Fréttablaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 13
Ítalía er eins og listasafn. Nei, ég ætla að byrja aftur: Ítalía er listasafn. Fegurðin er ekki bundin við Feneyjar og Róm, heldur prýðir hún landið nánast allt frá norðri
til suðurs, sveit og borg og einnig
eyjarnar, þ. á m. Sardiníu og Sikiley.
Náttúrufegurð, fagrar byggingar og
listaverk frá ýmsum tímum mynda
órofa heild.
Mig rámar í frásögn af fundi hag-
fræðinga á Ítalíu fyrir 30-40 árum
þar sem áhyggjufullir heimamenn
lýstu lítilli trú á efnahagsframför
landsins fyrir erlendum gestum
eftir rífandi gang efnahagslífsins
frá stríðslokum fram yfir 1970. Þá
sagði bandaríski hagfræðingurinn
John Kenneth Galbraith: Herðið
upp hugann. Lítið í kringum ykkur.
Ítalar hafa fáheyrt fegurðarskyn
sem mun nýtast nútímanum, t.d.
í fatahönnun og ferðamennsku.
Galbraith reyndist sannspár.
Skin og skúrir
Saga Ítalíu vitnar um mikil afrek
á mörgum sviðum, allar götur frá
Rómaveldi fram á okkar daga. Róm
var stærsta borg heims í 500 ár, frá
100 f.kr. til 400 e.kr. þegar Istanbúl
eins og hún heitir nú óx Róm yfir
höfuð. Við tóku myrkar miðaldir.
Endurreisnin hófst á Ítalíu á 14. öld
og barst þaðan til annarra Evrópu-
landa, þ.m.t. upprisa vísindanna
gegn kreddum kirkjunnar. Bók-
menntir, listir og vísindi voru
öldum saman hryggjarstykkið í
ítalskri menningu. Stjórnmál sátu
á hakanum. Ítalía náði þó að sam-
einast undir einni stjórn 1861, tíu
árum á undan Þýzkalandi.
Í fyrri heimsstyrjöldinni 1914-
1918 börðust Ítalar með banda-
mönnum (Bretum, Frökkum og
Rússum), en þeir náðu litlum
árangri og máttu þola mikið mann-
fall. Þótt þeir hefðu skipað sér í
sveit með sigurvegurunum voru
Ítalar niðurlútir að loknu stríði
líkt og Þjóðverjar. Þar liggur hluti
skýringarinnar á uppgangi fasista á
Ítalíu eftir fyrra stríð og bandalagi
þeirra við þýzka nasista.
Eftir ósigur Þjóðverja og Ítala í
síðari heimsstyrjöldinni settu bæði
löndin sér nýjar stjórnarskrár, Ítalar
1948 og Þjóðverjar 1949. Endur-
reisn efnahagslífsins gekk vel og
lífskjör bötnuðu hratt í báðum
löndum fyrstu áratugina eftir stríð.
Þjóðartekjur á mann í löndunum
tveim fylgdust að í grófum dráttum
fram að aldamótunum 2000. Þýzka-
land bjó við stöðugt stjórnarfar en
Ítalía skipti um ríkisstjórn á hverju
ári eða því sem næst. Nú situr 65.
ríkisstjórn Ítalíu frá 1946. Ekki
varð séð að óstöðugleiki í ítölskum
stjórnmálum stæði viðgangi efna-
hagslífsins fyrir þrifum. Það kom á
óvart.
Þegar flokkakerfi springur
Þrátt fyrir tíð stjórnarskipti var
flokkur Kristilegra demókrata á
Ítalíu nær alltaf í ríkisstjórn unz
flokkakerfið sprakk af spillingu
1992-1994. Aðeins einn þingflokkur
starfar enn undir óbreyttu nafni.
Allir hinir flokkarnir voru ýmist
leystir upp eða skiptu um nafn. Um
skeið sætti meira en helmingur
ítalskra þingmanna opinberum
ákærum fyrir spillingu. Meira en
400 bæjarstjórnir voru leystar upp
vegna spillingar. Margir stjórnmála-
menn og viðskiptaforkólfar fengu
fangelsisdóma.
Það var í þessu ástandi að auð-
jöfurinn Silvio Berlusconi sem áður
hafði sungið dægurlög m.a. á súlu-
stöðum stofnaði nýjan flokk og bauð
sig fram til þings 1994, sumir segja
til að komast í aðstöðu til að vernda
sjálfan sig og fyrirtæki sín fyrir
ákæruvaldinu. Berlusconi varð for-
sætisráðherra og beitti sér sem slíkur
og í þinginu gegn ákæruvaldinu. Allt
fór á annan endann líkt og í Banda-
ríkjunum að undanförnu. Berlusc-
oni tókst að bola aðalsaksóknar-
anum, Antonio Di Petro, úr starfi
strax árið eftir, 1995, og hrökklaðist
sjálfur sama ár frá völdum sem
hann náði síðan aftur 2001 og sat
þá til 2006 og aftur 2008-2011. Lítill
árangur náðist við landstjórnina þar
eð landið logaði í hneykslismálum
kringum Berlusconi sem fékk að
endingu dóma fyrir að því er virðist
lítinn hluta brota sinna.
Landið líður enn fyrir mafíuna
sem yfirvöldum tókst að vísu að
kveða niður á Sikiley eftir að tveir
dómarar þar voru myrtir og eyjar-
skeggjar sögðu loksins hingað og
ekki lengra. Mafían heldur þó áfram
að heimta verndarfé af fyrirtækjum
á meginlandinu og kveikja í hjá
þeim sem neita að borga. Sumt tókst
betur, t.d. að halda Ítalíu innan ESB
með evrunni og öllu saman.
Tekjur og langlífi
Þjóðartekjur á mann voru svipaðar
á Ítalíu og í Þýzkalandi allar götur
frá 1970 fram yfir aldamótin 2000.
Þá tók Ítalía að dragast aftur úr
Þýzkalandi. Í fyrra, 2016, var kaup-
máttur þjóðartekna á mann orðinn
næstum fjórðungi minni á Ítalíu
en í Þýzkalandi. Kannski óstöðug-
leiki stjórnmálanna, spillingin og
getuleysi nýrra flokka til að gera
upp við spillta fortíð hafi dregið úr
vaxtargetu ítalsks efnahagslífs eftir
allt saman. Hvað sem því líður lifa
margir Ítalar býsna góðu lífi í ægi-
fögru umhverfi, einkum í norðan-
verðu landinu. Ítalar lifa nú að
jafnaði lengur en allar aðrar þjóðir
heimsins aðrar en Kínverjar í Hong
Kong og Japanar skv. tölum Alþjóða-
bankans.
Ítalía er ráðgáta
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Þjóðartekjur á mann voru
svipaðar á Ítalíu og í Þýzka-
landi allar götur frá 1970
fram yfir aldamótin 2000.
Opið frá kl. 9-18 og
á laugardögum frá kl. 12-16.
Kletthálsi 11 - 110 Reykjavík og Hyundai notaðir bílar - Kauptúni 1 - 210 Garðabæ
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is - www.bilaland.is
www.facebook.com/bilaland.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
v
er
ðb
re
yt
in
ga
r,
in
ns
lá
tt
ar
vi
llu
r o
g
m
yn
db
re
ng
l.
Bílaland býður nokkra bíla á einstökum kjörum! Komdu strax í dag og tryggðu þér góðan bíl á frábæru verði!
TILBOÐSBÍLAR
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
3
1
4
0
NÝ HEIMASÍÐA - BILALAND.IS
HYUNDAI Santa Fe III Comfort
Nýskr. 06/15, ekinn 72 þ.km, dísil,
sjálfskiptur.
Verð 4.790 þús. kr.
TILBOÐ:
3.990 þús. kr.
OPEL Astra Sports Tourer
Nýskr. 03/15, ekinn 83 þ.km, dísil,
sjálfskiptur.
Verð 2.590 þús. kr.
TILBOÐ:
2.090 þús. kr.
LAND ROVER Discovery 4 SE
Árgerð 2016, ekinn 66 þ.km, dísil,
sjálfskiptur.
Verð 9.990 þús. kr.
TILBOÐ:
9.390 þús. kr.
HONDA CRV
Nýskr. 01/16, ekinn 50 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð 4.420 þús. kr.
TILBOÐ:
3.890 þús. kr.
TOYOTA Avensis Wagon Live
Nýskr. 05/16, ekinn 53 þ.km,
bensín, sjálfskiptur.
Verð 2.970 þús. kr.
TILBOÐ:
2.490 þús. kr.
RENAULT Megane Berline
Nýskr. 01/14, ekinn 53 þ.km, dísil,
sjálfskiptur.
Verð 2.090 þús. kr.
TILBOÐ:
1.490 þús. kr.
SKODA Fabia
Nýskr. 05/13, ekinn 55 þ.km,
bensín, sjálfskiptur, 6 gírar.
Verð 1.690 þús. kr.
TILBOÐ:
1.390 þús. kr.
BMW X5 Xdrive30d F15
Nýskr. 12/15, ekinn 46 þ.km, dísil,
sjálfskiptur, 8 gírar.
Verð 9.380 þús. kr.
TILBOÐ:
8.490 þús. kr.
KIA Soul EX
Nýskr. 04/15, ekinn 41 þ.km, dísil,
sjálfskiptur.
Verð 2.790 þús. kr.
TILBOÐ:
2.490 þús. kr.
RENAULT Megane IV
Nýskr. 05/16, ekinn 35 þ.km,
bensín, 6 gírar.
Verð 2.590 þús. kr.
TILBOÐ:
2.190 þús. kr.
Rnr. 121153
Rnr. 370624
Rnr. 143854
Rnr. 390102
Rnr. 144105
Rnr. 320773
Rnr. 370631
Rnr. 370339Rnr. 370320
Rnr. 370634
52.209
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
27.532
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
122.344
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
50.910
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
32.727
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
19.739
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
18.440
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
110.655
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
32.727
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
28.830
kr.
á mán. m
.v. 20%
útborgu
n.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 13F i M M T u d a g u R 2 0 . j ú L Í 2 0 1 7
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
5
8
-B
E
6
8
1
D
5
8
-B
D
2
C
1
D
5
8
-B
B
F
0
1
D
5
8
-B
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K