Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Blaðsíða 12
bjóða upp á ótal tækifæri til að vinna
þjónustustörf fyrir æskuna, en þau mál hafa
alltaf verið ofarlega á stefnuskrá Kiwanis-
manna síðan hreyfmgin var stofnuð árið 1915.
Einkunnarorð okkar þetta starfsár, „Byggjum
bjartara líf“ kalla á alla Kiwanismenn til
dáða. Og það, sem mest er um vert, er það, að
næstum 300.000 Kiwanismenn standa hlið
við hlið reiðubúnir til að byggja upp betra
samfélag í 68 þjóðlöndum um allan heim.
Við eigum auðvelt með að sjá frá okkar
sjónarhóli í dag, hvers vegna Kiwanishreyf-
ingunni hefur stöðugt vaxið fiskur um hrygg
yfír árin eins og raun ber vitni - hvers vegna
hreyfingin hvetur hugann og fyllir eldmóði þá
menn, sem áhuga hafa á þjónustustörfum.
Kiwanismenn vinna að þjónustustörfum í
tvennum skilningi með því að velja úr þá
einstaklinga, sem hafa vilja til að rétta
samborgurum sínum hjálparhönd, og beina
þeim síðan til þeirra, sem þurfa á hjálp að
halda. Og í þessum heimi í dag, þar sem stórt
hefur svo oft sömu merkingu og betra í hugum
manna, þar sem tæknileg afrek og heimsvið-
burðir láta einsta.klinginn hverfa í skuggann
í sögunni, eru Kiwanismenn að vinna að því,
að einn einstaklingur veiti öðrum hjálpar-
hönd.
Það er þetta, sem leyndardómurinn á bak
við þá staðreynd, að Kiwanis höfðar svo sterkt
til manna - leyndardómurinn, sem gerir
hreyfmguna að stórveldi í heiminum í dag:
Kiwanis fær einn einstakling til að hjálpa
öðrum - án nokkurra spurninga, án nokkurra
skilyrða. Það er þannig, sem Kiwanis hefur
vaxið smám saman. I dag grípa hin jákvæðu
áhrif hreyfingar okkar inn í lífi manna,
kvenna og barna í yfír 7000 héruðum um
víða veröld.
Verkefni okkar á komandi starfsári er að
tryggja áframhaldandi vöxt og viðgang
hreyfingarinnar. Að þessu verkefni vinnum
við með því að leggjast allir á eitt með að ná
markmiðum okkar fyrir starfsárið 1978 -
1979. Já, við höfum sett okkur markmið, sem
því aðeins geta orðið að veruleika, að hver
einstakur Kiwanismaður, hvar í heimi sem er,
einsetji sér að vinna að þeim. Það er slíkur
ásetningur hjá hverjum Kiwanisfélaga, sem
ég treysti á til að komandi starfsár verði eitt
af beztu Kiwanisárum sögunnar.
Hver eru þá markmið ársins. Þau snúast um
þrjú mjög svo mikilvæg atriði.
Menn gera sér ekki alltaf fyllilega ljóst, að
fjölgun félaga og þjálfun þeirra er eitt mikil-
vægasta atriðið í þjónustustörfum okkar.
Þegar þú býður einhverjum virtum samborg-
arar þínum að gerast félagi í Kiwanisklúbbi
þínum, ertu ekki aðeins að gera kúbbnum og
samfélaginu greiða - þú ert einnig að gera
þínum nýja félaga greiða - greiða, sem hann
verður þér þakklátur fyrir.
Nú á dögum leita allir hugsandi menn meir
en nokkru sinni fyrr eftir leiðum til að bæta
það samfélag, sem þeir búa í. Og nú frekar
en nokkru sinni fyrr býður Kiwanis upp á
réttu leiðina fyrir slíka menn. í næsta skipti,
sem þú hittir einhvern, sem þú telur, að geti
orðið góður Kiwanismaður, skalt þú ekki
hika - bjóddu honum að gerast félagi. Með
þvi gerir þú klúbbi þínum, samfélagi þínu
og þínum nýja félaga mikinn greiða, sem þú
mátt vera hreykinn af.
Á sama hátt er stofnun nýrra klúbba spor
í átt að vinna að því markmiði okkar að inna
af ósérplægni af höndum þjónustustörf. Er
hægt að hugsa sér betri gjöf til eins héraðs en
að stofna þar nýjan Kiwanisklúbb? Með því
að hvetja þá menn, sem leita leiða til að þjóna
sínum byggðarlögum, til að stofna nýja
Kiwanisklúbba og aðstoða þá síðan við
starfið, framkvæmir þú dýrmætt og varanlegt
þjónustustarf.
Okkar verkefni, sem aðaláherzla verður
lögð á þetta árið, rétt upphaf - mótunarárin,
er sérlega áhugavert. Að hafa áhrif á ævi
barns - að beina barni á þá braut, sem gerir
það að nýtum og ábyrgum þjóðfélagsþegn -
þetta er aíl, sem enginn kongunur ræður við,
hver sem auður hans eða veldi er. Þessu afli
búum við Kiwanismenn yfir, og við getum
beitt því með því að vinna ötullega að þessu
áherzluverkefni okkar.
Fyrst verðum við að styðja við bak
fjölskyldunnar, sem ennþá býr yfir því afli,
sem mótar afstöðu og metnað barna sinnar.
Áhrif fjölskyldunnar eru reyndar ekki lengur
þau sömu og áður var, og við þurfum að vinna
að því, að þau ytri öfl, sem dregið hafa úr
12
K-FRETTIR