Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 15

Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 15
Fréttir úr klúbbstarfinu KIWANISKLÚBBURINN SÓLBORG Vetrarstarf okkar hefur veirð fjölbreytt. Á fundi 24. nóvember fengum við Odda Erlingsson sálfræð- ing til að halda íyrirlestur um streitu og afleiðingar hennar. Við fórum 9 fél- agar klúbbsins í heimsókn til Kiwanisklúbbsins Jörfa í Reykjavík. Þann 10 des- ember buðum við mökum okkar í jólahlaðborð með kínversku ívafi sem tókst mjög vel. Haldin var jóla- skemmtun fyrir börnin okkar og flutti þar séra Einar Eyjólfsson hug- vekju. Þangað komu líka tveir jólasveinar sem skemmtu börnunum og leystu þau út með gjöfum, sem voru stór, safarík og rauð epli. Uppstillinganefnd Kiw- anisklúbbsins Sólborgar hefur valið Emelíu Dóru Guðbjartsdóttur til kjör- forseta og óskum við henni velfarnaðar í starfi. Eftir áramót var farið á fullt að undirbúa vígslu- hátíðina sem fram fór 11. febrúar sl.. Þar var margt um manninn og voru Kiw- anisfélagar, makar og aðrir gestir 104. Veislustjóri var Hafsteinn Sigmundsson úr Jörfa og stóð hann sig með prýði. Klúbbnum voru færðar margar gjafir sem forseti klúbbsins Oddný Ríkharðsdóttir veitti móttöku. Fjölda- söngur var undir dyggri stjórn Hans Hafsteins- sonar, forseta móður- klúbbsins Hraunborgar í Hafnarfirði. Síðan var létt glens og þar á eftir stiginn dans. Að ílestra mati ef ekki allra þótti vigslan tak- ast jög vel. Við í Kiwanis- klúbbnum Sólborgu þökk- um öllum sem veittu okk- Sólborgarfélagar ur þá ánægju að vera við vígsluna og vonum að þeir hafi skemmt sér eins vel og við. Einnig þökkum við góðar gjafir og hlýhug sem klúbbnum var sýndur. Með bestu Kiwani skveðj u m, Svanhildur Guðlaugsdóttir blaðafulltrúi. Oddný Ríkharðsdóttir og Hans Hafsteinsson, forseti móðurklúbbsins Hraunborgar Grétar J. Magnússon festir merki í forseta Sólborgar Oddnýju Ríkharðsdóttir, eiginmaður hennar Jakob Guðnason og fleiri gestir. Oddný færir gestum fána klúbbsins. Frá hægri: Grétar Jón Magnússon, Sigurður Axelsson, Hans Hafsteinsson, Guðmundur Gunnarsson, Ríkharð Jónsson og Hörður Helgason KIWANISFRÉTTIR 15

x

Kiwanisfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kiwanisfréttir
https://timarit.is/publication/1265

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.