Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Page 8
Markmið Bo Enström,
Forseta Kiwanis Intemational
Europe 1978 - 1979.
Eflum vináttu -
Eflum vináttu innan byggðarlagsins, með öflugu starfi.
Efum vináttu innan Kiwanis til að skapa öfugra starf
Skýringar Bo Enströms, forseta KIE, á markmiðum starfsársins 1978 - 1979.
Fyrsta markmiðið:
Eflum vináttu innan byggðarlagsins, með
öflugu starfi.
I þjóðfélagi nútímans er það oft svo, að
sjálfselska er ráðandi þáttur í fari manna. Það
er ekki fátítt að við sem einstaklingar, i önn
og streitu daglegra starfa, eigum aðeins tíma
fyrir okkur sjálfa. Það sem gildir er aðeins
okkar eigin árangur og hamingja. Auðvitað
höfum við skyldur gagnvart sjálfum okkur og
fjölskyldum okkar, en við ættum aldrei að
gleyma þeim, sem af margvíslegum ástæðum
njóta ekki sama árangurs og hamingju og við.
Það eru margir einstaklingar og hópar, sem
örlögin eða samfélagið hafa gleymt. Sú hætta
er fyrir hendi, að þessu fólki finnist það lifa
í óvinveittum heimi. Þetta fólk rekst á af-
skiptaleysi og skilningsleysi á vandamálum
sínum. Þetta kann að skapa úlfúð og jafnvel
árásargirni gagnvart umheiminum.
Kiwanisklúbbur er mjög góður vettvangur
til að beina athygli að og veita þjónustu
slíkum einstaklingum og hópum þeirra. Ef
Kiwanisklúbbur lætur sér annt um þá, má
ætla að þeir finni samúð og vináttu. Við
Kiwanismenn getum á okkar takmarkaða
hátt, lagt fram okkar skerf til þess að efla
vináttubönd innan samfélagsins. Með slíku
starfi getum við EFLT VINÁTTU. Ekki
aðeins milli klúbbsins og þessa fólks, heldur
einnig, og þetta er mikilvægt, milli þessa fólks
og samfélagsins.
Annað markmiðið:
EFLUM VINÁTTU innan Kiwanis, til að skapa
öflugra starf.
Mikilvægasta markmið Kiwanis er, að hafa
athafnasama klúbb. Grundvallarskilyrði
fyrir athafnasömum klúbbi er vinátta og
góður félagsskapur. Hver klúbbfélagi er
hlekkur í keðju, þátttakandi í hópstarfi.
Allir Kiwanismenn eru önnum kafnir og
hafa takmarkaðan tíma til að vinna að mann-
úðarmálum í frítíma sínum. Við viljum samt
gera eitthvað á þessu sviði. Ef þú vinnur að
slíku sem einstaklingur, má vera að starfið
verði án þýðingar fyrir þann, sem nýtur þess.
Starfið verður of takmarkað, vegna of lítils
tíma. Ef hópur slíkra manna, sameinaðir í
Kiwanisklúbbi, deila með sér áhuganum á
slíku starfi, verður árangurinn margfaldur og
mikilvægur fyrir þann, sem nýtur. Það er
þetta, sem er hugmyndin á bak við Kiwanis-
klúbbinn.
Til þess að tryggja, að slíkt hópstarf beri
árangur, verðum við allir að vera góðir vinir.
Allir klúbbfélagar verða að þekkja hver annan
vel. Við verðum að skilja og virða mismunandi
sjónarmið hvers annars. Eftir á að hyggja,
við eigum allir sömu markmiðin, markmið
Kiwanis. Kiwanisklúbbur er hópur vina en
Kiwanis er ekki aðeins vinahópur í byggðar-
lagi sínu. Kiwanis er bundið héruðum, þjóð-
löndum og er, umfram allt alþjóðlegur vina-
hópur. Með sambandi við Kiwanismenn úr
8
K-FRÉTTIR