Fréttablaðið - 02.08.2017, Blaðsíða 32
2 . á g ú s t 2 0 1 7 M I Ð V I K U D A g U R24 t í M A M ó t ∙ F R É t t A B L A Ð I Ð
tímamót
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Helgi Björgvinsson
Leynisbraut 3, Akranesi,
lést fimmtudaginn 27. júlí.
Útför hans fer fram frá Akraneskirkju
föstudaginn 11. ágúst kl. 13.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á
minningarsjóð Sjúkrahúss Akraness.
Ingibjörg Sigurðardóttir
Ása Helgadóttir Halldór Sigurðsson
Hannes Jón Helgason Ásgerður Káradóttir
Anna Helgadóttir Kristján Sigurðsson
Helga Björg Helgadóttir Páll Erlingsson
og afabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðlaug Karlsdóttir
kaupmaður,
Merkurgötu 3, Hafnarfirði,
lést á heimili sínu laugardaginn 29. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Hafnarfjarðar-
kirkju fimmtudaginn 10. ágúst kl. 13.00.
Þórður Sæmundsson Drífa Sigurbjarnardóttir
Guðrún Sæmundsdóttir
Sjöfn Sæmundsdóttir
Ástkær eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir, amma og langamma,
Erla Svanhildur Ingólfsdóttir
Lynghaga 10,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi þann 15. júlí. Útförin hefur
farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir fá Karitas, heimahjúkrun og starfsmenn
líknardeildarinnar.
Ólafur Þór Kristjánsson
Kristján Geir Ólafsson
Þórdís Ólafsdóttir
Katrín Ólafsdóttir Ástvaldur Jóhannesson
Erla Björk Guðjónsdóttir Kristmann Jónsson
Aníta Rut Guðjónsdóttir Halldór Guðni Traustason
Snædís Sara Guðjónsdóttir
Ólafur Þór Ástvaldsson
Hilmir Steinn Ástvaldsson
og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Valgerður Á. Blandon
lést á Hrafnistu í Reykjavík
fimmtudaginn 27. júlí.
Útför hennar fer fram frá Digranes-
kirkju, föstudaginn 4. ágúst, kl. 15.
Ingibjörg Unnur Guðnadóttir Ragnar Sigurðsson
Valgerður Selma Guðnadóttir Guðbjörn Björgólfsson
Þorbjörg G. Blandon Helgi Svavar Reimarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og sonur,
Guðni Magnússon
húsasmiður,
Seiðakvísl 4,
lést á hjúkrunarheimilinu Mörk
laugardaginn 29. júlí.
Alma Bergsveinsdóttir
Janus Freyr Guðnason Nanna Ýr Arnardóttir
Magnús Már Guðnason Þórunn Sigurðardóttir
Kári Guðnason Sigurrós B. Sigvaldadóttir
barnabörn
Margrét Magnúsdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Guðjón Róbert Ágústsson
ljósmyndari,
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund föstudaginn 28. júlí sl.
Útförin verður auglýst síðar.
Ingibjörg Guðjónsdóttir
Þórdís Linda Guðjónsdóttir Björn Gunnarsson
Einar Michael Guðjónsson Halldóra Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát
og útför okkar ástkæra eiginmanns,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
Jónasar Hallgrímssonar
Hulda Sigríður Ólafsdóttir
Hallgrímur Jónasson Guðríður Kristófersdóttir
Guðrún Jónasdóttir Eiríkur Páll Eiríksson
Helga Jónasdóttir
Elísabet Jónasdóttir
Ólafur Jónasson Jóna Sigrún Hjartardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Halldóra Sigurgeirsdóttir
Hrólfsskálamel 8, Seltjarnarnesi,
lést á líknardeild Landspítalans í
Kópavogi 29. júlí. Útförin fer fram frá
Seltjarnarneskirkju, þriðjudaginn
8. ágúst kl. 15.00. Sérstakar þakkir til
starfsfólks líknardeildar LSH í Kópavogi
fyrir alúð og umhyggju.
Reynir Erlingsson
Ingilaug Erlingsdóttir Jóhann Kjartansson
Rúnar Erlingsson
ömmubörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug við andlát og
útför ástkærs sonar okkar,
Guðna Baldurssonar
Baldur H. Aspar og Þóra Guðnadóttir
Elskuleg eiginkona mín,
móðir okkar, dóttir, systir, mágkona,
tengdadóttir, frænka og vinkona,
Guðrún Birna Kjartansdóttir
til heimilis að
Lindasmára 36 í Kópavogi,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
29. júlí sl. Útför hennar verður gerð frá Digraneskirkju
fimmtudaginn 10. ágúst nk. kl. 13.
Guðmundur Freyr Sveinsson
Kjartan Sveinn, Bjarki Freyr og Anna Katrín
Katrín Þórlindsdóttir Kjartan Örn Sigurbjörnsson
Þórlindur Kjartansson Ingunn Hafdís Hauksdóttir
Guðný Anna Theódórsdóttir Sveinn Jónasson
vinkonur og vinir.
Hjartkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
Tómas Þorsteinn Sigurðsson
fyrrverandi forstöðumaður
vitasviðs Siglingastofnunar,
andaðist laugardaginn 22. júlí. Útförin
fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík
fimmtudaginn 3. ágúst klukkan 13.
Sigrún Sigurbergsdóttir
Ásdís Tómasdóttir Garðar Þorbjörnsson
Tómas Sigursteinn, Bryndís Kolbrún, Þorbjörn, Sigrún
Silka Dís, Þorsteinn Grétar, Benedikt, Tómas og Hinrik
Ég var að að gefa út plötu núna í júní og er loksins að fara að halda útgáfutónleika. Þeir verða í kvöld
klukkan níu í Fríkirkjunni. Þetta eru
lög sem ég hef verið að semja á síð-
ustu svona sjö árum líklega, frá því að
ég byrjaði að semja og mestmegnis á
meðan ég bjó úti í London. Ég var sem
sagt að flytja heim eftir fimm ár þar,“
segir Ösp Eldjárn söngkona, sem heldur
nú loks upp á útgáfu plötu sinnar Tales
from a poplar tree. Þegar blaðamaður
nær á hana er hún á fullu að undirbúa
tónleikana sína ásamt Erni Eldjárn
bróður sínum, en hann mun spila með
henni á tónleikunum ásamt þeim Helgu
Ragnarsdóttur, Veleria Pozzo og Þórdísi
Gerði Jónsdóttur.
„Þetta er þjóðlagaskotið-eitthvað ...
við skulum bara kalla þetta draum-
kennt folk – það er „niche“ hugtak sem
ég var að búa til, það er flott. Og þetta
verður spilað í bland við ábreiður sem
ég og Örn höfum verið að taka í gegnum
tíðina. Það verður rosalega „mellow“
stemming,“ segir Ösp en eftir tónleik-
ana heldur hún í litla tónleikaferð um
verslunarmannahelgina þar sem hún
kemur víða við.
„Ítölsk vinkona mín sem ég bjó með
í London er að koma í tveggja vikna
heimsókn í smá frí. Þannig að ég ákvað
að henda í smá tónleikaferð, en hún er
fiðluleikari og söngkona sem spilar til
dæmis með mér á plötunni.
Eftir Fríkirkjuna förum við út á land
– fyrst í Havarí í Berufirði og erum þar
á fimmtudagskvöldið. Við verðum svo
í Mývatnssveit á laugardaginn með
tvenna tónleika – klukkan fimm í
kirkjunni, sem verður mitt prógramm,
og svo klukkan tíu á barnum sem verða
þá aðeins hressari tónleikar. Svo síðast
er það Ungó, gamla leikhúsið í Dalvík,
á sunnudeginum.“
Tónleikarnir fara fram í Fríkirkjunni
í Reykjavík klukkan tíu í kvöld og má
splæsa í miða á tix.is. Plötuna Tales
from a poplar tree má síðan kaupa í
öllum betri plötubúðum.
stefanthor@frettabladid.is
Draumkennd stemming á
tónleikum í Fríkirkjunni
Söngkonan Ösp Eldjárn er flutt heim til Íslands eftir fimm ára búsetu í London. Hún
tekur Íslandsdvölina með trompi en hún gaf út plötu í júní og fagnar útgáfunni með tón-
leikum í kvöld. Ösp heldur svo beint í lítið tónleikaferðalag vítt og breitt um landið.
Þetta eru lög sem ég hef
verið að semja á síðustu
svona sjö árum líklega, frá því
að ég byrjaði að semja og
mestmegnis á meðan ég bjó úti í
London.
Ösp Eldjárn
söngkona
Merkisatburðir
1980 Blóðbaðið í Bologna: Sprengja springur á járnbrautar-
stöðinni í Bologna á Ítalíu. 85 farast og yfir 200 særast.
1985 Delta Air Lines flug 191 hrapar við Dallas í Texas með
þeim afleiðingum að 137 látast.
1985 350 tonn af olíu leka í Limafjörð í Danmörku eftir að
vesturþýskt tankskip strandar.
1988 Flugslys verður í Reykjavík og farast þrír menn er
kanadísk flugvél skellur í jörðina á milli Hringbrautar og
flugbrautarendans.
1990 Írakar ráðast inn í Kúveit og leiddi það síðar til
Persaflóastríðsins.
2005 Apple Mighty Mouse er sett á markað.
0
2
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:3
0
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
6
B
-F
0
7
4
1
D
6
B
-E
F
3
8
1
D
6
B
-E
D
F
C
1
D
6
B
-E
C
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K