Víkurfréttir - 08.12.2005, Blaðsíða 25
Fjölmenni á
jólaföndri AAyllu-
bakkaskóla
Margt var um manninn á jólafönd-
urdegi Myllubakkaskóla Fjöldi
barna og foreldra var saman
kominn og var setið í hverju sæti
þegar mest var og sveif andi jól-
anna yfir vötnum. 10. bekkingar
notuðu tækifærið og seldu merki-
spjöld sem þau höfðu gert sjálf,
til styrktar árlegri vorferð sinni.
mcíLboole
FALLEGT SKART!
Leitað er að starfsmanni til að taka að sér félagslega
heimaþjónustu í þjónustuíbúðum aldraðra í Crindavík.
Starfið felst einkum í venjubundnum heimilisverkum og
ræstingum. Um er að ræða u.þ.b. 50% stöðuhlutfall. Miðað
er við að störfgeti hafist hinn 1. febrúar n.k.
Jafnframt er óskað eftir samskonar starfsmanni í tímabundin
verkefni í heimahúsum á vegum félagsþjónustunnar. Umfang
stöðu er háð verkefnum hverju sinni.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og Starfsmannafélags Suðurnesja. Nánari
upplýsingar eru veittar í sima 420 1100 hjá félagsmálastjóra.
Umsóknarfrestur er til 23. desember n.k. og skal leggja
fram umsóknir á bœjarskrifstofu.
Félagsleg heimaþjónusta
FRÉTTASÍMINN
soMHmgmr
8982222
Reykjanesbær:
Heimir fagnar auknum
stuðningi við barnafólk
Heimir, félag ungra
sjálfstæðismanna í
Reykjanesbæ, fagnar
yfirlýsingu Árna Sigfússonar,
bæjarstjóra Reykjanesbæjar,
um hækkun styrkja til foreldra
með börn í daggæslu hjá dag-
mæðrum. í fjárhagsáætlun
Reykjanesbæjar fyrir næsta
ár eru gerðar tillögur um að
hækka styrkinn um 127% eða
í 25 þúsund krónur á mánuði
fyrir heilsdags vistun barns hjá
dagmóður.
Reykjanesbær er fjölskylduvænn
bær sem gerir vel við börn og
fjölskyldufólk. Bærinn er í mik-
illi sókn og fólksfjölgun er hröð
og mikil. Stór hluti af nýjum
íbúum er ungt fjölskyldufólk og
því leggur Heimir mikla áherslu
á að áfram verði vel hlúið að
málefnum yngstu íbúanna, segir
í tilkynningu frá Heimi.
VÍKURFRÉTTIR I 49. TÖLUBLAÐ I FIMMTUDAGURINN 8. DESEMBER 2005 I 25