Fréttablaðið - 03.07.2017, Síða 12
Þór/KA fer í EM-fríið í Pepsi-deild kvenna með sex stiga forskot
0-1 Sandra Mayor hefur verið óstöðvandi í sumar og skoraði bæði mörkin gegn Blikum. Hér er hún komin fram hjá Sonný Láru í marki Blika og
gerir sig klára í að setja boltann í tómt markið og koma norðanstúlkum yfir í leiknum. Fréttablaðið/eyþór
ÍbV - Valur 3-1
0-1 Sóley Guðmundsdóttir, sjm (14.), 1-1
Laufey Björnsdóttir, sjm (20.), 2-1 Cloé
Lacasse (57.), 3-1 Cloé Lacasse (59.).
Haukar - Grindavík 1-2
1-0 Marjani Hing-Glover (13.), 1-1 Rilany Da
Silva (43.), 1-2 Berglind Ósk Kristjánsdóttir
(58.).
breiðablik - þór/Ka 1-2
0-1 Sandra Stephany Mayor (37.), 1-1 Rakel
Hönnudóttir (51.), 1-2 Sandra Mayor (86.).
Pepsi-deild kvenna
Nýjast
FélaG l U J t MÖrK S
þór/Ka 11 10 1 0 25-5 31
Stjarnan 11 8 1 2 30-10 25
ÍbV 11 8 1 2 23-9 25
breiðablik 11 8 0 3 27-6 24
Valur 11 6 1 4 27-13 19
FH 10 4 0 6 11-17 12
Grindavík 11 4 0 7 10-30 12
Kr 11 2 0 9 7-27 6
Fylkir 10 1 1 8 5-22 4
Haukar 11 0 1 10 6-32 1
Víkingur r. - ÍbV 1-2
1-0 Ivica Jovanovic (24.), 1-1 Alvaro Montejo
Calleja (36.), 1-2 Arnór Gauti Ragnarsson
(87.).
Stjarnan - Kr 3-2
1-0 Hilmar Árni Halldórsson (1.), 1-1 Óskar
Örn Hauksson (20.), 2-1 Hilmar Árni Hall-
dórsson (39.), 2-2 Tobias Thomsen (74.), 3-2
Guðjón Baldvinsson (90.+4).
borgunarbikar karla
Í dag
Sjónvarp:
19.45 breiðablik - FH Sport
22.00 borgunarmörkin Sport
leikir:
19.15 leiknir r. - Ía Borgunarbikar
19.15 þróttur - Fylkir Inkasso-deild
20.00 breiðablik - FH Pepsi karla
dagný í byrjunarliðinu
dagný brynjarsdóttir var í byrjun-
arliði Portland Thorns sem tapaði
2-0 fyrir Seattle reign í bandarísku
kvennadeildinni um helgina.
Þetta var þriðja tap Portland í
síðustu fjórum leikjum. liðið er í
5. sæti deildarinnar með 18 stig,
sex stigum á eftir toppliði north
Carolina Courage.
dagný hefur verið í byrjunar-
liðinu í síðustu tveimur leikjum
Portland. Hún er sem kunnugt er
að komast aftur á ferðina eftir erfið
meiðsli.
dagný, sem er
á sínu öðru tíma-
bili hjá Portland,
hefur komið við
sögu í fjórum
leikjum á
tímabilinu.
leikurinn í
nótt var sá
fyrsti í sumar
þar sem hún
spilar allar 90
mínúturnar.
dröfn í STað HafdíSar
dröfn Haraldsdóttir handbolta-
markvörður er gengin í raðir
Stjörnunnar frá Val.
dröfn, sem er 26 ára, hefur einn-
ig leikið með íbV, fH, HK og ír.
dröfn hefur leikið níu a-lands-
leiki og var í íslenska hópnum sem
fór á EM 2012 í Serbíu.
dröfn kemur til með að fylla
skarð Hafdísar renötudóttur sem
er farin til SönderjyskE í dan-
mörku.
Þá hefur Solveig lára Kjærne-
sted framlengt samning sinn við
Stjörnuna um eitt ár.
golf „Mér fannst ég spila mjög vel
og höndla allar aðstæðurnar nokkuð
vel. Völlurinn var auðvitað mjög
erfiður þar sem þetta var risamót,“
segir Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
en hún var enn í Chicago í gær og
búin að jafna sig eftir vonbrigðin
yfir að hafa ekki komist í gegnum
niðurskurðinn á Pga-meistara-
mótinu.
fyrsta risamót sem íslenskur
kylfingur tekur þátt í og okkar kona
var grátlega nálægt því að komast
áfram. Hún nældi í þrjá fugla í röð
og var í góðri stöðu er aðeins sjö
holur voru eftir. Þá fór allt að ganga
á afturfótunum hjá henni. Hún fékk
fjóra skolla í röð og spilaði sig með
því út úr mótinu.
ekki nógu dugleg að borða
„Það var mjög svekkjandi. Ég var
ekki nógu dugleg að borða og fatt-
aði ekki hversu svöng ég var. Það
féll svolítið blóðsykurinn hjá mér
og það hefur áhrif á allt. Þetta voru
alger byrjendamistök,“ segir Ólafía
sem er alltaf að læra og bæta sig.
„Maður er búinn að eyða allri
orkunni í að berjast og berjast. Eðli-
lega er það því svekkjandi að ná
ekki að komast áfram. Þegar blóð-
sykurinn fellur svona fer maður úr
flæðinu sínu og þarf að þvinga hluti.
Ég er alltaf með ákveðið kerfi hvern-
ig ég slæ og ég fer að sleppa skrefum
þar og annað í þeim dúr. Þetta eru
hlutir sem skipta máli og einbeiting
verður ekki nógu góð.“
Mótið var svolítið upp og niður
hjá Ólafíu en hún sá það að á góðum
degi getur hún svo sannarlega staðið
í þeim allra bestu.
Vantaði smá heppni
„Ef ég hefði verið smá heppin þá
hefði ég verið með um helgina.
Þetta var samt mjög gaman. frábær
umgjörð hérna og virkilega gaman
að vera á stórmóti,“ segir Ólafía en
hún þurfti að sinna meiri fjölmiðla-
vinnu og mæta á viðburði í aðdrag-
anda mótsins. Miklu meira umstang
en venjulega. Hvernig gekk henni að
glíma við það?
„Það er minni tími til að hvílast
þegar staðan er svona. Ég fékk
dagskrána frá umboðsmanninum
mínum viku fyrir mótið og ég vissi
hvað ég væri að fara út í. Ég var því
ekkert að láta þetta pirra mig neitt
og fannst þetta bara gaman.“
Ólafía Þórunn tekur öllu sem
hún er að upplifa með stóískri ró.
Hún endurskrifar íslenska golfsögu
hvað eftir annað og virðist njóta sín
í þessu nýja umhverfi sínu.
Gafst aldrei upp
„Ég er mjög stolt af sjálfri mér. Ég
gafst aldrei upp þó svo það gæfi
á bátinn. Ég var stundum reið á
hringnum en komst svo alltaf yfir
reiðina og hélt áfram. Þetta er ekki
síðasta risamótið mitt. Þetta er bara
byrjunin. Maður er alltaf að læra
mikið og í erfiðu aðstæðunum læri
ég mest. Ég lít á hlutina þannig að ég
geti bara bætt mig.“
að taka þátt í lPga-mótaröð-
inni er mikið ferðatöskulíf. Það er
flakkað á milli móta og næsta mót
hjá Ólafíu hefst næsta fimmtudag.
Hún ætlar að slaka aðeins á áður en
hún keyrir yfir á það mót.
alltaf sömu fötin
„Við ætlum aðeins að túristast í Chi-
cago og svo er fjögurra tíma keyrsla á
næsta stað. í gær fórum við í þvotta-
hús að þrífa og maður er alltaf með
sömu fötin. Það verður flott að kom-
ast heim og geta skipt þessum fötum
út. Ég kemst kannski heim í júlí en í
síðasta lagi í ágúst. Það verður gott,“
segir Ólafía Þórunn.
henry@frettabladid.is
Er mjög stolt af sjálfri mér
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir braut enn og aftur blað í íslenskri golfsögu er hún varð fyrsti Íslendingurinn til
þess að taka þátt í risamóti. Hún var grátlega nálægt því að komast í gegnum niðurskurðinn.
ólafía þórunn leyfði sér að brosa á hringnum er vel gekk. Sérstaklega er hún
fékk þrjá fugla í röð en þá var hún í frábærri stöðu. NordicPHotoS/Getty
Ég gafst aldrei upp
þó svo það gæfi á
bátinn. Ég var stundum reið
á hringnum en komst svo
alltaf yfir reiðina og hélt
áfram.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A g U R12 S p o R t ∙ f R É t t A B l A ð i ð
sport
0
3
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:1
1
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-A
6
F
0
1
D
3
C
-A
5
B
4
1
D
3
C
-A
4
7
8
1
D
3
C
-A
3
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
0
s
_
2
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K