Víkurfréttir


Víkurfréttir - 17.08.2006, Side 14

Víkurfréttir - 17.08.2006, Side 14
Lítill fugl leitar aðstoðar lög- reglu við að komast heim Af og til fær lög- rcglan sniáfugla í heimsókn, sem oftar en ekki hafa strokið að heiman en eru haldnir heimþrá en rata ekki heim. Laugardaginn 12. ágúst fannst lítill, ljós fugl með rauðan gogg utan við Heið- arbraut 7 í Keflavík. Þetta gæti verið Kanarífugl eða Sebrafínka. Þeir sem sakna fuglsins geta nálgast hann á lögreglustöðinni í Kefla- vík. Skjávarpar komnir í allar stofurGerða- skóla Skjávarpar hafa verið settir upp í allar kennslustofur Gerða- skóla í Garði. Þá hafa allir umsjónarkennarar fengið fartölvu sem notuð verður við kennslu. Þá hafa tölvur í tölvuveri skólans verið endurnýjaðar. Skólanefnd Garðs kom saman til fundar þann 10. ágúst sl. Þar var Oddný Harðardóttir kosin for- maður skólanefndar og Ás- björn Jónsson kosinn vara- formaður. Þá var erindisbréf fyrir skólanefnd lagt fram og yfirfarið. Erindisbréfið verður lagt fyrir bæjarstjórn með athugasemdum skóla- nefndar. Á fundinum kom fram að fjórir nýir starfsmenn hafa verið ráðnir til Gerðaskóla. Þeir eru: Særún Ástþórs- dóttir kennari, Vitor Hugo leiðbeinandi, Sigríður Þor- leifsdóttir leiðbeinandi og Dagbjört Þráinsdóttir stuðn- ingsfulltrúi. Síðustu glæður i sýnilegum loftvörnum íslands yfir Keflavíkurflugvelli sl. föstudags. Mynd: Varnarliðið erþotur Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli eru farnar frá íslandi og koma ekki aftur. Siðustu vél- arnar fóru sl. föstudagsmorgun. Þoturnar fóru frá íslandi til herstöðvar í Bandaríkjunum en vélarnar voru frá þjóðvarðliði Missouri. Vélunum fylgdi DC-10 eldsneytisflutningavél. Tvær björgunarþyrlur eru enn á landinu en þær fara í sept- ember. Það var mikil hátíðarstemmning í Vogum á laugardaginn þegar þar var haldinn árlegur Fjölskyldudagur. Gerðu íbúar og gestir sér glaðan dag þar sem margt var til skemmt- unar frá morgni til kvölds. Ellert Grétarsson, ljósmyndari Víkurfrétta, var í Vogum á laugar- daginn og tók nokkrar svipmyndir sem má sjá hér en einnig eru konrnar inn í ljósmyndasafnið á vef Víkurfrétta. VÍKURFRÉTTiR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 14 VÍKURFRÉTTIR i 33.TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANCUR

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.