Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Page 4
J|fy|) Viðtal við Evrópuforseta
„Mérfannst nafnið KIWANIS
ákaflega dularfullt“
Ævar Breiðfjörð Evrópuforseti í viðtali við K-fréttir
Segðu mér frá þér sjálfum.
Hvaðan kemur þú og konan
þín? Fjölskylduhagir o.þ.h.
Ég er fæddur lýðveldisárið 1944
í Reykjavik og ólst upp í Vestur-
bænum og í Bústaðahverfinu. Ég
á sjö systkini, þijá bræður og fjórar
systur. Foreldcir mínir, sem bæði
eru látin voru þau Kenneth Breið-
fjörð, lengst af verkstjóri hjá Eim-
skip, og Sigfríð Breiðfjörð hús-
móðir.
Á uppvaxtarárum mínum var
mikið líf og fjör enda fjölskyldcm
stór. Sem strákur fór maður fljótt
að vinna við ýmis sendlastörf með
skólanum og það þótti sjálfsagt að
leggja sitt af mörkum í þeim efn-
um.
Sem unglingur var ég svo lán-
samur að fá sendlastarf hjá Agli
Guttormssyni stórkaupmanni,
miklum öðlingsmanni og fjölskyldu
hans og hjá þvi fýrirtæki starfaði
ég yfir 25 ár, síðast sem sölustjóri.
Ég hef alltaf sagt að árin hjá því
fýrirtæki voru mér sem besti skóli,
þar lærði ég margt sem ég bý að
enn í dag.
Konan mín er Ásta Guðjóns-
dóttir, Reykvíkingur í húð og hár.
Við eigum þijú börn, elst er Helen,
nemi í félags- og afbrotafræði við
Háskóla íslands, Kenneth nemi í
Verzlunarskóla íslands ogyngstur
er Ævar Örn, nemi í grunnskóla.
Fyrir tæpum 10 árum stofn-
uðum við hjónin fýrirtæki okkar,
STÍLVOPN hf., sem sér fýrirtækjum
og stofnunum fyrir allskyns
rekstrarvörurm. Við rekum einnig
fjölritunarþjónustu og sjáum um
frágang skýrslna og annarra
fundargagna.
Segðu mér frá ferli þínum
innan Kiwanis og ástæðu
þess að þú gefur kost á þér í
embætti Evrópuforseta.
Fýrir rúmum tuttugu árum síð-
an fékk ég kynningarbréf þar sem
Kiwanishreyfingin á íslandi var í
þeim hugleiðingum að stofna Kiw-
anisklúbb sem tengdur yrði við Ár-
bæjarhverfið. Mér fannst innihald
bréfsins áhugavert en hafði satt
best að segja ekki hugmynd um
hvað Kiwanis væri. Þegar ég rifja
þetta upp nú kemur upp í hugann,
að mér fannst nafnið KIWANIS
ákaflega dularfullt, en á fundinn
fór ég ásamt nokkurm félögum
mínum. Það er skemmst frá því
að segja að eftir þennan fyrsta fund
fannst mér það spennandi við-
fangsefni og beinlínis forréttindi að
fá að taka þátt í svo virtum félags-
skap.
Þeir menn sem sátu í forsæti við
stofnun klúbbsins voru okkur ný-
græðingunum afar hjálplegir á alla
lund og ég segi það fullum fetum
að þegar vel er staðið að klúbb-
stofnunum þá verður afraksturinn
eftir því.
Kiwanisklúbburinn Jörfi var
svo vígður í apríl 1975 og var ég
vígsluforseti hans. Eftir fyrsta
starfsárið var boltinn farinn að
rúlla, ef svo má að orði komast.
Kiwanis átti hug minn allan og ég
kunni því vel að vera á kafi í félags-
málum. Snemma á ferlinum tók
ég sæti í umdæmisstjórn og hef
gegnt mörgum störfum innan
hreyfingarinnar. Það má segja að
Ævar og Asta á stjórnarskiptum hjá umdæminu 24. sept. sl.
4
KIWANISFRÉTTIR