Dagblaðið Vísir - DV - 16.12.2016, Blaðsíða 36
Helgarblað 16.–19. desember 201628 Lífsstíll
Holtasmári 1, Kópavogur
Sími: 571 5464
Smart föt
fyrir smart
konur
Sjáðu úrvalið á
www.tiskuhus.is
Stærðir 38-52
Alveg að drepast
Ekki er alltaf um líf eða dauða að ræða þegar fólk kennir sér meins
Þ
etta er býsna algeng kvörtun
sem læknar fá um allt mögu
legt nánast milli himins og
jarðar. Mjög oft er um að
ræða minniháttar vanda en í
sumum tilvikum er raunverulega um
líf eða dauða að tefla. Það er alls ekki
óalgengt að fólk færi aðeins í stílinn
eða noti þetta orðalag til að leggja
áherslu á hversu mikið það finnur til
eða upplifir einkenni sín.
Hvimleið vandamál
Mörg vandamál geta verið býsna
hvimleið og valdið ómældum
óþægindum hjá viðkomandi þannig
að það er akkúrat engin biðlund eftir
þjónustu. Ef hún ekki fæst á svip
stundu getur fjandinn verið laus hjá
sumum. Þá eru það hinir sem bera
óþægindi sín án þess að himinn og
jörð séu að farast. Þetta eru auðvitað
einna helst karaktereinkenni sem
koma fram undir þessum kringum
stæðum og er að vissu leyti áhuga
verð upplifun fyrir lækna og aðra
heilbrigðisstarfsmenn að fylgjast
með hegðun sjúklinga.
Hughreysting og fræðsla
Læknisfræði snýst um að lækna sjúk
dóma, en ekki síður um að líkna eða
lina þjáningar og svo auðvitað um
samskipti og fræðslu. Þannig má
ekki gera lítið úr því sem sjúklingur
inn upplifir, en á stundum þarf hann
fyrst og fremst hughreystingu og
samkennd, sérstaklega þegar lítið
er hægt að gera fyrir hann í formi
lyfja eða beinnar meðferðar. Tökum
nokkur dæmi þessu til útskýringar;
sá sem fær í bakið skyndilega getur
upplifað sig eins og hann hafi verið
skotinn og nauðsynlegt sé að gera
eitthvað strax. Eðlilegt er að meta
viðkomandi en í langflestum tilvik
um er meðferðin einföld, mynd
greining er óþarfi og tíminn notaður
til að lækna vandann.
Ýmsar sýkingar geta kallað fram
einkennið „að vera að drepast“
og sem betur fer er oftsinnis hægt
að koma í veg fyrir slíkan dauð
daga með einföldum hætti. Háls
bólga er algengt fyrirbæri sem veld
ur þessari líðan, eyrnabólga geta
líka verið býsna flókin að glíma við
því þar spilar inn sjúklingur sem
getur illa tjáð sig og foreldrar sem
eru áhyggjufullir og líða með barni
sínu. Í flestum tilvikum eru þessi
vandamál á grundvelli veirusýk
ingar, en ekki af bakteríutoga og þá
duga engin sýklalyf. Hughreysting
og fræðsla kemur sér þá vel. Sveppa
sýkingar eða þvagfærasýkingar hjá
konum og körlum valda oft miklum
óþægindum og sem betur fer er alla
jafna auðvelt að meðhöndla þær og
er það jafnan mjög þakklátt.
Sjaldan bráðavandi
Það er erfitt að drepast úr þreytu, en
sannarlega geta verið ýmsar orsak
ir fyrir slappleika og orkuleysi og er
það ákveðin áskorun að finna hana
hjá aðilum sem hafa ekki fengið skýr
ingu jafnvel yfir langan tíma. Rétt er
að kanna með hormóna búskap og
járn sem dæmi, en algengara er að
konur glími við vanda þar en karlar.
Þá ætti að skoða kæfisvefn sem
er vangreint vandamál sem orsök
þreytu. Ekki má gleyma andlegri
vanlíðan og streitu sem getur haft
verulegar afleiðingar á orku og getu
viðkomandi. Þá eru ýmsir alvarleg
ir undirliggjandi sjúkdómar sam
anber krabbamein, hjarta og
æðasjúkdóma, lungnasjúk
dóma og lifrarsjúkdóma
svo dæmi séu tekin sem
ber að hafa í huga við
uppvinnslu. Ekkert af
þessu er yfirleitt bráða
vandi.
Sjálfsgreining
Í dag er algengt að sjúk
lingar greini sig sjálfir með
hjálp internetsins og í mörg
um tilvikum hafa þeir
rétt fyrir sér. Það er
hins vegar leikur
einn að
finna sér sjúkdóm sem passar við
einkenni þess sem hefur ekki næga
þekkingu til að mismunagreina og
þannig mögulega vekja upp áhyggj
ur sem geta verið með öllu óþarf
ar. Gæði upplýsinga á netinu geta
einnig verið æði misjöfn og lykil
atriði að geta greint á milli þess sem
skiptir máli og hvað ekki. Samspil
og samvinna læknis og sjúklings
í leitinni að vanda viðkomandi er
mikilvæg og því skiljanlegt að óþol
inmæði gæti ef ekki fást svör hratt og
örugglega. Skilgreiningin á bráðum
vanda er hins vegar sú að hann er
lífshættulegur ef ekki er við honum
brugðist. Slík vandamál fá eðlilega
forgang og eiga rétt á tafarlausri af
greiðslu, til dæmis á bráðamóttöku
sjúkrahúss eða vaktþjónustu.
Samkvæmt sömu skilgreiningu
geta þá önnur vandamál beðið,
sem er óásættanlegt fyrir viðkom
andi sem við þau glímir, hann er jú
að drepast. Nauðsynlegt er því að
tryggja gott aðgengi að almennri
heilbrigðisþjónustu á dagvinnu
tíma. Ganga að traustum upp
lýsingum til sjúklinga
í gegnum internetið
og efla lifandi ráð
gjöf heilbrigðis
starfsfólks í gegnum
síma og snjalltæki.
Þannig myndum
við slá margar
flugur í einu
höggi. n
Verkir
Geta stundum
verið nánast
óbærilegir.
Teitur Guðmundsson
læknir