Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Page 26
Helgarblað 16.–19. desember 20166 Flutningaþjónusta - Kynningarblað
Hröð og örugg þjónusta
á milli Reykjavíkur
og Suðurnesja!
CargoFlutningar
C
argoFlutningar er flutninga
þjónusta sem staðsett er í
Reykjanesbæ og sérhæfir
sig í smærri vöruflutning
um á milli Reykjavíkur og
Suðurnesja. Eigandinn, Guðbergur
Reynisson, hóf starfsemina í ágúst
árið 2009 og notaðist þá við einn bíl
og viðskiptavinirnir voru tveir. Mikið
vatn hefur runnið til sjávar síðan og
starfsemin hefur vaxið mikið og eru
bílarnir nú sex samtals.
„Við erum með á milli 400 til 500
viðskiptavini í misreglulegum við
skiptum og erum að taka á móti 80
til 90 símtölum daglega. Hver bíll fer
tvær ferðir daglega á milli Reykja
víkur og Suðurnesja og því eru þetta
samtals 12 ferðir á dag. Við leggjum
af stað um klukkan 9 úr Reykjanes
bæ til Reykjavíkur og farið er aftur
suður eftir hádegi. Síðan er lagt aft
ur af stað til Reykjavíkur um klukk
an 14.“
Bílaflotinn samanstendur af ný
legum bílum og segir Guðbergur að
það sé mikilvægt, því það skilar sér
í minna viðhaldi. Hentugustu bíl
arnir að sögn Guðbergs eru Ford
Transit, Benz Sprinter, Volkswagen
Crafters og Renault Masters.
Hraði og öryggi eru helstu kost
ir þjónustunnar hjá CargoFlutning
um en með þessari leið geta fyrir
tæki sent smærri vörusendingar
með nánast engum fyrirvara. Afar
mörg fyrirtæki nýta sér þessa þægi
legu þjónustu. „Við erum fyrst og
fremst að þjónusta fyrirtæki en við
flytjum einnig eitthvað fyrir einstak
linga. Um 90 prósent af viðskiptun
um eru við fyrirtæki sem þurfa að
senda vörur á milli þessara svæða,“
segir Guðbergur.
Þeir sem þurfa að senda eitt
hvað hratt og örugglega á milli
Reykjavíkur og Suðurnesja ættu ein
faldlega að hringja í CargoFlutninga
í síma 8450900 og málið er afgreitt
fljótt og örugglega. n