Fréttablaðið - 20.06.2017, Page 38

Fréttablaðið - 20.06.2017, Page 38
Rúsínur Kanill Möndlur Grjónagrautur 1 7 -1 2 3 9 -H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA Gríptu með þér grjónagraut með ristuðum möndlum, rúsínum og kanil. Léttmál frá MS eru bragðgóðar nýjungar með hreinum grunni og hollum og stökkum toppi. Einnig fáanlegt: kotasæla með berjum og möndlum og grísk jógúrt með döðlum, möndlum og fræjum. Grjónagrautur er nærandi millimál Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is Ábendingahnappinn má finna á www.barnaheill.is 2 0 . j ú n í 2 0 1 7 Þ R I Ð j U D A G U R18 m e n n I n G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð menning Það er óhætt að segja að mörg af okkar skemmtilegustu ljóð-skáldum ætli að koma fram,“ segir Kristín Svava Tómasdóttir um ljóðakvöldið sem haldið verður á Gauknum að Tryggvagötu 22 annað kvöld, miðvikudag, á sumar- sólstöðum. Aðaltilefnið segir hún vera það að Vestur-Íslendingurinn Kara Billey Þórðarson, sem notar höfundar- nafnið K.T. Billey, er stödd á landinu og dvelur í þýðendaíbúð í Gunnars- húsi, húsi Rithöfundasambandsins. Meðal þess sem hún hefur þýtt úr íslensku er síðasta bók Kristínar Svövu, Stormviðvörun. Hún fékk meira að segja þýðingarverðlaun fyrir hana frá American Scandinavi- an Foundation og til stendur að gefa bókina út í Bandaríkjunum. „Kara er ekki Vestur-Íslendingur í þeirri merkingu að forfeðurnir hafi farið til Kanada á nítjándu öld,“ tekur Kristín Svava fram. „Afi hennar flutti út og hún á ættingja hér á landi en ólst upp í Kanada og er líka af úkraínskum ættum. Hefur verið hér öðru hverju og er núna í mánuð. Hún þýðir bæði úr íslensku og spænsku og er ljóðskáld líka. Ég hef þýtt fáein ljóð eftir hana svo við getum lesið hvor eftir aðra og saman annað kvöld en hún hefur ekki jafn mikla æfingu í að tala íslensku og lesa.“ Spurð hvort það sé árvisst að sumarsólstöðum sé fagnað með ljóðalestri svarar Kristín Svava: „Nei, en afar viðeigandi. Við Jón M. Loðm fjörð, Lommi, höfum verið að halda svona ljóðakvöld á Gauknum öðru hverju undir merkjum Sam- taka ungra skálda.“ gun@frettabladid.is Afar viðeigandi ljóðakvöld Sumarsólstöðum verður fagnað með ljóðakvöldi annað kvöld á Gauknum að Tryggvagötu 22. Þar verða 8 ljóðskáld og eitt þeirra er Kristín Svava Tómasdóttir. Á ljóðakvöldinu koma fram Anton Helgi Jónsson, Ásta Fanney Sigurðardóttir, Fríða Ísberg, Kristín Eiríksdóttir, Kristín Svava Tómasdóttir, K.T. Billey, Lommi, og Þórdís Gísladóttir. Kynnir verður Kristján Guðjóns- son. Skáldin Kristín Svava og K.T. Billey hafa þýtt ljóð hvor annarrar. FréTTABLAðið/AnTon BrinK Kara er eKKi VeSTur-ÍSlendinGur Í Þeirri merKinGu að forfeð- urnir hafi farið Til Kanada á 19. öld. 2 0 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 1 F -8 D 7 C 1 D 1 F -8 C 4 0 1 D 1 F -8 B 0 4 1 D 1 F -8 9 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.