Kiwanisfréttir - 01.08.1985, Page 27
Gæði og þjónusta sem þú getur treyst
Við hjá B.M. Vallá hf. leggjum
áherslu á vandaða vöru og skjóta
og örugga þjónustu; strangt
gæðaeftirlit, fullkominn tækja-
kostur og þaulvanir starfsmenn
leggjast þar á eitt.
Fullkomið
framleiðslueftirlit
Við starfrækjum eigin rann-
sóknarstofu sem hefur með
höndum reglubundið eftirlit og
rannsóknir á öllum þáttum fram-
Ieiðslunnar, allt frá hráefni til
fullhrærðrar steypu. Enn fremur
hefur byggingarverkfræðingur
okkar náið samstarf við aðra
sérfræðinga í framleiðslu og
meðhöndlun steinsteypu og
stöðugt er fylgst með nýjungum
á því sviði.
Þjónusta í fyrirrúmi
Fullkomin og afkastamikil
blöndunarstöð og traustur bíla-
floti gera okkur kleift að afhenda
steypuna á réttum tíma á bygg-
ingarstað; skjót og örugg
afhending sparar þér tíma og
peninga.
Breytingar í steypu-
framleiðslu
I kjölfar alkalískemmda sem
fyrst komu í ljós árið 1976 voru
settar strangar reglur í bygginga-
reglugerð til að koma í veg fyrir
slíkar skemmdir í framtíðinni,
öll steypuframleiðsla okkar er í
samræmi við þessar reglur.
Rannsóknir á vegum Stein-
steypunefndar sýna, að hættan
á alkalískemmdum er ekki
lengur fyrir hendi eftir að
íblöndun kísilryks í sement
hófst og notkun fylliefna var
breytt.
Steinsteypa er því í dag sá val-
kostur húsbyggjenda sem best
hæfir íslenskri veðráttu
og aðstæðum.
Steinsteypa er fjárfesting
- til frambúðar.
Við hjá B.M. Vallá hf. bjóðum
þér þjónustu okkar.
B.M. VAUÁ'