Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Síða 24
Helgarblað 16.–19. desember 20164 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
Alltaf nóg að gera í Flutningum
Flutningar Stefáns Steingrímssonar
F
lutningar Stefáns
Steingrímssonar
er gamalgróið
flutningafyrirtæki
á Akureyri. Fyrir
tækið stofnaði Norð
lendingurinn og einyrk
inn Stefán Steingrímsson
í mars árið 2006 og eru
viðskiptin sífellt að færast
í aukana. Stefán, sem er
mikill tækjaáhugamaður,
ekur á milli Akureyrar og
Reykjavíkur á átján tonna
Iveco Stralisflutningabíl
með stórri kerru og flyt
ur nánast hvað sem er.
Flutningar Stefáns Stein
grímssonar sinnir öllum
almennum flutningum,
almennri sendibílaþjón
ustu og búslóðaflutning
um. Einnig sinnir fyrir
tækið flutningi fyrir ýmis
fyrir tæki.
„Það er alltaf nóg að
gera hjá mér á sumrin og
veturna en svo róast þetta aðeins á
vorin. Febrúar, mars og apríl eru alla
jafna rólegustu mánuðirnir. Þá nýti
ég tímann og fer í jeppaferðir upp á
fjöll og snjósleðaferðir,“ segir Stefán
sem hefur mjög gaman að útivist.
Stefán er með áætlunarakstur
milli Akureyrar og Reykjavíkur, en
þess milli flytur hann hvert á land
sem er. n
Áætlunarakstur:
Akureyri–Reykjavík
á þriðjudögum
Reykjavík–Akureyri
á miðvikudögum
Hringdu í 891-7993
og fáðu verðtilboð
Útleiga á sendibílum og
kassabílum með lyftum
Cargo sendibílaleiga
C
argo sendibílaleiga sérhæfir
sig í útleigu á sendi og
kassabílum með lyftu til
flutninga á búslóðum og vör
um. Þar leigir þú þann bíl sem
hentar þínum flutningum, ekur sjálf
ur/sjálf og sparar því umtalsverðan
kostnað.
Bílafloti til búslóðaflutninga
Gunnar Haraldsson, eigandi Cargo
sendibíla, segir bílaflota fyrirtækisins
samanstanda af þremur bílastærð
um. „Í 1.100 kílóa flokknum erum við
með minni sendibíla sem hafa alveg
einstaklega góða aksturseiginleika
og eyða litlu eldsneyti.1.200 kílóa
flokkurinn er kassabílar með lyftu
sem eru einstaklega góður kostur
til flutninga á stórum og meðalstór
um búslóðum. Á þessa bíla þarf ekki
meirapróf og þeir eru sparneytnir.
Stærsti bíllinn okkar er Benz Atego,
kassabíll með lyftu, sem hefur 2.500
kílóa burðargetu og lyftigetan er 750
kíló,“ segir hann. „Þessi bíll er frábær
ef um þyngri flutninga er að ræða og
hefur hentað vel fyrir stórar búslóðir.
Á þennan bíl þarf meirapróf eða hafa
tekið ökupróf fyrir 1993.“
Trillur og brettatjakkar
„Við erum síðan einnig með hjálp
artæki til þess að auðvelda fólki
flutningana, eins og sekkjatrillu,
sem er með burðargetu upp að 200
kílóum. Þetta er létt handtrilla með
föstum palli. Svo er einnig hægt að
leigja tröpputrillu sem flytur þunga
hluti bæði upp og niður stiga. Báð
ar trillurnar eru íslensk framleiðsla.
Trillurnar reynast mjög góðar til
þess að flytja t.d. þvottavélar og ís
skápa úr stað. Við erum líka með
brettatjakka ef um er að ræða vörur
á brettum eða sterk bönd til þess að
festa vörurnar í bílunum.“
Að leigja sendibíl
Að sögn Gunnars þarf viðskiptavin
ur sem hyggst leigja sendibíl að fram
vísa ökuskírteini og kreditkorti sem
tryggingu fyrir leigu sendibifreiðar
innar. „Vert er að taka fram að leigu
taki þarf ekki að vera með meirapróf
til að leigja sendibíl með burðargetu
1.200 kíló og undir. Leigutaki leigir
sendibílinn fullan af eldsneyti og skil
ar svo með tankinn fullan.“ n
Cargo sendibílaleiga
Skemmuvegi 32 (bleik gata)
200 Kópavogur
Sími: 566-5030
Tölvupóstfang:info@cargobilar.is
Opið virka daga frá kl. 8.00–
18.00 Um helgar frá klukkan 10.00–
16.00 www.cargobilar.is
18'' Iveco Stralis
flutningabíll
Stefán Steingrímsson