Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 59

Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 59
Unglingar í félagsmiðstöðinni Pegasus í Álfhólsskóla héldu bingó á dögunum og gáfu Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB) leikjatölvur og spil. „Við vildum kaupa eitthvað sem börnin hefðu gaman af,“ segir Snorri Páll Þórðarson, forstöðumaður Pega- sus, og lýsir verkefninu. „Við ákváðum fyrst hvaða málefni við vildum styrkja. Ein stúlka í hópn- um hafði misst systur sína úr krabba- meini og kynnst SKB af eigin raun og það var einróma samþykkt að styrkja þau samtök. Við vildum ekki gefa pening svo við höfðum samband við félagið og fréttum þar að það vantaði leikjatölvur í hvíldaríbúðirnar sem foreldrar utan af landi dvelja í þegar börn þeirra eru í meðferð. Oft eru systkini með og börnin sem liggja inni koma þangað í heimsókn.“ Snorri segir unglingana hafa safnað alveg fáránlega flottum vinningum. „Krakkarnir notuðu sín tengsl. Vinn- ingarnir voru að andvirði þrjú til fjögur hundruð þúsunda. Það eina sem við eyddum pening í var kakó, við fengum meira að segja vöffludeigið frítt.“ Aðsóknin að bingókvöldinu var ágæt, hefði þó mátt vera betri, að sögn Snorra Páls. „En af því að Lands- bankinn tvöfaldaði upphæðina sem við fengum inn fyrir bingóið náðum við um 320 þúsundum þetta kvöld og gátum keypt Play Station leikjatölvur, þrjá leiki, auka fjarstýringar og svo þrjú borðspil á hvert heimili. Krakkar vilja spila það sem er nýtt. Ég veit hvernig það er í félagsmið- stöðvum og ef börn eru í krabbameins- rannsóknum og meðferðum þá eiga þau það fyllilega skilið,“ segir hann og telur verkefnið hafa verið bæði skemmtilegt og þroskandi fyrir hópinn sem að því stóð. „Það er ekkert sjálfgef- ið að vera heilbrigður og viðfangsefnið vakti okkur til umhugsunar um það. Svo skiptir máli að hjálpa svona samtökum því yfirleitt er bágborin staða hjá þeim.“ gun@frettabladid.is Vildum kaupa það sem börnin hefðu gaman af Leikjatölvur og borðspil var meðal þess sem unglingar í félagsmiðstöðinni Pegasus í Kópavogi söfnuðu fyrir og gáfu í íbúðir Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. Snorri Páll Þórðarson forstöðumaður Pegasus telur verkefnið hafa verið þroskandi fyrir hópinn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Vilhjálmur Árnason járnsmiður, áður til heimilis að Sóleyjarima 3, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 3. júlí kl. 13.00. Helga Vilhjálmsdóttir Sigurjón Gunnarsson Gunnar Snorri Valdimarsson Vilhjálmur Þór Sigurjónsson Gunnar Ásgeir Sigurjónsson Stefán Sigurjónsson og fjölskyldur. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Magnúsdóttir Faxabraut 11, Keflavík, lést á Hlévangi, miðvikudaginn 21. júní. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju, þriðjudaginn 4. júlí kl. 13.00. Magnús Kristinn Ásmundsson María M. Sissing Þórarinn Ásmundsson Arndís Kristjánsdóttir Hildur Kristín Ásmundsdóttir Ásþór Kjartansson Jón Örn Ásmundsson Jóhanna Sturlaugsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jónas Hallgrímsson áður til heimilis að Básenda 1, sem lést sunnudaginn 25. júní 2017, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 4. júlí kl. 13.00. Hulda Sigríður Ólafsdóttir Hallgrímur Jónasson Guðríður Kristófersdóttir Guðrún Jónasdóttir Eiríkur Páll Eiríksson Helga Jónasdóttir Elísabet Jónasdóttir Ólafur Jónasson Jóna Sigrún Hjartardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma, Kristín Björnsdóttir ljósmóðir, lést að hjúkrunarheimilinu Mánateigi, Hrafnistu, miðvikudaginn 21. júní. Útförin fer fram frá Árbæjarkirkju, þriðjudaginn 4. júlí kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Ólafur G. Sigurðsson Björn Ólafsson Sigurður Ólafsson Helga Thors Hildur Hafstein Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Eygló Friðmey Gísladóttir Lindargötu 57, 101 Reykjavík, (áður Hvanneyri), lést að heimili sínu fimmtudaginn 29. júní sl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Brynjar Haraldsson Unnur G. Jónsdóttir Þórir Haraldsson María S. Þorbjörnsdóttir Guðrún Sigríður Haraldsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir hlýhug, blóm og kveðjur við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Friðriks J. Jónssonar frá Kópaskeri, til heimilis að Lindarsíðu 4, Akureyri. Kærar þakkir, starfsfólk SAk og öldrunarþjónustu Akureyrar, fyrir mannlega og faglega umönnun. Árni V. Friðriksson Gerður Jónsdóttir Ólafur Friðriksson Freyja Tryggvadóttir Kristín Helga Friðriksdóttir Bjarki Hrafn Ólafsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Margeir Friðvinsson Sauðármýri 3, Sauðárkróki, sem lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 25. júní síðastliðinn verður jarðsunginn frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 3. júlí kl. 14.00. Ingibjörg Jósafatsdóttir Björgvin Jósafat Sveinsson María Sif Gunnarsdóttir Gunnar Bragi Sveinsson Atli Freyr Sveinsson Ingibjörg Jenný Leifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Sigríðar Erlu Magnúsdóttur frá Hafnarfirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunar- heimilisins Sólvangs fyrir góða umönnun og hlýhug. Jón Helgi Pálmason Magnús Jónsson Ásthildur M. Kristjánsdóttur Unnur Jónsdóttir Karl Albert Manuelsson Pálmi Jónsson Margrét Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Magnúsar Sigurðssonar Víðivöllum 6, Selfossi. Aðalheiður Björg Birgisdóttir Þorsteinn Magnússon Þóra S. Jónsdóttir Íris Björk Magnúsdóttir Jón Ari Guðbjartsson Ólöf Ósk Magnúsdóttir Steindór Guðmundsson Helga Skúla Magnúsdóttir Arnar Þór Sveinsson Ólöf Kristjánsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Okkar ástkæri sonur, bróðir, frændi og barnabarn, Halldór Ingvi Emilsson kennari, sem lést af slysförum þann 21. júní sl. í Utah í Bandaríkjunum, verður jarðsunginn frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 5. júlí klukkan 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir en þeim er vilja minnast hans er bent á Björgunarsveitina í Grindavík. Gerður Sigríður Tómasdóttir Jón Emil Halldórsson Hrannar Jón Emilsson Helgi Hrafn Emilsson Jóhanna Gerður Hrannarsdóttir Ívar Hrannarsson Helga Emilsdóttir Halldór Ingvason Fulltrúar félagsmiðstöðvarinnar Pegasus við afhendingu gjafanna á skrifstofu SKB í Hlíða smára, Katrín Halldórsdóttir, Kristín Ísold Jóhannesdóttir, Andrea Þórey Sigurðardóttir og Snorri Páll Þórðarson. T í m a m ó T ∙ F R É T T a B L a ð i ð 27L a U G a R D a G U R 1 . j ú L í 2 0 1 7 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 C -0 4 0 0 1 D 3 C -0 2 C 4 1 D 3 C -0 1 8 8 1 D 3 C -0 0 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.