Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 24
Yucatanhérað hefur lengi verið einn vin-sælasti ferðamannastaður Mexíkó, enda friðsælasta svæði landsins og býður upp á gríðarlega fjölbreytta afþreyingu. Milljónir fara þangað árlega og hafa Íslendingar í auknum mæli lagt leið sína þangað síðustu árin. Bandaríkjamenn hafa lengi sótt Yucatan heim, enda stutt að fara. Cancunborg hefur sérstaklega verið vin- sæl djammborg sem margir háskólanemar heimsækja í vorfríi. Fyrir þá sem vilja sletta úr klaufunum og prófa nýjan kokteilbar á hverju kvöldi er upplagt að byrja ferðina þar. Cancun er hins vegar ekki öllum að skapi og getur nýst best sem dvalarstaður til að gista á um nætur og fara í dagsferðir frá á daginn. Eyjan Isla Mujeres er stutt frá Cancun og auðvelt að komast þangað á bát. Þar eru dásamlegar strendur og skjaldbökuathvarf. Hægt er að ferðast um eyjuna á golfbíl. Ferðamenn geta valið að gista á eyjunni eða ein- faldlega notið þess að vera þar yfir daginn. Á flestum hótelum eða strandklúbbum á svæðinu er hægt að leigja bekki en á mörgum stöðum tíðkast það að verðið á hverjum kokteil sem maður kaupir fer upp í leiguna og því tilvalið að fá sér eins og tvo Pina Colada. Margir velja að verja tíma á Playa del Carmen, sem er í um klukkutíma fjarlægð frá Cancun. Þar eru góðar strendur og gott að njóta þess að baða sig í Karíba- hafinu. Auðvelt er að komast milli Cancun og Playa del Carmen með rútu. Almennt eru rútur mjög góðar í Mexíkó, þær eru loftkældar og stoppa á öllum helstu ferðamannastöðunum, auk þess sem þær eru mjög ódýr valkostur. Þeir sem ætla að fylgja gömlu hippaleiðinni fara frá Isla Mujeres til strandbæjarins Tulum. Þar er hægt að velja að gista bæjarmegin þar sem fjöldi íbúða er til leigu, margar hverjar með sundlaug, eða strandmegin þar sem lúxushótel eru algengari. Það fer eftir smekk hvers og eins hvort er valið, en auðveldlega er hægt að ganga á milli bæjarhluta eða taka leigubíl fyrir klink. Margir fara í jógaferðir á svæðið og skemmta sér við að fara í hinar ýmsu jógastöður á hvítum ströndum svæðisins. Einnig er hægt að sigla, snorkla og stunda fjölbreytt vatnasport við ströndina. Svæðið er þekkt fyrir rústir íbúðahúsa og bænahúsa Mayafólksins, en bærinn var einn sá síðasti sem þjóðflokkurinn byggði upp. Það er fjöldi merkilegra rústa í Mexíkó en fáar jafn mikið augnakonfekt og rústirnar við Tulum sem gnæfa yfir strandlengju þar sem er hægt að baða sig. Mexíkósk matargerð er líklega hvergi betri en í land- inu sjálfu og er Tulum þar engin undantekning. Ferða- hópar geta skemmt sér við það að mana hverjir aðra við að prófa mismunandi styrkleika sósa á borð við Á viku má njóta þess besta sem Yucatansvæðið hefur upp á að bjóða. habanero ofan á ljúffengt taco svæðisins. Tacostaður- inn Antojitos La Chiapaneca er sérstaklega góður. Þar kostar Taco frá sjö pesóum, eða fjörutíu krónum, og því auðvelt að borða yfir sig! Einn af hápunktum ferðar um Yucatansvæðið er að synda í „cenote“ sem eru eins konar neðansjávarhellar. Nálægt Tulum eru nokkrir slíkir, til að mynda Grand Cenote. Þar greiðir maður aðgangsgjald og leigir snorkl- búnað og getur svo snorklað í vatninu, sem er ansi kalt (en það gleymist fljótt), meðal skjaldbaka og fiska. Það er meira að segja möguleiki að kaupa snarl handa skjaldbökunum og gefa þeim að borða. Annað sem algjörlega er þörf á að gera á ferðalagi um svæðið er að heimsækja hina frægu pýramída í Chichen Itza. Svæðið er á heimsminjaskrá UNESCO og er einn vinsælasti fornleifavettvangur Mexíkó. Pýramídarnir og aðrar rústir þar í kring voru byggðar á milli áttundu og tólftu aldar. Hægt er að fara í skipulagðar rútuferðir að pýramídunum eða koma sér sjálfur þangað með rútu. Þegar þangað er komið er svo hægt að fá leiðsögumann til að segja manni frá þessari stórkostlegu sögu, eða einfaldlega skemmta sér við það að reyna að koma auga á eðlur sem sitja á rústunum. Á einni viku má njóta þess besta sem Yucatansvæðið hefur upp á að bjóða þó að alltaf sé hægt að framlengja ferðina til að fá betri tilfinningu fyrir menningunni. Fyrir þá sem vilja halda ferðalagi um svæðið áfram er ódýrt að fljúga frá Cancun til Havana á Kúbu, taka bát frá Chetumal til Caye Caulker, ævintýraeyju í Belize, eða þá halda leiðinni áfram til Flores í Gvatemala. Einnig er hægt að taka rútu eða flug til annarra spennandi áfanga- staða innan Mexíkó. Tulumströndin á Yukatanskaga er vinsæl meðal Bandaríkjamanna sem vilja sletta úr klaufunum. Þar eru einstakar rústir. NordicphoTos/AFp Kukulkanhofið, sem fleiri þekkja sem El castillo. Þeir sem ferðast til Mexíkó ættu að heimsækja fræga pýramída í chichen itza. NordicphoTos/AFp Íbúafjöldi Yucatan 2 milljónir árið 2010. stærð svæðisins 39.500 fer- kílómetrar. Flug til og frá cancun Frá 110.000 krónum. Gisting í Airbnb íbúð í Tulum Frá 2.000 kr. á mann. Taco í Tulum 40 krónur. Sól, sandur og neðansjávarhellar Yucatanhérað í Mexíkó býður upp á skemmtilega blöndu af Mayamenningu og hvítum ströndum. Sæunn Gísladóttir saeunn@ frettabladid.is Staðreyndir um Yucatan 1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R24 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 C -1 7 C 0 1 D 3 C -1 6 8 4 1 D 3 C -1 5 4 8 1 D 3 C -1 4 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.