Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 16
KIWANISKLÚBBURINN
HÖFÐI
Við Höfðafélagar byrjuðum
starfsárið með stjórnarskiptafundi
1. október. Var fundurinn haldinn
á sveitarkránni Ásláki í Mosfells-
bæ. Að vonum ríkti þarna ágætis
kráarstemmning með öllu þvi sem
henni tilheyrir. Þeir Sigurður Sig-
marsson svæðisstjóri og Páll
Skúlason kjörsvæðisstjóri sáu um
stjórnarskiptin af miklum mynd-
arskap, þó aðstaðan fyrir þá athöfn
væri ekki uppá það allra besta. Við
þetta tækifæri heiðraði fráfarandi
forseti sjö félaga fyrir 100% mæt-
ingu á síðasta starfsári.
Það urðu mikil umskipti í starfi
Höfða 6. október síðastliðinn
þegar við fengum inni að Engjateigi
11 með fundina okkar. í þijú ár
vorum við með alla okkar aðstöðu
og fundi að Hverafold 3. Ástæða
þess var sú að ekki var pláss fyrir
okkur í gamla Kiwanishúsinu í
Brautarholti. Af þessum sökum
fannst okkur við vera of lítið í
tengslum við hina klúbbana á
höfuðborgarsvæðinu. Þetta við-
horf hefur nú breyst mikið og
menn finna sig vel heima þegar
þeir koma í Engjateig. 11.
Klúbbstarfið hefur gengið vel og
fundarsóknveriðgóð. Þökkumvið
það ekki síst nýjum fundarstað.
10. desember héldum við okkar ár-
lega jólafund ásamt eiginkonum.
Þessir fundir eru ætið hin besta
skemmtun þar sem saman fer al-
vara og grín. Skemmtiatriði eru
öll heimatilbúin og flutt af klúbb-
félögum og konum þeirra. Flutn-
ingur jólahugvekju er fastur liður
á þessum fundum. Að þessu sinni
var hún flutt af frú Emilíu S.
Emilsdóttur, en hún er gift inn í
klúbbinn eins og sagt er stundum.
Fyrir jólin færðu Höfðafélagar 8
fjölskyldum veglega matarpakka.
Þessar fjölskyldur voru valdar úr
þeim stóra hóp sem leitaði aðstoð-
ar kirkjunnar fyrir þessi jól. Það
var okkur mikil ánægja að geta létt
byrðarnar hjá þessu fólki.
Milli jóla og nýárs unnum við í
flugeldasölu og gekk hún vel. Flug-
eldasalan er oðin fastur liður í fjár-
öflun klúbbsins og þeirra stærst.
Sæmundur Sæmundsson fyrr-
verandi umdæmisstjóri kom á
almennan fund 19. janúar. Færði
hann klúbbnum viðurkenningu
sem frábær klúbbur starfsárið
1993-1994. Við þetta tækifæri
þakkaði hann Sigurði Pálssyni,
umdæmisritara sínum, frábær
störf og gott samstarf. í ræðu sinni
þakkaði hann og öðrum félögum
fyrir gott samstarf á líðnu starfsári.
Á þennan sama fund mætti
Svavar Kristinsson hjá Þjóðráð.
Kynnti hann fýrir fundarmönnum
hvernig fyrirtæki hans vinnur að
og skipuleggur fjáraflanir fýrirhin
ýmsu líknarsamtök og félög.
Dagana 3.-5. febrúar var þorra-
blót Höfða haldið að Svignaskarði
í Borgarfirði. Þessi fjölskylduferð
tókst með miklum ágætum enda
lék veðrið við mannskapinn. Farið
var í gönguferðir um nágrennið og
leikið sér á snjósleðum. Á laugar-
dagskvöldið gerði mannskapurinn
þorramatnum og öðru tilheyrandi
góð skil. Þar á listakokkurinn í
klúbbnum Hjörleifur Jónsson,
heiður skilinn fyrir frábæran mat.
Kiwanisumbæmib
ísland - Færeyjar
Engjateigi 11, Reykjavík
Sími 588 3636
Fax 588 0036
Sæmundur Sæmundsson afhendir Guðjóni Magnússyni fyrrverandi forseta
viðurkenningu sem frábær klúbbur starfsárið 1993-1994
16
KIWANISFRETTIR