Kiwanisfréttir - 01.04.1995, Qupperneq 19
Frá laganefnd
Lagakrókurinn
SPURT O G SVARAÐ UM KIWANIS
Spurning:
Ætti Kiwanisklúbbur að
vera með sama styrktarverk-
efnið ár eftir ár og þar með
binda hendur komandi stjórna
klúbbsins?
Svar:
Klúbbmeðlimir ættu að meta
gildi og þörfina fyrir öll lang-
tímaverkefni. Menn ættu ekki að
velkjast í vafa um gildi verkefna
eins og stuðningi við íþróttir
barna, sumarbúðir íyrir börn,
björgunarsveitir eða aldraða
borgara. En of mörg langtíma-
verkefni geta virkað sem hemill
á frumkvæði komandi stjórna. Ef
upp koma spurningar varðandi
framhald ákveðinna verkefna frá
ári til árs, ætti að ræða þær á
almennum klúbbfundi.
Spurning:
Á að veita stjórnarmönnum
mætingarviðurkenningu fyrir
að mæta á reglulegum stjórn-
arfundi, eða eingöngu öðrum
klúbbfélögum sem mæta á
stjórnarfund?
Svar:
Allir klúbbmeðlimir sem mæta
á slíkum fundi eiga rétt á mæt-
ingarviðurkenningu. (Þó aldrei
fleiri en einni í sama mánuði.)
Spurning:
Á svæðisráðsstefnu nýlega
heyrði ég þess getið að Kiwanis-
félagi hefðiflust á milli klúbba.
Ég hef alltafhaldið að ekki væri
hægt að ,flytja“ menn á milli
klúbba í Kwanishreyfingunni.
Hefur þetta breyst?
Svar:
Nei. Það er ekki um að ræða
neinn sjálfvirkan flutning félaga á
milli klúbba. Umsóknir fyrrver-
andi félaga í Kiwanisklúbbi eru
meðhöndlaðar á sama hátt og
umsóknir nýrra félaga. Það kann
að vera, að af misskilningi sé þetta
kallað „flutningur“ á milli klúbba,
vegna þess að það virðist vera
þannig.
Spurning:
Á stjórnarfundi í klúbbnum
mínum nýlega, hélt einn stjóm-
armanna því fram að ákvarð-
anir klúbbfélaga vægju þyngra
en stjórnarákvarðanir. Ég held
því aftur á mótifram að stjórnin
eigi að taka allar ákvarðanir og
óski aðeins eftir áliti klúbb-
félagafyrir kurteisissakir. Hvor
okkar hefur réttfyrir sér?
Svar:
Til þess að geta svarað þessari
spurningu tilhlýðilega þyrfti maður
að vita um hvaða málefni væri verið
Umsjón:
Laganefnd
Isl. umdæmisins
Hermann Þórðarson,
formaður
að fjalla. Almennt gildir það
samkvæmt klúbblögum að
félagar klúbbsins taki ákvörðun
í almennri kosningu um kjör
embættismanna og meðstjórn-
enda klúbbsins, kosningu full-
trúa í stað þeirra sem hverfa úr
embætti, lagabreytingar, og
sérstakar álögur á klúbbfélaga.
í VII. kafla, 4. grein klúbblaga
stendur: „Stjórnin tekur
ákvarðanir um stefnumál og
verkefni klúbbsins, samþykkir
félaga eða víkur þeim burt, sam-
þykkir fjárhagsáætlun og alla
reikninga, ráðgast við nefhdir og
hefur á hendi almenna stjórn
klúbbsins.“
í X. kafla, 1. grein klúbblaga
segir: „Fundir klúbbsins skulu
haldnir vikulega eða hálfs-
mánaðarlega. Stjórnin ákveður
fundarstað, fundardag og
fundartíma.“ Það geta samt
komið upp sérstök tilfelli þar
sem stjórnin æskir leiðbeininga
eða staðfestingar klúbbfélaga í
einstökum málum sem eru þá
sérstaklega lögð fýrir þá.
Að síðustu: Öll verkefni sem
ná lengra en yfir eitt starfsár
verða klúbbfélagar að sam-
þykkja til þess að tryggja það að
verkefnið geti haldið áfram frá
ári til árs, þar til þvi er lokið.
Þetta er nauðsynlegt vegna þess
að stjórn getur ekki bundið
hend-ur viðtakandi stjórna
varð-andi verkefni eða fram-
kvæmdir.
KIWANISFRETTIR
19