Fréttablaðið - 01.07.2017, Qupperneq 24
Yucatanhérað hefur lengi verið einn vin-sælasti ferðamannastaður Mexíkó, enda friðsælasta svæði landsins og býður upp á gríðarlega fjölbreytta afþreyingu. Milljónir fara þangað árlega og hafa Íslendingar í auknum mæli lagt leið sína þangað síðustu
árin.
Bandaríkjamenn hafa lengi sótt Yucatan heim, enda
stutt að fara. Cancunborg hefur sérstaklega verið vin-
sæl djammborg sem margir háskólanemar heimsækja
í vorfríi. Fyrir þá sem vilja sletta úr klaufunum og prófa
nýjan kokteilbar á hverju kvöldi er upplagt að byrja
ferðina þar. Cancun er hins vegar ekki öllum að skapi og
getur nýst best sem dvalarstaður til að gista á um nætur
og fara í dagsferðir frá á daginn.
Eyjan Isla Mujeres er stutt frá Cancun og auðvelt
að komast þangað á bát. Þar eru dásamlegar strendur
og skjaldbökuathvarf. Hægt er að ferðast um eyjuna á
golfbíl. Ferðamenn geta valið að gista á eyjunni eða ein-
faldlega notið þess að vera þar yfir daginn. Á flestum
hótelum eða strandklúbbum á svæðinu er hægt að leigja
bekki en á mörgum stöðum tíðkast það að verðið á
hverjum kokteil sem maður kaupir fer upp í leiguna og
því tilvalið að fá sér eins og tvo Pina Colada.
Margir velja að verja tíma á Playa del Carmen, sem
er í um klukkutíma fjarlægð frá Cancun. Þar eru góðar
strendur og gott að njóta þess að baða sig í Karíba-
hafinu. Auðvelt er að komast milli Cancun og Playa
del Carmen með rútu. Almennt eru rútur mjög góðar
í Mexíkó, þær eru loftkældar og stoppa á öllum helstu
ferðamannastöðunum, auk þess sem þær eru mjög ódýr
valkostur.
Þeir sem ætla að fylgja gömlu hippaleiðinni fara frá
Isla Mujeres til strandbæjarins Tulum. Þar er hægt að
velja að gista bæjarmegin þar sem fjöldi íbúða er til
leigu, margar hverjar með sundlaug, eða strandmegin
þar sem lúxushótel eru algengari. Það fer eftir smekk
hvers og eins hvort er valið, en auðveldlega er hægt að
ganga á milli bæjarhluta eða taka leigubíl fyrir klink.
Margir fara í jógaferðir á svæðið og skemmta sér við
að fara í hinar ýmsu jógastöður á hvítum ströndum
svæðisins. Einnig er hægt að sigla, snorkla og stunda
fjölbreytt vatnasport við ströndina. Svæðið er þekkt
fyrir rústir íbúðahúsa og bænahúsa Mayafólksins, en
bærinn var einn sá síðasti sem þjóðflokkurinn byggði
upp. Það er fjöldi merkilegra rústa í Mexíkó en fáar jafn
mikið augnakonfekt og rústirnar við Tulum sem gnæfa
yfir strandlengju þar sem er hægt að baða sig.
Mexíkósk matargerð er líklega hvergi betri en í land-
inu sjálfu og er Tulum þar engin undantekning. Ferða-
hópar geta skemmt sér við það að mana hverjir aðra
við að prófa mismunandi styrkleika sósa á borð við Á viku má njóta þess besta sem Yucatansvæðið hefur upp á að bjóða.
habanero ofan á ljúffengt taco svæðisins. Tacostaður-
inn Antojitos La Chiapaneca er sérstaklega góður. Þar
kostar Taco frá sjö pesóum, eða fjörutíu krónum, og því
auðvelt að borða yfir sig!
Einn af hápunktum ferðar um Yucatansvæðið er að
synda í „cenote“ sem eru eins konar neðansjávarhellar.
Nálægt Tulum eru nokkrir slíkir, til að mynda Grand
Cenote. Þar greiðir maður aðgangsgjald og leigir snorkl-
búnað og getur svo snorklað í vatninu, sem er ansi kalt
(en það gleymist fljótt), meðal skjaldbaka og fiska.
Það er meira að segja möguleiki að kaupa snarl handa
skjaldbökunum og gefa þeim að borða.
Annað sem algjörlega er þörf á að gera á ferðalagi um
svæðið er að heimsækja hina frægu pýramída í Chichen
Itza. Svæðið er á heimsminjaskrá UNESCO og er einn
vinsælasti fornleifavettvangur Mexíkó. Pýramídarnir
og aðrar rústir þar í kring voru byggðar á milli áttundu
og tólftu aldar. Hægt er að fara í skipulagðar rútuferðir
að pýramídunum eða koma sér sjálfur þangað með rútu.
Þegar þangað er komið er svo hægt að fá leiðsögumann
til að segja manni frá þessari stórkostlegu sögu, eða
einfaldlega skemmta sér við það að reyna að koma auga
á eðlur sem sitja á rústunum.
Á einni viku má njóta þess besta sem Yucatansvæðið
hefur upp á að bjóða þó að alltaf sé hægt að framlengja
ferðina til að fá betri tilfinningu fyrir menningunni.
Fyrir þá sem vilja halda ferðalagi um svæðið áfram er
ódýrt að fljúga frá Cancun til Havana á Kúbu, taka bát
frá Chetumal til Caye Caulker, ævintýraeyju í Belize, eða
þá halda leiðinni áfram til Flores í Gvatemala. Einnig er
hægt að taka rútu eða flug til annarra spennandi áfanga-
staða innan Mexíkó.
Tulumströndin á Yukatanskaga er vinsæl meðal Bandaríkjamanna sem vilja sletta úr klaufunum. Þar eru einstakar rústir. NordicphoTos/AFp
Kukulkanhofið, sem fleiri þekkja sem El castillo. Þeir sem ferðast til Mexíkó ættu að heimsækja fræga pýramída í chichen itza. NordicphoTos/AFp
Íbúafjöldi
Yucatan
2 milljónir
árið 2010.
stærð
svæðisins
39.500 fer-
kílómetrar.
Flug til og
frá cancun
Frá 110.000
krónum.
Gisting
í Airbnb
íbúð í
Tulum
Frá 2.000 kr.
á mann.
Taco í
Tulum
40 krónur.
Sól, sandur og neðansjávarhellar
Yucatanhérað í
Mexíkó býður upp á
skemmtilega blöndu
af Mayamenningu
og hvítum ströndum.
Sæunn
Gísladóttir
saeunn@
frettabladid.is
Staðreyndir um Yucatan
1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R24 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð
0
1
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
0
8
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
3
C
-1
7
C
0
1
D
3
C
-1
6
8
4
1
D
3
C
-1
5
4
8
1
D
3
C
-1
4
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
0
s
_
3
0
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K