Fréttablaðið - 03.07.2017, Blaðsíða 6
Rauðagerði 25 - 108 Reykjavík
Sími: 517 0900 / 777 1901
www.kaelivirkni.is
VIÐHALD OG VIÐGERÐIR
Á KÆLI- OG FRYSTIKERFUM
VIÐ
SJÁUM
UM
Þjónustumiðstöð
tónlistarfólks
ALLT FYRIR
HEIMILIÐ
Síðumúla 30 - Reykjavík
Hofsbót 4 - Akureyri
trúfélög Oddur Einarsson, fram-
kvæmdastjóri kirkjuráðs, segir
Stórólfshvolssókn ekki hafa fengið
áður ákveðin framlög til að byggja
nýja kirkju vegna þess að skilyrðum
fyrir því hafi ekki verið mætt.
Stórólfshvolssókn hefur stefnt
þjóðkirkjunni vegna samtals 90
milljóna króna fjárframlaga, sem
kirkjuráð samþykkti á árinu 2011
að veita til byggingar nýrrar kirkju
í sókninni, sem ekki skiluðu sér
nema að mjög litlu leyti eins og fram
kom í Fréttablaðinu síðastliðinn
mánudag.
Oddur segir málið í grunninn vera
afskaplega einfalt. Jöfnunarsjóði
sókna sé óheimilt að styrkja kirkju-
byggingar nema þremur skilyrðum
sé fullnægt.
„Stórólfshvolssókn hefur ekki
tekist að uppfylla þessi skilyrði og
þar með er kirkjuráði ekki heimilt
að styrkja bygginguna. Þetta hefur
sóknarnefndinni og byggingar-
nefndinni verið tilkynnt árlega af
starfsmanni Jöfnunarsjóðs en hún
neitar að horfast í augu við þessar
staðreyndir,“ segir Oddur.
Séra Halldór Gunnarsson, fyrrver-
andi sóknarprestur í Holti og nú for-
maður byggingarnefndar Stórólfs-
hvolssóknar, gagnrýndi framgöngu
þjóðkirkjunnar í málinu harðlega
í áðurnefndri frétt Fréttablaðsins.
„Það er algerlega með ólíkindum
hvernig kirkjuráð hefur hagað sér
í þessu máli,“ sagði Halldór meðal
annars.
„Það hlálegasta við málið er að
formaður byggingarnefndarinnar,
Halldór Gunnarsson, sat í kirkju-
ráði þegar þessar reglur um skilyrði
úthlutana styrkja úr Jöfnunarsjóði
sókna voru samdar,“ segir Oddur
Einarsson.
Þau þrjú skilyrði, sem Oddur segir
að uppfylla þurfi til að fá styrki til
kirkjubygginga úr Jöfnunarsjóði,
eru eftirfarandi:
Að fyrir liggi þarfagreining sókn-
arinnar, þarfir þar hæfilega metnar
og kirkjuráð samþykki hana. Að
fyrir liggi fjármögnunaráætlun þar
sem heildarfjármögnun sé tryggð
með skuldbindandi yfirlýsingum
allra sem að verkefninu koma. Að
fyrir liggi rekstraráætlun þar sem
sýnt sé fram á getu safnaðarins til
að standa undir rekstri mannvirkis-
ins. gar@frettabladid.is
Segja sér óheimilt að
styrkja kirkjubyggingu
Framkvæmdastjóri kirkjuráðs segir forsvarsmenn Stórólfshvolssóknar ekki
horfast í augu við að skilyrði til að fá fé úr jöfnunarsjóði sókna vegna kirkju-
byggingar séu ekki uppfyllt. Málið sé í grunninn afskaplega einfalt.
Kaka handa leiðtoga
Tíbeskur munkur sker fyrstu sneiðina úr afmælisköku Dalai Lama en hinn andlegi leiðtogi Tíbeta varð 82 ára
gamall í gær. Veislan sjálf var haldin í Taípei, höfuðborg Taívan, en Dalai Lama hefur búið í útlegð frá árinu
1959. Þá réðust kínversk stjórnvöld gegn íbúum Tíbet sem vildu sjálfstæði frá landinu. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Oddur Einarsson,
framkvæmda-
stjóri Kirkjuráðs
3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A g U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t A B l A ð i ð
0
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-C
4
9
0
1
D
3
C
-C
3
5
4
1
D
3
C
-C
2
1
8
1
D
3
C
-C
0
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K