Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Page 5
lega slíka áherzlu á stofnun nýrra klúbba með
kjörorðum sínum og markmiðum á hverju ári.
Það er þess vegna, sem Maury Gladman, frá-
farandi forseti KI, setti fram það markmið í
byrjun síns starfsárs fyrir rúmu ári að stofna
500 nýja Kiwanisklúbba um allan heim -
markmið, sem enginn virtist hafa trú á, að
mundi nást. Reyndar náðist þetta markmið
ekki alveg. Nýir klúbbar á starfsárinu urðu
438, sem telja verður afrek út af fyrir sig, þar
sem nýir klúbbar á einu starfsári höfðu áður
orðið flestir 383.
En burtséð frá þvi, hvort merki Maury
Gladmans var náð eða ekki, þá skulum við
aðeins kíkja nánar á það, hvað þetta mark-
mið þýðir. í október í fyrra var fjöldi Kiwanis-
klúbba í heiminum um 7050, þannig að 500
nýir klúbbar þýðir um 7% aukningu í klúbba-
fjölda. Heildarfjöldi Kiwanismanna i októ-
ber í fyrra var 285.813, og sé gert ráð fyrir 25
nýjum félögum á hvern nýjan klúbb, er tak-
markið 12.500 nýir félagar eða 4,4% aukning.
Og hvernig líta þessar tölur út, ef við snúum
dæminu upp á íslenzka umdæmið? Þar voru
klúbbarnir 32 í október í fyrra og heildar-
félagafjöldinn um 1050. Þá þýðir 7% aukning
klúbba 2,2 klúbba og 4,4% aukning félaga
þýðir 46 nýja félaga. Þessu marki höfum við
náð og vel það, svo að ég held, að Maury þurfi
varla að kvarta yfir okkar skerf nú fremur en
endranær.
En nú setti Ólafur, fráfarandi umdæmis-
stjóri, fram það markmið í fyrra að stofna
einn nýjan klúbb á hverju svæði, þ.e. 5 alls,
og 10% aukningu Kiwanisfélaga í um-
dæminu. Og þó að herzlumuninn vantaði var
ekki ýkja langt í það að 5 nýir klúbbar á
starfsárinu yrðu staðreynd. Ég setti líka fram
það markmið í síðasta hefti Kiwanisfrétta
að stofna 4 nýja klúbba á ári næstu árin, og
þá verða íslenzku Kiwanisklúbbarnir orðnir
60 á 20 ára afmælinu 1984.
Hvers vegna setjum við markið svona hátt
hjá okkur? Hvers vegna þurfum við, sem
höfum hlutfallslega um fjórum sinnum fleiri
Kiwanisfélaga en Bandaríkin, heimaland
hreyfingarinnar, og 120 sinnum fleiri en
Kiwanislönd Evrópu, að setja markið allt að
því tvöfalt hærra en aðrir? Erum við ekki
komnir nógu langt? Augsýnilega ekki, því að
annars værum við ekki að þessu. Og hvers
vegna ekki? Vegna þess, að við höfum séð,
að enn vantar nokkuð á það, að Kiwanis-
merkið hafi náð að festa rætur alls staðar,
þar sem skilyrðin eru fyrir hendi. Vegna
þess, að við höfum trú á því, sem við erum
að gera - trú á því, að með stofnun nýrra
Kiwanisklúbba séum við að vinna þarft verk
og í anda Kiwanis. og að síðustu vegna þess,
að við erum fullvissir um það, að unnt sé að
ná þeim markmiðum, sem við setjum okkur -
þetta eru engir loftkastalar eða draumórar.
Þessar eru ástæðurnar fyrir því, að við
setjumst ekki í helgan stein, berjum okkur á
brjóst og segjum við hina: Sjáið, hve langt við
höfum komizt - reynið nú að ná okkur. Og ég
ætla að vona, að til þess komi aldrei - við
megum aldrei þykjast orðnir svo sterkir, svo
góðir, að við þurfum ekki að gera meira. Það
er einmitt vegna þess, að við höfum alltaf
sett okkur mark hærra en aðrir, sem Kiwanis-
hreyfingin á Islandi er orðin eins öflug i dag
og raun ber vitni. Því held ég mig enn við
þau markmið, sem ég hef sett fram áður,
sem sé:
1. Stofnun fjögurra nýja klúbba á starfsárinu.
2. Tíu prósent aukningu Kiwanisfélaga á
árinu.
Sterkir og traustir Kiwanisklúbbar eru
nauðsynlegir, ef byggja á upp þróttmikið
Kiwanisstarf. Því er það að við höfum alltaf
lagt mikla áherzlu á uppbyggingu klúbbanna,
bæði þeirra sem fyrir eru og svo ekki síður
nýrra klúbba, því að við vitum, að víða
Holland House
COCKTAIL MIXES
Einkaumboð:
XCO HF.
Vesturgötu 53 B
Símar: 27979 og 27999
Cocktail blöndur
K-FRÉTTIR
5