Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Blaðsíða 6
Viðtal við Evrópuforseta
gamla vini og ef til vill að kynnast
nýjum.
Á þessu þingi mun Eyjólfur
Sigurðsson taka formlega við sem
heimsforseti. Fyrir hönd Evrópu-
sambands Kiwanis færi ég þeim
hjónum Eyjólfi og Sjöfn bestu óskir
um velfarnað í starfi.
Hver er staða
Evrópusambandsins í dag og
eru einhverjar breytingar í
náinni framtíð?
Á Evrópuþinginu í Nice '93 var
samþykkt að marka nýja stefnu
fyrir Evrópusambandið og eftir
þeirri stefnu hefur verið unnið.
Á því þingi var skipuð nefnd
þriggja manna undir forsæti Eyj-
ólfs Sigurðssonar og var hlutverk
nefndarinnar að koma með drög að
nýju framtíðarplani sem lagt var
íýrir á Evrópuþinginu í Innsbruck
í iýrra.
Þingið samþykkti markmið í 12
liðum um framtíð Evrópusam-
bandsins til að vinna eftir. Jafn-
framt var á því þingi skipuð önnur
þriggja manna nefnd undir forsæti
Eyjólfs og var henni falið að koma
með drög að nýjum Evrópulögum
byggða á þessum 12 markmiðum.
Þau verða send í alla klúbba á
næstu dögum ásamt drögum að
lögum sem austurríska umdæmið
hefur lagt fram. Þessi lagadrög
verða lögð fyrir Evrópuþingið á
íslandi í sumar.
Það er mat margra að Evrópu-
þingið hér í sumar muni marka
ákveðin þáttaskil, þ.e.a.s. ef lög
nefndarinnar verði samþykkt, þó
svo að ég hafi kosið að kaflinn um
fjölda stjórnarmanna Evrópusam-
bandsins yrði með öðrum hætti.
Að lokum er það von mín að
sem flestir klúbbar í umdæminu
Ísland-Færeyjar sendi fulltrúa til
þings og taki þátt í að móta stefnu
Evrópusambands Kiwanis.
Heimsforseti Ian og Evrópuforseti Ævar
Dagskrá 28. Evrópuþings Kiwanis
2.-4. júní 1995
í Reykjavík
FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ
09.00 -16.00 Afhending þinggagna (Hótei Saga)
14.00 - 15.00 Kynning á málefnum Evrópuþings (Borgarleikhús)
15.15 - 17.30 Setning 28. Evrópuþings Kiwanis (Borgarleikhús)
18.00 - Móttaka hjá borgarstjóra (Ráðhús)
LAUGARDAGUR 3. JÚNÍ
09.00 - 14.00 Þingstörf (Borgarleikhús)
14.00 - 16.00 Léttur málsveröur (Borgarleikhús)
19.00 - 02.00 Gala dinner / dansleikur (Perlan)
Ef þátttaka á þinginu á föstudag verður meiri en sæti í Borgarleikhúsi ráða við
verbur dagskráin færb í Háskólabíó. Gert er ráö fyrir að makar sitji vib
setningarathöfn þingsins.
Gala dinner verður á tveimur efstu hæðum Perlunnar og að loknum dinner fara
gestir niður á neðstu hæð þar sem hljómsveit leikur fyrir dansi.
Á laugardag verður sérstök dagskrá fyrir maka þ.e. skobunarferb, tískusýning og
léttur hádegisverbur.
ÞINGNEFND 28. EVRÓPUÞINGS KIWANIS
6
KIWANISFRÉTTIR