Fréttablaðið - 09.09.2017, Blaðsíða 74
Á síðustu árum hafa steypu-járnspottar og -pönnur öðlast miklar vinsældir en
ég varð vör við að margir vissu
ekki alveg hvernig þeir ættu að
nota og meðhöndla steypujárnið.
Gerðu sér ekki grein fyrir mögu-
leikum þess og vantaði hugmyndir
og ráðleggingar. Þess vegna ákvað
ég að gera bók sem sýndi hvað
pottar og pönnur úr járni nýtast
víða og í ólíka matargerð,“ segir
Nanna og nefnir hægsteikingu við
vægan, rakan hita jafnt sem snögg-
steikingu við háan hita, steikingu
á grillpönnu og djúpsteikingu.
Sömuleiðis pottrétti, súpur, korn-
rétti, grænmetis- og baunarétti,
sósur, meðlæti, grauta, ábætisrétti,
pítsur og brauð.
Hún segir uppskriftirnar í
bókinni flestar einfaldar, sumar
hefðbundnar, aðrar nýstárlegar
útgáfur af hefðbundnum réttum
en sumar óvenjulegar. „Bókin
hefur að geyma yfir 100 uppskriftir
að alls konar mat og þar er að finna
margar af mínum uppáhaldsupp-
skriftum. Í inngangskafla er líka
heilmikill fróðleikur um steypu-
járn, bæði emalerað og óhúðað,
kosti þess og ókosti, matreiðslu
og bakstur í steypujárni, meðferð
þess og viðhald.“
Nanna deilir hér uppskrift sem
sver sig í ætt við rísottó.
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Í bókinni er að
finna margar af
mínum uppáhaldsupp-
skriftum.
Nanna Rögnvaldardóttir, ritstjóri hjá Forlaginu, og eldavélin hennar góða.
Að sögn Nönnu er rétturinn einstaklega auðveldur. Hráefnið er einfaldlega
sett í steypujárnspott og honum stungið í ofn.
Möguleikar steypujárnsins
Matreiðslubókahöfundurinn Nanna Rögnvaldardóttir hefur dálæti á pottum, pönnum
og öðrum eldunarílátum úr steypujárni. Pottur, panna og Nanna er nýjasta bók Nönnu.
Næstum því rísottó
Fyrir 4
Nei, þetta er ekki rísottó, en þó
af þeirri ættinni … Það er hægt að
elda margs konar hrísgrjónarétti
úr sömu eða svipuðum hráefnum
og rísottó og nota til þess ýmsar
aðferðir en þeir verða samt aldrei
rísottó, þótt margir þeirra séu
ljómandi góðir. Þetta er einn slíkur
og er alveg einstaklega auðveldur,
maður setur bara allt saman í
steypujárnspott og stingur honum
í ofninn.
Ég hef stundum sagt að til að
gera hefðbundið rísottó þurfi tvö
hvítvínsglös, annað út í rísottóið
og hitt til að dreypa á meðan verið
er að hræra, því það þarf jú að
hræra mjög oft í rísottói. Hér er
sett hvítvínsglas út í pottinn en
þar sem ekki þarf að hræra neitt
er bara hægt að tylla sér inn í stofu
eða út á svalir með hitt glasið á
meðan hrísgrjónin sjá um sig sjálf
í ofninum. Nú, og svo er auðvitað
hægt að sleppa
því að setja
hvítvín í
pottinn – nota aðeins meira vatn
í staðinn – og drekka það bara allt
saman.
Ég setti basilíku út í til að fríska
upp á bragð og útlit grjónanna en
það má sleppa því eða nota ýmis-
legt annað hráefni, bæði grænmeti,
kryddjurtir og annað.
200 g arborio-hrísgrjón (risotto-
grjón)
100 ml þurrt hvítvín
750 ml sjóðheitt vatn
1 msk. grænmetiskraftur
50 g smjör
Pipar
Salt
40 g nýrifinn parmesanostur, og
e.t.v. meira til að rífa yfir
e.t.v. 100 ml rjómi
Væn lófafylli af basilíku
Hitaðu ofninn í 175°C. Settu hrís-
grjón, hvítvín, vatn og grænmetis-
kraft í steypujárnspott, hrærðu vel,
settu þétt lok á pottinn og settu
hann í ofninn í um 45 mínútur. Þá
ættu grjónin að vera orðin hæfi-
lega meyr og hafa drukkið í sig
vökvann.
Taktu lokið af pottinum og
hrærðu smjörinu
saman við,
ásamt pipar
og salti
eftir smekk,
og síðan par-
mesanosti. Hrærðu líka
rjómanum saman við ef
óskað er eftir mýkri og
rjómakenndari grjónum,
og að lokum basilíkunni.
Berðu grjónin fram í pott-
inum eða settu þau í skál og
stráðu e.t.v. parm esanosti og
saxaðri basilíku yfir.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
12.990
HIGH RISE SKInny
Vörunúmer: 18882-0027
Danmörk kr 15.362*
Svíþjóð kr. 13.365*
*Skv. levi.com og gengiskrán. Isl.banka 6.09.17
8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 9 . S E P T E M B E R 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
0
9
-0
9
-2
0
1
7
0
4
:3
1
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
B
2
-E
E
2
8
1
D
B
2
-E
C
E
C
1
D
B
2
-E
B
B
0
1
D
B
2
-E
A
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
1
1
2
s
_
8
_
9
_
2
0
1
7
C
M
Y
K