Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Qupperneq 15
Frá Nesklúbbnum
Félagar Nes-klúbbsins á Seltjarnarnesi
hafa á liðnum árum einkum aflað fjár til
styrktarverkefna mð sölu flugelda. Hefur
flugeldasalan verið klúbbnum dágóð tekju-
lind öll árin frá stofnun hans árið 1971.
Á klúbbfundi í ársbyrjun ’78 kom fram
tillaga um að klúbbfélagar gerðu tilraun með
fisksölu á Nesinu til fjáröflunar. Var þetta
reynt 14. janúar og óku félagar klúbbsins
milli húsa og buðu til sölu splunkunýja,
slægða og hausaða línuýsu, pakkaða í plast-
poka, 3 - 4 stk í poka. Reyndist Nesbúum
þetta hin kærkomnasta þjónusta og klúbbn-
um þokkalegur ábati. Er það mál manna, að
ámóta ferskt hráefni hafi ekki borist í potta
í byggðarlaginu eftir að róðrar voru þar af-
lagðir, enda ýsan aðeins nokkurra klukku-
stunda gömul, er hún barst í hendur neytenda.
Er skemmst frá því að segja að síðan hafa
bæst við fjórir fisksöludagar, tveir s.l. vetur,
og tveir í haust og áfram verður haldið.
Fisköílunin hefur verið einna erfiðasti þátt-
urinn í málinu, því ekkert var vitað um, hvort
nokkuð væri að hafa til sölunnar hverju sinni,
fyrr en bátar þeir, sem við höfum átt viðskipti
við, höfðu lokið við að draga línuna hverju
sinni. Fiskinn hafa klúbbfélagar sótt suður
með sjó á föstudagskvöldum og hefur verið
gert að honum strax við komuna til baka í
fiskvinnslustöðvum á Nesinum. Hafi eigend-
ur þeirra bestu þakkir fyrir afnot okkar af
stöðvunum án endurgjalds. Árla morguns
daginn eftir hefur fiskinum síðan verið
pakkað og salan hefur hafist upp úr kl. 10.
Að jafnaði hafa milli 15 og 20 félagar
tekið þátt í þessu starfi og hafa allir haft hina
mestu ánægju af. Starfið hefur unnist mjög
vel, því margir félaganna eru vanir fiskað-
gerð frá fyrri árum.
Með Kiwaniskveðju,
Jón Þ. Ólafsson
ritari fisksölunefndar
K-FRÉTTIR 15