Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Side 11
Afhending gjafanna fór fram
föstudaginn 27.01.’95 á fundi er
haldinn var í húsnæði Kiwanis-
klúbbsins Þyrils kl. 20.00 að við-
stöddum umdæmisstjóra, svæðis-
stjórum, bæjarstjóra og bæjar-
ráðsmönnum, fyrrverandi Þyrils-
félögum (stofnendum) og fulltrúum
Lions og Rotary.
Klúbbnum bárust góðar gjafir,
og er ítrekað þakklæti fyrir þær.
Umdæmisstjórnarfundur
í tilefni 25 ára afmælis Þyrils
hélt umdæmisstjórn íslenska um-
dæmisins og Færeyja fund hér á
Akranesi, á laugardeginum þar
sem svæðisstjórar fluttu skýrslur
úr sínum svæðum.
Jöklafélagar gáfu málverk af Eiríksjökli. Sigurður Sigfússon og Bernhard
Jóhanesson ásamt forseta Þyrils, Ármanni Ármannsyni.
' pYKlLL
Þjónusta í fyrirrúmi
í aldarfjórðung
Þyrilsfélagar geta sagt með
stolti: Þjónusta í fyrirrúmi í aldar-
fjórðung.og hafda þvi áfram undir
kjörorðinu við byggjum og stönd-
um dyggan vörð um okkar sam-
félag, okkar bæ.
í Kiwanis verður hver og einn
meðvitaðri um sitt samfélag og
þarfir samborgarana. Vonandi
verður starfsemi klúbbsins eins
heilladijúg um ókomin ár eins og
á þeim sem liðin eru, og klúbbur-
inn haldi áfram að láta gott af sér
leiða.
Umdæmisstjóri býður tvo nýja Þyrilsfélaga, Eirík og Alexander Eiríkssyni velkomna
í hreyfinguna.
Markmið Umdæmisstjórnar 1994-1995 * Að bæta virkni starfandi klúbba. * Að fjölga félögum. * Að fjölga klúbbum. * Að Qölga byggjendaklúbbum. * Að stuðla að framgangi söfmmar vegna Joð-verkefnis (IDD) * Að vinna að málefnum barna undir kjörorðunum „Börnin fyrst og fremst“. * Að vinna að undirbúningi K-dags, sem verður í október 1995 undir kjörorðunum „Gleymum ekki geðsjúkum".
KIWANISFRETTIR
11