Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Side 10
Fréttir úr klúbbstarfinu
KIWANISKLÚBBURINN
ÞYRILL
Kiwanisklúbburinn Þyrill,
Akranesi, heldur um þessar
mundir hátíðlegt að 25 ár eru liðin
frá stofnun klúbbsins en hann var
stofnaður 26,janúar 1970 af Kiw-
anisklúbbnum Heklu og vígður 2.
mai 1970. Af þrjátíu félögum sem
taldir eru stofnendur eru enn sex-
tán starfandi í Kiwanishreyfing-
unni.
Þyrilsfélagar hafa látið ýmis
framfaramál á Akranesi til sín taka
á undanförnum árum, og veitt
umtalsverðum fjármunum til
margvíslegra verkefna, t.d. gefið
bifreið til sambýlis fjölfatlaðra á
Akranesi, tæki til Sjúkrahúss
Akraness og á Dvalarheimilið
Höfða, tæki i grunnskólana á
Akranesi og byggt upp vitann að
Breiðinni. Einna stærsta verkefnið
var að kaupa kútter Sigurfara frá
Færeyj-um 1974 og gefa hann
Byggðasafninu á Görðum.
Aðal fjáröflun klúbbsins hefur
verið sala flugelda.
Að þessu sinni veitti klúbb-
urinn sjö aðilum gjafir sem hér
segir:
1. Sambýli fjölfatlaðra á
Akranesi 700.000,- vegna kaupa
á lyftubúnaði í nýja bifreið heimil-
Umdæmisstjóri, Grétar Magnússon, afhendir forseta Þyrils, Ármanni Ármannssyni,
gestabók að gjöf frá umdæminu á afmælishátíðinni
isins.
2. Sumar-
búðir fatlaðra í
Holti Borgarfirði
kr. 100.000,-
3-4.Björgun-
arsveitin Hjálp-
in Akranesi, og
hj álparsveit
skáta Akranesi
fengu hver um
sig GPS-stað-
setningartæki að
á 1 1 |G5l ( L
J f f
Formaður styrktarnefndar, Jóhannes K. Engilbertsson, við
bifreið sambýlis fjölfatlaðra, en lyftuna í bifreiðna gáfu
Þyrilsfélagar.
Forseti Rótarýklúbbs Akraness, Guðmundur P. Jónsson,
afhendir forseta Þyrils fána Rótaýklúbbsins að gjöf á
afmælisfundinum.
verðmæti kr.
160.000,- hvort
tæki.
5. Dvalar-
heimilið Höfði
fékk hljóðbylgju-
tæki að verðmæti
kr. 190.000,-
6. Þjótur,
íþróttafélag fatl-
aðra Akranesi kr.
120.000,- til
kaupa á
búningum fýrir félags-menn sína.
7. Samstarfsnefnd Kiwanis-
klúbbsins Þyrils Akranesi og Sina-
wik Akranesi kr. 100.000,- vegna
hönnunarstarfs á útivistarsvæði
klúbbsins í nágrenni Akraness, en
þar hefur verið lögð töluverð vinna
í skógrækt á undanförnum árum
af Þyrilsfélögum og Sinawik-
konum.
Samtals eru þessar gjafir
að verðmæti kr. 1.530.000,-
10
KIWANISFRETTIR