem áreiðanleiki og öryggi er í fyrir-
rúmi. Við bjóðum upp á allar stærð-
ir af bílum auk þess sem Sendó tekur
að sér snjómokstur fyrir fyrirtæki og
húsfélög. Við segjum gjarnan að ekk-
ert sé of stórt eða lítið fyrir okkur og
stöndum við það.“
Öll alhliða sendibílaþjónusta
Sendó sér um flutninga á smápökkum,
húsgögnum og búslóðum, bæði virka
daga og um kvöld og helgar. „Einnig eru
í boði heildarflutningslausnir fyrirtækja
(ásamt pökkun), flutningur á búslóð-
um, píanóum/flyglum (til staðar er
sérhæfður búnaður til þess), peninga-
skápum, bátum og þungavinnuvélum
en auk þess tökum við að okkur snjó-
mokstur ásamt ýmsu fleira.“ Láttu van-
an og öruggan fagmann sjá um að flytja
fyrir þig – það margborgar sig. n
Sendó ehf
Tunguhálsi 10, 110 Reykjavík
Sími: 551-1010
www.sendo.is