Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 13

Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 13
Fréttir úr klúbbstarfinu stóð klúbburinn ásamt Sinawik- konum fyrir grimudansleik á hóteli staðarins að lokinni þrettánda- hátíð, þar sem verðlaun voru veitt íyrir bestu búningana. DÓMARAR 28. janúar hélt íþróttafélagið Snerpa sitt árlega þorramót í Boccía og hafa félagar í Skildi sett sitt mark á það mót með því að sjá umdómgæslu. Hafa þeir nú fengið afhent dómaraskírteini frá íþróttasambandi fatlaðra fyrir störf sín. FJÁRAFLANIR í byrjun desember gengu klúbbfélagar í hús og seldu íbúum bæjarins konfekt. Að venju var vel tekið á móti gotterísmönnunum og söfnuðust 150.000 krónur í líknar- og menningarsjóð. Sala á fugeldum um áramótin með Björgunarsveitinni Strákum er öflug fjáröflun klúbbsins og nam hlutur hvors aðila nú í þeirri sölu 300.000 krónum. FÉLAGSAÐSTAÐA KLÚBBSINS Aðstaða klúbbsins að Aðalgötu 8 Siglufirði er klúbbnum til fyrir- myndar þó ég segi sjálfur frá og á þessu starfsári hefur fundar- höldum klúbbsins fjölgað þar mjög. Þetta kallar á öfluga og duglega húsnefhd og hefur hún svo sannanlega staðið undir þeim væntingum, með fjölbreyttum mat- seðli og öðrum viðurgjörningi. Fé- lagasamtök og eintaklingar hafa einnig átt þess kost að leigja að- stöðu klúbbsins til fundarhalda og annarra samkvæma. FERÐ ELDRI BORGARA Rútuferð fyrir eldri borgara var farin á síðastliðnu sumri. Að þessu sinni var ekið austur til Húsavíkur, í himnesku veðri, þar fengnir leið- sögumenn og ekið um svæðið. Til dæmis var staldrað við Goðafoss og dansað þar við harmonikku- undirleik Óla Björnssonar. Útgáfa símaskrár fyrir Siglu- fjörð og Fljót er sú leið sem klúbb- urinn fer til að fjármagna þessa ferð. HEIMSÓKNIR Félagar úr Skildi fóru skemmti- lega ferð 14. október á sam- eiginlegan fund sem haldinn var á Dalvík. Um var að ræða fund Drangeyjar og Skjaldar frá Grettissvæði og Súlna og Hrólfs frá Óðinssvæði. KÖTTURINN SLEGINN ÚR TUNNUNNI Sinawikkonur með aðstoð Kiwanismanna kiýndu tunnukóng nú á öskudaginn, við fjölmenna þátttöku barna. STJÓRN KLÚBBSINS Starfsárið 1994-1995 á þvi ári sem klúbburinn verður 24 ára er stjórn hans skipuð á eftirfarandi hátt: Forseti: Bragi J. Ingibergsson Kjörforseti: Valbjörn Steingrimsson Ritari: Magnús S. Jónasson Féhirðir: Birgir Björnsson Erl. ritari: Steinar Baldursson Meðstjónendur: Hilmar Ágústsson og Árni Skarphéðinsson Fyrrv.forseti: Guðm. Davíðsson. Kveðja Ólafur Þór Ólafsson fjölmiðlafulltrúi Skjaldar liinnusláttur að hefjast Dans- og harmonikkusveifla í ferð aldraðra KIWANISFRETTIR 13

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.