Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 18
Hljómsveitin Kaleo spilar allt að þrjú hundruð daga á ári á tónleikum. Vin-sældir sveitarinnar breiðast ört um heiminn. Lag þeirra Way Down We Go fór á síðasta ári í fyrsta sæti Billboard- listans í Bandaríkjunum í flokki alternative tónlistar. Lagið náði gullsölu og hefur selst í þremur millj- ónum eintaka á heimsvísu. Kaleo hefur undanfarið spilað í Evrópu, Ameríku og Asíu. Í haust hefst svo Kaleo Express túrinn hjá þeim og tónleikadagskráin verður áfram ansi þétt. Reynir á ónæmiskerfið Á dögunum var Jökull fluttur á sjúkrahús vegna streituálags á lík- amann. Hann er óðum að jafna sig en þarf að hugsa vel um sig. „Ég fór í fjölda rannsókna og nið- urstaðan er að álag og streita tengd stífu tónleikahaldi, ferðalögum og lítilli hvíld hefur sagt til sín. Ég hef þurft að hugsa gífurlega vel um mig þar sem það er erfitt að venjast þessum lífsstíl og reynir mikið á ónæmiskerfið. Oft er maður að ferðast mikið á stuttum tíma og milli tímabelta og þá getur svefninn orðið erfiður. Svo tala ég ekki um að maður er að spila fimm, sex tónleika á viku auk þess að sinna útvarpsheimsóknum og öðrum verkefnum. Ég er búinn að vera á mikilli keyrslu síðustu ár svo að það er ekk- ert nýtt. Ég ætla að reyna að slaka á með fjölskyldu og vinum í sumar inn á milli tónleika ásamt því að nýta tímann í að klára nýtt efni og fleira,“ segir hann. Jökull er af vinum og ástvinum sagður metnaðarfullur og einbeitt- ur. Stundum finnst honum erfitt að finna stundir til að slaka á og njóta augnabliksins á tónleikaferðalögum ytra. „Þessi lífsstíll er hreinlega svo skrýtinn að maður er alltaf að reyna að finna jafnvægi og fóta sig. Ég finn að jarðtengingin er alltaf mest heima á Íslandi en ég fæ oftast ekki að koma heim nema einu sinni eða tvisvar á ári. Einbeitingin er mikil- væg en það er líka mikilvægt að slaka á og njóta augnabliksins. Það getur stundum verið erfitt,“ segir hann. Aðdáendahópur Kaleo er gríðar- stór. Á Facebook fylgja þeim 180 þúsund manns og á Twitter 34 þúsund. Jökull segir aðdáendur geta verið aðgangsharða á netinu. „Mér hefur alltaf þótt vænt um það hvað hlustendahópurinn er breiður og á öllum aldri. Áhorfendur sem koma á tónleika eru iðulega allt frá 18 ára og upp í rúmlega 70 ára. Það þykir mér mikilvægt og gaman að ná til margra á þann hátt. Aðdáendur geta verið aðgangs- harðir, meðal annars á netinu, en ég er með margt fólk í vinnu sem filter- ar flest allt út svo að ég er sjaldnast að sjá margt sem kemur inn. Ég reyni aðallega að einbeita mér að tónlist- inni og svo er allt annað bara plús.“ Upphafið í Mosfellsbæ Á fáeinum árum hafa strákarnir í Kaleo náð ótrúlegum árangri. Vegferðin hófst í Varmárskóla í Mosfellsbæ. Jökull hafði verið að semja lög og spilaði þau með vinum sínum. Hljómsveitina stofnuðu þeir Jökull, Davíð Antonsson trommari og Daníel Ægir Kristjánsson bassa- leikari árið 2012. Seinna bættist í hópinn gítarleikarinn Rubin Pol- lock. Fyrsta lagið sem náði vin- sældum er landsmönnum líklega greypt í minni, Vor í Vaglaskógi, sem þeir fluttu í nýrri og blúsaðri útgáfu. Eftir vinsældisr fyrstu smáskífunnar, All the Pretty Girls, gerðu þeir svo plötusamning við Atlantic records og Warner/Chapell sem fól meðal annars í sér að tónlist þeirra er notuð í kvikmyndum og sjónvarps- þáttum. Þeir fluttu til Bandaríkjanna í kjölfarið og gera út frá Nashville. „Við náðum mjög vel saman. Við Danni vorum saman í bekk í Varm- árskóla en hinir voru jafnaldrar okkar. Í Mosfellsbæ var frábært félagslíf og þarna var gott að vera unglingur. Þetta er lítið og sam- heldið samfélag þar sem maður þekkir alla. Þótt bærinn fari sífellt stækkandi þá finnst mér það eins og að fara í tímavél að fara þangað. Ég fer og geri sömu hlutina og vana- lega og finnst ég vera velkominn,“ segir Jökull. Foreldrar Jökuls eru Þórlaug Sveinsdóttir og Júlíus Hjörleifsson. Guðmundur Vignir Friðjónsson er stjúpfaðir hans og guðmóðir hans er Anna María Jónsdóttir. Öll hafa þau stutt dyggilega við hann og eru honum afar kær. „Ég á þeim öllum alveg ótrúlega mikið að þakka. Ég hef líklega erft mismunandi eiginleika frá hverju þeirra. Móðir mín er ótrúleg mann- eskja og minn helsti klettur. Mikið af tónlistinni kemur frá Júlíusi föður mínum og mikið af einbeit- ingunni og rökhugsuninni kemur frá Gumma pabba mínum. Svo á ég einnig frábæra guðmóður, Önnu Maríu Jónsdóttur, sem er mér ótrú- lega kær. Þau styðja mig öll í því sem ég geri og hafa alltaf gert. Það að eiga svona bakland er einfaldlega blessun og ég er ótrúlega þakklátur og lán- samur,“ segir Jökull. Barðist fyrir frelsinu Á heimili Jökuls var hlustað á tón- list. Hann lærði sem barn á píanó og kenndi sjálfum sér á gítar. „Mamma hefur alltaf hlustað mikið á tónlist og hún hvatti mig líka til að byrja að spila á píanó um átta ára aldur. Aftur á móti hefur Júlíus faðir minn líklega verið hvað hlut- skarpastur þegar kemur að tónlist- arlegu uppeldi. Við spiluðum alltaf saman gömlu vínylplöturnar hans og ég hef verið undir miklum áhrif- um frá tónlist sem hann ólst upp við eins og Bítlana og fleiri frá þeim tímum. Hann gaf mér líka fyrsta gítarinn og kenndi mér vinnukonu- gripin,“ segir Jökull og segir þennan klassíska þráð hafa myndað ákveðna miðju í tónlistarsköpun sinni. „Ég er hins vegar ekki í neinum ramma og fylgi ekki einni stefnu tónlistar. Fjölbreytileikinn skiptir mig miklu máli og ég barðist fyrir frelsinu, að Finnur jarðtengingu heima á Íslandi Jökull Júlíusson, söngvari og laga- höfundur hljómsveitarinnar Kaleo, hefur átt ævintýralega skjótri vel- gengni að fagna. Mikil vinna fylgir slíkri velgengni og á dögunum end- aði Jökull á sjúkrahúsi. Örmagna af þreytu. Jökull ætlar að reyna að slaka á með fjölskyldu og vinum í sumar á milli tónleika og segist finna jarðtenginguna sem hann þarf á Íslandi. vera ekki þvingaður í ramma, þegar ég skrifaði undir samninginn. Ég vil að tónlistin njóti sín og vil semja að vild. Síðasta plata okkar heitir AB; mér fannst það vera heiti við hæfi. Ég vitna í gamlan vínyl þar sem músíkinni var skipt á A- og B-hlið. Á A-hlið voru blúsuð lög en á B-hlið melódísk og róleg lög.“ Hann neitar því þó ekki að blús- inn eigi sterk ítök í honum. „Blús- inn er hluti af mér, ég er hrifinn af honum og það er ef til vill vegna áhrifa af plötunum sem pabbi spilaði þegar ég var lítill. En svo er þetta ein suðupottur af tónlist og lífsreynslu sem maður sækir í þegar maður er að semja og spila tónlist.“ Ástvinir duglegir að fljúga út Vegna álagsins og annríkisins hafa fjölskylda og vinir verið dugleg við að ferðast til Bandaríkjanna til Jök- uls. „Maður þarf alveg á því að halda þegar maður er að ferðast svona mikið. Þá þarf maður þessa nær- veru. Það er ekki nóg að koma heim í þessu fáu skipti, þá nærist maður mikið á því að fá ástvini í heimsókn.“ Nú eru nærri þrjú ár liðin síðan þeir félagar í Kaleo fluttu til Banda- ríkjanna og margt hefur breyst. „Eftirspurnin eykst í sífellu. Við höfum ekki við að anna henni en reynum eftir fremsta megni. Maður uppsker nefnilega eftir því og þess vegna er svo mikilvægt að spila þar sem fólk vill. Þegar við lítum til baka þá höfum við komist ótrúlega langt. En þetta eru allt lítil skref. Við reynum að horfa á þetta þannig. Eitt skref í einu, einn dagur í einu. Það finnst mér gott að hafa í huga þegar ég verð þreyttur. Við verðum allir þreyttir. Núna er annatími, þetta er tími tónlistarhátíða bæði í Bandaríkjunum og í Evrópu. Það er pökkuð dagskrá út sumarið,“ segir Jökull og beðinn um að rifja upp eftirminnilegustu tónleikana síð- ustu misseri nefnir hann til dæmis Red Rocks tónlistarstaðinn í Color- ado. „Það er alltaf skemmtilegast að fylgja eftir nýrri plötu. En ég hef samt gaman af fjölbreytileikanum. Stundum erum við að spila fyrir tugi þúsunda en stundum aðeins fyrir Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Vinsældir Kaleo 11 Kaleo hefur selt gull- plötur í 11 löndum. 2012 var sveitin stofnuð í mosfellsbæ. 2013 tóK Kaleo þátt í músíKtilraunum en Komst eKKi í verð- launasæti. 180 þúsund manns hafa læKað facebooK-síðu Kaleo. Kaleo sló í gegn með útgáfu sinni af vori í vaglasKógi. Way doWn We go hefur selst í meira en 500 þúsund eintöKum. ↣ Mynd/ höRðUR fReyR BRynjaRsson 1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R18 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 C -0 8 F 0 1 D 3 C -0 7 B 4 1 D 3 C -0 6 7 8 1 D 3 C -0 5 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.