Kiwanisfréttir - 01.12.1978, Síða 17
Var nú sezt að þríréttuðum hádegisverði,
veizlukosti með rósaveigum og lauk teitinu
með því, að Hjörtur Þórarinsson úr Jöklum
kvað alla undir borð.
Þingfundur hófst aftur kl. 14 með því að
Eyjólfur Sigurðsson flutti itarlega skýrslu um
störf K-Dags nefndar og lagði fram tillögu
um ráðstöfun söfnunarfjársins, sem var á þá
leið að 2 milljónir rynnu til Geðdeildar
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri, hálf
milljón til byggingar _ fyrir þroskahefta,
vangefna og geðsjúka á ísafirði, 12.5 milljón
verið ráðstafað af umdæmisstjórn, eftir ítar-
lega könnun, til frekari uppbyggingar á
vernduðum vinnustað eða til byggingar aftur-
bataheimilis, sem fyrirhugað er að koma upp
af Geðverndarfélagi íslands. Þessi tillaga var
samþykkt eftir nokkurar umræður.
Bjarni B. Ásgeirsson, formaður laga-
nefndar umdæmisstjórnar, hafði framsögu
um lagabreytingar. Er ekki að orðlengja, að
allar tillögur laganefndar voru samþykktar
með einni breytingu er varðar svæðisráð og
svæðisráðsfundi og kjör á kjörsvæðisstjórum.
Umdæmislögin verða prentuð í næsta félaga-
tali Kiwanishreyfingarinnar, sem nú er í
prentun. Formaður laganefndar skýrði einnig
breytingar á lögum Evrópusambands
Kiwanis, KIE, sem heimila klúbbum að hafa
þrjá flokka meðlima, það er virka meðlimi,
heiðursmeðlimi og öldunga, sem er nýmæli.
Hilmar Daníelsson, kjörumdæmisstjóri,
ávarpaði þingheim og þakkaði traust sér veitt
með kosningu sem kjörumdæmisstjóri og
skýrði frá því, að hann myndi njóta Arnórs
Pálssonar, Kiwanisklúbbnum Eldey, sem fé-
hirðis á sínu starfsári og Kjartans B.
Kristjánssonar, Kiwanisklúbbnum Kaldbak
og fyrrverandi svæðisstjóra, sem umdæmis-
ritara.
Að síðustu flutti Þorbjörn Karlsson, kjör-
umdæmisstjóri, ávarp til þingheims og
umdæmisstjóri Olafur Jensson sleit þinginu
með stuttri en snjallri ræðu.
Vígsluhátíð
í Grímsey
Strætisvagnar Grímseyjar sáu um fólks-
flutninga.
K-FRÉTTIR
Kynnir með gjallarhorn.
17