Fréttablaðið - 03.07.2017, Page 36

Fréttablaðið - 03.07.2017, Page 36
Vínylkorkparket Við hættum gegn okkar eigin vilja árið 2008 því að trommu­leikarinn okkar fékk MS. Síðan gerðust bara alls konar hlutir – menn fluttu til útlanda, út á land og eignuðust börn ... allt þetta, lífið tók við. En við náðum aldrei að fylgja eftir plötunni sem við gáfum út 2008 út af þessu. Ég þurfti að fara upp á svið á Airwaves 2008 og segja að við hreinlega gætum ekki spilað, því að hann var lagður inn daginn áður,“ segir Guðmundur Ingi Þor­ valdsson söngvari hljómsveitarinnar Atomstation, sem áður gekk undir nafninu Atómstöðin og átti tölu­ verðum vinsældum að fagna á sínum tíma áður en veikindi settu sveitina á ís í ein 9 ár. Nú eru þeir komnir aftur og segir Guðmundur að þeir hafi aldrei verið betri. „Okkur fannst alltaf eins og við ættum eitthvað pínu ósagt og óklár­ að. Síðan var það síðasta sumar að við vorum allir í Reykjavík á sama tíma. Við hittumst og prufuðum að telja í og fundum að „magic­ið“ væri ennþá þarna. Áður en við vissum af vorum við búnir að semja fullt af lögum og fannst líka ógeðslega gaman að hanga saman. Við erum allir maníusjúklingar þannig að mjög fljótlega sagði Óli gítarleikari að við værum að fara til L.A. að taka upp. Við sendum tónlist á Scott Hackwith sem á geðveikt stúdíó í L.A. og hefur pródúserað og tekið upp fyrir Ramones og fleiri, og hann svaraði okkur strax og sagði að þetta væri æðislegt stöff og sagði okkur að koma til L.A. að taka upp, sem við kýldum á og létum gamlan draum rætast.“ Og hvernig var úti? „Það var algjör­ lega geðveikt! Þetta er frábært stúdíó – þarna er gríðarlega sjaldgæfur mixer, einn af þremur nothæfum eftir í heiminum, þetta var svona það sem allar gömlu rokkplöturnar voru teknar upp á. Hann á míkrófónasafn til að deyja fyrir – ég var að syngja í míkrófón sem kostaði 18 þúsund dali, og hann á tvo. Aðstaðan var frábær – Scott og Joshua Hawksley, sem er aðstoðarmaðurinn hans og tók okkur upp, þeir elskuðu okkur þannig að við fengum frábæra þjón­ ustu og unnum miklu meira en við höfðum borgað fyrir. Þannig að við komum heim með mjög vel hljóm­ andi grunna að þrettán lögum. Síðan auðvitað allt hitt; veðrið æðislegt, við vorum í Chinatown sem er æðis­ legur partur af borginni, þannig að þetta var alveg „once in a lifetime“ draumaferð.“ Atomstation stefnir á að gefa plöt­ una sína út fyrir Airwaves í haust og gefa út nokkur lög þangað til. Guð­ mundur segir ekkert liggja á og að þeir vilji frekar vanda sig. „Við erum auðvitað fimm ein­ staklingar með mjög ólíkar skoðanir og það tekur tíma að komast að sam­ eiginlegri niðurstöðu,“ segir Guð­ mundur hlæjandi. „En það er ógeðs­ lega skemmtilegt. Maður verður bara að leyfa því að taka tíma.“ Atomstation kemur fram í fyrsta skipti eftir hlé á Eistnaflugi núna í júlí. Þeir gáfu líka nýlega út lagið Ravens of Speed. Guðmundur segir þá svo ætla sér að hella sér í tónleika­ hald og klára plötuna. „Við hlökkum ógeðslega til að stíga aftur á svið og rokka fyrir fólkið!“ gudnyhronn@frettabladid.is Atomstation snýr aftur eftir 9 ára hlé Hljómsveitin Atomstation, áður þekkt sem Atómstöðin, snýr aftur eftir 9 ára hlé. Sveitin þurfti að leggja upp laup- ana eftir að trommari sveitarinnar greindist með MS sjúkdóminn. Sveitin tók upp nokkur lög í L.A. á dögunum. Atomstation er mætt aftur og hefur aldrei verið þéttari. FréttAblAðið/Eyþór ég vAr Að syngjA í míkrófón sem kostAði 18 þúsund dAli. 3 . j ú l í 2 0 1 7 M Á N U D A G U R20 l í f i ð ∙ f R É T T A B l A ð i ð Lífið 0 3 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :1 1 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 3 C -B F A 0 1 D 3 C -B E 6 4 1 D 3 C -B D 2 8 1 D 3 C -B B E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 2 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.