Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 01.07.2017, Blaðsíða 20
fáeina aðila. Red Rocks tónleika- staðurinn í Colorado var mjög eftir- minnilegur og ég hlakka til að spila þar næst.“ Hann segist lítið stressaður áður en hann fer á svið. „Ég hef ekki fund- ið fyrir miklum sviðsskrekk eða slíku en miklu frekar farginu af streitunni sem fylgir lífsstílnum, að koma fram nánast daglega og sofa lítið. En ég geri ýmislegt til að vinna á móti streitunni. Ég er duglegur að hreyfa mig og það er ákveðin hugleiðsla að komast í ræktina og ná að gleyma mér í rúman klukkutíma á dag. Semur í rútum Hann þarf að nýta þann litla tíma sem hann hefur mjög vel til að semja tónlist. „Þetta er miklu skrýtnara líf en fólk getur ímyndað sér. Við ferð- umst ótrúlega mikið bæði með flugi og rútu. Erum alltaf á flugvöllum og í flugvélum. Og erum líka stöðugt á ferð í rútum þvert yfir Bandaríkin. Á milli tónleika er ég líka í viðtölum eða að spila í útvarpi og koma fram. Ég neyðist auðvitað núorðið til að semja mikið bara aftur í rútunni eða á hótelherbergjum en ég sem líka mikið þegar ég kem heim til Íslands. Mér finnst til dæmis frábært að fara út á land eða í sumarbústað og semja. Mér hefur oft þótt gott að breyta um umhverfi og gerði svolítið af því áður fyrr að fara til Spánar á sumrin og semja þar. Nú vill maður auðvitað bara koma sem mest heim til Íslands þegar færi gefst. Ég tala nú ekki um á þessum tíma ársins sem að er algjörlega einstakur. Ég hleð batteríin hér heima og er duglegur að ferðast um landið þegar ég er hér. Ég er mikið fyrir austan enda bjó ég nokkur ár barnæsk- unnar á Höfn í Hornafirði. Ég er líka duglegur að fara norður og vestur. Þangað á ég líka ættir að rekja. Mamma gengur mikið á fjöll og útivist er fjölskyldusportið. Ég hef sterkar tilfinningar til íslenskrar náttúru og þær hafa styrkst eftir að ég flutti út. Við verðum að standa okkur vel í því að varðveita nátt- úruna sem við eigum hérna heima með auknum ferðamannafjölda og meiri ágangi. Ég sé þetta svo vel þar ég bý. Hvað það er einstakt sem við eigum hér og hvað náttúran veitir okkur mikil lífsgæði.“ Jökull segir tónlistina vera sitt markmið í lífinu. „Ég skráði mig tvisvar í háskólann og ætlaði að læra heimspeki. Hver veit hvað verður seinna í lífinu. Ég rek mitt eigið fyrirtæki og trúi því að maður eigi að elta drauma sína. Það er auð- velt að missa einbeitingu og fókus. Það er margt sem togar í mann. Sér- staklega í þessum lífsstíl. En þetta er langhlaup og það er viðbúið að maður þurfi stundum á hvíld að halda áður en maður heldur hlaupinu áfram. Ég kvarta ekki. Þetta er gott líf og ég er þakklátur. Aðalmarkmiðið núna er að eignast frítíma, geta ráðið meiru sjálfur. Vinna meira heima við og í hljóð- veri. Og að geta verið á einum stað í einu meira yfir árið.“ Með Gumma pabba um rétt rúmlega fjögurra ára. 21 árs gamall að spila á gítar. Með Þórlaugu móður sinni í Kaliforníu á síðasta ári. Með þjálfaranum og vini mínum frá Kanada, Matthew, að gera jóga á strönd­ inni í Flórída á miðjum túr. Á Thomas Jeff­ erson University spítalanum í Philadelphiu. Veglegar veit­ ingar í rútunni. Jökull í Grand Canyon. Jökull um ársgamall. ↣ Jökull í Grand Canyon á síðasta ári. 1 . j ú l í 2 0 1 7 l A U G A R D A G U R20 H e l G i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 0 1 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 0 8 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 3 B -F 5 3 0 1 D 3 B -F 3 F 4 1 D 3 B -F 2 B 8 1 D 3 B -F 1 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 8 0 s _ 3 0 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.