Norðurslóð - 15.12.2005, Síða 3
Norðurslóð - 3
Tímamót
Tónleikar Friðriks Omars vinsælir
Skíðasvæðið
Skírn
Þann 10. desember sl. var skírður í Dalvíkurkirkju, Fannar Nata-
phum. Foreldrar hans eru Sigurbjörn Hjörleifsson og Kanokwan
Srichaimun, Karlsbraut ll,Dalvík.
Afmæli
Þann 11. október sl.
varð 70 ára Gíslínu
Gísladóttir Sunnu-
braut 14, Dalvík.
Þann 3. desember sl.
varð 70 ára Valdimar
Kjartansson Klappar-
stíg 2, Hauganesi.
Norðurslóð árnar heilla.
Byssurnar
tilbúnar
Egill tekinn til við að stjórna Samkórnum við góðar undirtektir Petru
kórstjóra.
Snjóframleiðsla hefst í Böggvis-
staðafjalli næst þegar frystir
að sögn Jóns Haldórssonar hjá
skíðafélaginu. Elon Eriksson,
Sérfræðingur frá Lenco-verk-
smiðjunni í Svíþjóð hefur verið
hér í vikunni að stilla og prófa
dælubúnað og ganga frá tölvu-
búnaði sem stýrir dælunum og
ræsir byssurnar eftir kúnstarinn-
ar reglum.
Dælan er geysiöflug, lagnirnar
eru 1.120 metrar upp með lyft-
unni og tvær byssur sjá svo um að
búa til snjóinn og úða honum yfir
brekkurnar. Með fullum afköst-
um eiga þær að geta framleitt um
80 rúmmetra af snjó á kiukku-
stund. (Til samanburðar má geta
þess að gamla sundlaugin tók um
90 rúmetra af vatni.) Jón segir
að reynt verði að hafa byssurnar
sem mest á sama stað og þá frek-
ar notast við troðara við að ýta
snjónum til en hvor byssa um sig
vegur um 6 tonn.
Skíðasvæðið í Böggvisstaða-
fjalli var opnað formlega þann
30. nóvember. Jón segir vertíðina
fara afar vel af stað. Skíðafólk
hafi tekið vel við sér og þó snjór
hafi verið af skornum skammti
hefur aðsóknin verið góð enda
veðráttan undanfarið eins og
best verður á kosið til útivist-
ar. Sextíu og einn nemandi úr
Austurbæjarskóla í Reykjavík
dvaldi hér við skíðaiðkan í þrjá
daga í síðustu viku og ætluðu
krakkarnir ekki að geta haft sig
burt frá brekkunum að sögn
Jóns.
Stuðmaður með Samkórnum
Egill Ólafsson fór á kostum með
Samkór Svarfdæla á aðventu-
tónleikum kórsins sl. laugar-
dag. Fjölmenni var bæði í
Dalvíkurkirkju um daginn og
í Glerárkirkju á Akureyri um
kvöldið. Egill söng nokkur lög
með kórnum, bæði eftir sjálfan
sig og aðra og einnig söng hann
einsöng við undirleik Helgu
Bryndísar Magnúsdóttur á píanó
og Steinunnar Elvu Úlfarsdóttur
á þverflautu. Þá spiluðu þær
Hrafnhildur Marta og Melkorka
Guðmundsdætur á selló og þver-
flautu með kórnum í nokkrum
lögum en stjórnandi var Petra
Björk Pálsdóttir.
Reistur verði minnisvarði
um þinghúsið á Grund
Þinghúsið sáluga liggur óbætt hjá garði. Ég hef verið að vona að
eitthvert menningarfélag eða -félög í Svarfaðardal taki sig fram
um að reisa þessu merkilega húsi minnisvarða eða bautastein, líkt
og Lionsklúbbur Dalvíkur gerði á Arnarholti um Grundarmenn
hina fornu. Þingliúsið var upphaflega byggt áTungunum árið 1892.
Það var tekið niður 1911 og flutt að Grund, hinum forna þingstað
Svarfdæla. Þar var húsið reist að nýju sumarið 1911. Barnaskóli
var settur þar haustið 1912 og stóð til 1955. Félagsheimili U.M.F.
Þorsteins Svörfuðs var byggt áfast við húsið 1938.
Fram yfir miðja 20. öld var þinghúsið helsta miðstöð menning-
ar- og félagslífs í Svarfaðardal. Ágrip af sögu þess eftir undirritað-
an er að finna í Norðurslóð 1986.
Júlíus Jón Daníelsson
Lesið upp úr bókum sem tengjast Svarfaðardal
Síðastliðið þriðjudagkvöld var lesið upp úr nýjum bókum á Sogni.Tíu valin-
kunnir bæjarbúar lásu upp úr bókum sem þeir eru að lesa þessi dægrin. Þá
komu á upplesturinn tveir höfundar sem gefa út bækur nú fyrir jólin, þau
Ingibjörg Hjartardóttir og Björn Þorláksson. Bók Ingibjargar nefnist, Þriðja
bónin - saga móður hans, en bók Björns heitir Lífsloginn. Báðar tengjast bæk-
urnar byggðarlaginu því Ingibjörg er svarfdælskur höfundur en saga Björns
gerist að stórum hluta á Dalvík.
*
Friðrik Omar með
lag í undankeppni
Eurovision 2006
Sl. þriðjudag var tilkynnt
um hvaða lagahöfundar kom-
ust inn með lag í undan-
keppni Eurovision á næsta
ári, en þeirra á meðal er
Dalvíkingurinn Friðrik Omar
Hjörleifsson.
Keppnin verður með öðru
sniði og mun meira lagt í hana
en áður. Haldin verða þrjú
undanúrslitakvöld og síðan
úrslitakvöld í framhaldinu en
alls taka 24 lög þátt í undan-
keppninni.
Jón Halldórsson er frumkvöð-
ull í snjóframleiðslu hérá
landi. Margir hlógu góðlát-
lega að áformum hans um
snjóframleiðslu í Böggvisstaða-
fjalli um árið þegar hann stóð
fyrir innfiutningi snjóbyssu
hingað. Byssan var aldrei sett
upp þá en nú keppast skíða-
svœðin við að setja upp snjófram-
leiðslukeifi.
Jólaundirbúningurinn er nú kominn ú fullt út um borg og bý. Krakkarn-
ir í 6. bekk Dalvíkurskóla voru önnum kafnir við að búa til jóiakonfekt
þegar blaðamann bar þar að garði á dögunum.
Það er að verða fremur sjaldgœf sjón nú í seinni tíð að sjá togarana
Björgvin EA og Björgúlf EA í Dalvíkurhöfn, hvað þá báða í einu. Þeir
voru þó báðir hér sl. mánudag þegar meðfylgjandi mynd var tekin.
Björgvin landaði sl. sunnudag ríflega 70 tonnum af ísfiski og Björg-
úlfur landaði á þriðjudag um 80 tonnum af ísfiski. A mánudag lönd-
uðu Sjöfn EA frá Grenivík 24 tonnum og Svanur EA frá Hrísey ríflega
46 tonnum, en afli þeirra allra fór að stœrstum hluta til vinnslu hjá
frystihúsi Samherja á Dalvík.
Þarfað bœta við aukatónleikum og breyta tímasetningum
Hátíðartónleikar Friðriks Ómars
í Ungó á Dalvík hafa heldur
betur slegið í gegn en nær upp-
selt er á áður auglýsta tónleika.
Ákveðið hefur verið að bæta við
þriðju tónleikunum á Dalvík og
einnig tónleikum á Ólafsfirði.
Á efnisskránni eru þekktir
jólasálmar sem Friðrik útsetur
sjálfur en hann hefur verið við
upptökur á þeim í mánuðinum.
Tónleikarnir eru klukkutíma
langir og verða myndir sýndar
frá Dalvíkurbyggð á stórum skjá
meðan á tónleikunum stendur.
Þriðjudagurinn 27. desember
kl. 21:00 -Tjarnarborg Ólafsfirði.
Miðvikudagurinn 28. desember
kl. 20:00 - Ungó á Dalvík (auka-
tónleikar). Miðvikudagurinn 28.
desember kl. 22:00 - Ungó á
Dalvík, örfá sæti laus. Áður
auglýstir tónleikar færast til um
klukkustund. Þeir sem áttu pant-
aða miða vinsamlegast athugið
breyttan tíma. Fimmtudagurinn
29. desember kl. 21:00 - Ungó á
Dalvík, örfá sæti laus. Miðasala
opnuð klukkutíma fyrir hverja
tónleika við innganginn og eru
menn hvattir til að mæta tíman-
lega til að tryggja sér miða.
Kristjana Arnsrímsdóttir
í húminu
Nýr diskur Kristjönu
Ný hljómplata Kristjönu Arngrímsdóttur, íhúminu, kemur út í dag
og er þegar komin í allar betri verslanir. Kristjana heldur útgáfu-
tónleika í Laugarneskirkju í Reykjavík næstkomandi sunnudag, 18.
des. kl. 14. Á plötunni er að finna kyrrðarlög af ýmsum toga, bæði
sálma og aðra tónlist sem róar taugarnar og friðar sálartetrið. Með
sér á plötunni hefur Kristjana valinkunna tónlistarmenn á borð
við Hjörleif Valsson, Jón Rafnsson,Örn Eldjárn Kristjánsson,Tatu
Kantomaa, Örnólf Kristjánsson, Ösp Kristjánsdóttur og Sigurð
Rúnar Jónsson en það var sá síðastnefndi sem sá um upptökur og
eftirvinnslu. Um dreifingu sér Músík ehf. Kristjana segist stefna
að tónleikum norðan heiða eftir áramót en langtímamarkmið sitt
sé að syngja í sem flestum kirkjum landsins. „Ég er að safna kirkj-
um,“ segir Kristjana Arngrímsdóttir söngkona.