Víkurfréttir - 08.12.2005, Síða 6
Sérmerkt
Handklæði og flíshúfur
T bolir og flísteppi
Merlcjum allar gerðir af fatnaði
____________________________
Myndsaumur - Njarðvíkurbraut 54 - 565 0488 - www.myndsaumur.is
Frábær HP
jólatilboð
business partner
+;
HP PSC 1510 fjölnotatæki
HP Photosmart M22 stafræn myndavél
= allt er framkvæmanlegt
Tilboðspakki
aðeins kr. 19.900
SAMHÆFNIf
ItlilillHlHaiil
Hringbraut 96 • Sími 421 7755 • www.samhaefni.is • sala@samhaefni.is
Grunnskólafólk á Suðurnesjum fer á sjóinn:
Hér sjást nemendur úr 9. bekk Heiðarskóla ásamt kennara og skipstjóra Drafnar.
Skólaskipið Dröfn í heimsókn
Skólaskipið Dröfn er statt þessa dagana
hér á Suðurnesjum og fer með 9. bekkjar
grunnskólanemendur á sjóinn. t sjóferð-
inni fá nemendurnir fyrirlestur um notkun veið-
arfæra, trolli er dýft í sjóinn og gera krakkarnir
að þeim afla sem inn kemur.
Sérfræðingar eru um borð sem upplýsa nemendur
um það sem máli skiptir meðal annars er skoðað
inn í fiskinn við slægingu með líffræðingum. Skip-
stjórinn fer með nemendum um allt skipið og
útskýrir það sem fýrir augu ber og skiptir máli um
borð í fiskiskipi.
Skólaskipið Dröfn hefur verið í þessu verkefni s.l.
8 ár og er það fjármagnað með framlögum frá
Alþingi og Sjávarútvegsráðuneytinu en Fiskifélag
íslands sér um framkvæmdina. Á þessum árum
hafa þúsundir barna farið með skipinu.
Frá Suðurnesjum fara nú um 100 nemendur úr 9.
bekk grunnskólanna.
Hringtorgið loks væntanlegt
Hringtorg á gatnamótum Iðavalla og
Aðalgötu í Reykjanesbæ er loks í sjón-
máli, en bæjarbúar hafa lengi beðið
eftir umbótum við þessi hættulegu gatnamót.
Oft hefur legið nærri stórslysum á þessum gatna-
mótum þar sem útsýni er af skornum skammti,
en bæjaryfirvöld hafa sett framkvæmdina á
forgang á næsta ári. Viðar Már Aðalsteinsson,
framkvæmdastjóri umhverfis- og skipulagsráðs,
sagði í samtali við Víkurfféttir að framkvæmdir
myndu hefjast snemma á nýju ári, eða eftir því
sem veður leyfir.
Fróðlegt námskeið
íslandsbanka
Fjölmenni var á fróðlegu
námskeiði íslandsbanka
sem var haldið í íþrótta-
akademíunni í Reykjanesbæ
um helgina.
Þar var farið yfir flest það
sem snýr að fjármálum fjöl-
skyldunnar, svo sem sparnað,
húsnæðiskaup, gengisáhættu,
tryggingar, fjárfestingar og lífeyr-
issparnað. Markmiðið er að þátt-
takendur gangi út af námskeið-
inu með heildstæða yfirsýn yfir
fjármálin sín. Leiðbeinandi er
Þór Clausen, viðskiptafræðingur
og forstöðumaður Símenntar
Háskólans í Reykjavík.
Fullbókað var á námskeiðið, en
mikil aðsókn hefur verið á þessi
námskeið sem Islandsbanki
hefur haldið út um allt land að
undanförnu og verða sennileg-
ast fleiri eftir áramótin.
6
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!