Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 8
Fréttir úr klúbbstarfinu
KIWANISKLÚBBURINN
KIRKJUFELL
Kiwanisklúbburinn Kirkjufell
var stofnaður 26. september 1993
í Grundarfirði. Móðurklúbbar eru
Esja Reykjavík og Korri Ólafsvík.
Forseti klúbbsins er Margrét Frí-
mannsdóttir sem hefur verið
forseti frá upphafi. Félagareru 14
í dag en unnið er að fjölgun félaga
með kynningu á klúbbnum, t.d.
var þorrinn kvaddur 18. febrúar sl.
og mættu þar 30 manns, bæði
félagar og gestir.
Mikið fjör var á þessum þorra-
fundi eins og sjá má á þessum
myndum, hið grundfirska tríó á
kannski eftir að hrella landann,
hver veit?
Fjáraflanir hafa verið þær að
seldur var jólapappir fyrir jólin og
fréttablaðið Þeyr var borið út hér í
allan vetur.
Styrktarverkefni á þessu ári
voru smá en komu sér mjög vel.
Fyrst má nefna styrk til fjölskyldu
vegna veikinda barns, styrk til að
kaupa hljóðkerfi fyrir heyrnaskerta
í samkomuhúsið hér í bæ og einnig
er ráðgert að gefa börnum fæddum
1988 reiðhjólahjálma og er ætlunin
að hafa það árvisst verkefni.
Grundarfirði, 22.03.1995
Birna Guðbjartsdóttir,
blaðafulltrúi.
Þorrinn var kvaddur þann 18. febrúar sl. þar sem 30 manns skemmtu sér
konunglega.
frh. af bls. 7
Um karla og konur
í Kiwanis
karlaklúbbunum út af fyrir sig.
Lokaspurning min er, hvort ekki sé
tími til kominn að hugsa þetta mál
upp á nýtt? Getum við í rauninni
leyft okkur að segja nei? Ég er sjálfur
farinn að efast um það eins og
málum er háttað í dag. Verðum við
ekki að fara að endurskoða starfsemi
gömlu kiúbbana svo þeir endurnýi
sig með eðlilegum hætti og gefa þá
yngri mönnum aukin tækifæri, því
það er mín skoðun að gömlu klúbb-
arnir séu komnir með allt of háan
meðalaldur. Ég hef enga patentlausn
fram að færa, hvernig endurnýjun
gömlu klúbbanna skuli framkvæmd,
en með aukinni umræðu gætum við
kannski komist að jákvæðri niður-
stöðu. Ég held að við verðum að
vinna meira innan frá og gera klúbb-
starflð skemmtilegra en það má ekki
kosta of mikið því ungt fólk treystir
sér ekki til að greiða há árgjöld og
fundarkostnað. Lausnin er kannski
fólgin í meiri og öflugri kynningu. Ég
held að við látum ekki nógu mikið í
okkur heyra. Við erum kannski ekki
nógu fjölmiðlaglaðir - eða hvað?
Með Kiwaniskveðju,
Hrafn Sveinbjörnsson,
kjörforseti Búrfells.
8
KIWANISFRETTIR