Fréttablaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 20
Regnbogalitir tangóskór úr smiðju Helenar eru tilvaldir í hinsegin tangó. Glamúr og kvenlegur yndisþokki stafar af tangóskóm Helen la Vikinga og fást þeir í úrvali fyrir bæði kynin. Gamaldags kvikmyndastjörnusjarmi einkennir Monroe-hælaskóna. Tískan í tangó er munúðarfull og skótauið setur oft punktinn yfir i-ið. Helen er stórglæsileg, hér í tangókjól sem hún hannaði í samstarfi við arg- entínska kjólahönnuðinn Florence Darlan í París. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI Framhald af forsíðu ➛ Í fyrsta sinn í Argentínu þótti kunningja mínum ég vera hug-rökk og þorin. Og þar sem ég var íslensk datt honum í hug að kalla mig „Qué bra la Vikinga“, eða Hugrakka víkinginn. La Vikinga festist fljótt við mig enda mikið um að fólki séu gefin gælu- eða auðkennisnöfn í Argentínu,“ segir Helen Halldórsdóttir, sem fæddist að Stöð í Stöðvarfirði en ólst upp í Reykjavík frá þriggja ára aldri, eða allt þar til hún flutti til Grinda- víkur sextán ára. Þar giftist hún ung að árum og eignaðist tvær dætur. „Ég var orðin ekkja 25 ára og flutti með dæturnar til Sví- þjóðar þaðan sem ég útskrifaðist sem félagsmannfræðingur frá Háskólanum í Lundi. Þegar inn- blásturinn kemur yfir mig er ég líka ljóðskáld. Í skáldskapnum er að finna allt milli himins og jarðar, en vitaskuld mikið um ást, sorg og vináttu,“ segir Helen sem árið 2002 gaf út ljóðabókina Lífið er tangó; ljóð um ástina og lífið. Líf Helenar hefur einmitt snúist um tangó undanfarin ár. „Ég held við höfum valið hvort annað; tangóinn og ég. Kannski var hann eitthvað sem ég þurfti á þeim tíma. Tangó kennir manni sitthvað um lífið og til að geta tekið tangó að hjarta sínu þarf maður að tengjast dansfélaganum, tónlistinni, hinum á dansgólfinu og ekki síst sjálfum sér. Það þýðir að maður þarf að vera í núinu; hér og nú, og það er gott fyrir okkur öll. Að virkilega vera og bara vera.“ Braut blað í hinsegin tangó Fyrstu kynni Helenar við mun- úðar fulla dansmenningu tangós má rekja til mekka tangósins í Buenos Aires, höfuðborgar Arg- entínu, þar sem Helen hefur nú búið í þrettán ár. „Mig langaði bara allt í einu að flytja til Argentínu og þegar yngri dóttir mín hafði lokið stúdentsprófum lét ég verða af því. Skömmu síðar hafði ég opnað La Vikinga, fyrsta tangóstaðinn minn (s. milonga). Síðan opnaði ég Bien Pulenta, sem var fyrsti reyklausi og „gay-friendly“ tangóstaðurinn í Buenos Aires; sem var vinveittur hinsegin fólki en þó ekki eingöngu hinsegin tangóstaður. Þar á eftir opnaði ég tangóstaðinn Mano o Mano, síðan tangóskólana Escuela La Vikinga og þar á eftir skómerk- ið La Vikinga Shoes,“ segir Helen sem nú stendur á tímamótum og hefur lokað bæði tangóstöðum sínum og tangóskólum. „Ég lokaði síðasta tangóstaðnum þegar ég byrjaði að ferðast fyrir alvöru um heiminn til að kenna og sýna tangó en hélt lengi vel áfram að reka tangóskólana. Það er óneitanlega skondið að hafa kennt mörgum Argentínubúanum tangó, og meira að segja í reglu- legum einkatímum, en þeim þykir ekkert athugavert við að læra tangó hjá konu frá ísaköldu landi sem kennir þennan eldheita og tilfinningaþrungna dans“, segir Helen og skellir upp úr. Óplanað ævintýralíf Ástríðufull rómantík svífur yfir vötnum í tangódansi sem fylgir þokkafull tíska. „Í hefðbundnum tangó klæðist karlmaður jakkafötum, flottri skyrtu og skóm, og konan kven- legum kjól eða pilsi og háhæla skóm. Tangó á sér þó fjölbreyttari hliðar í dag og á yngri og hinsegin tangóstöðum klæðir fólk sig óhefð- bundnar og frjálslegar,“ segir Helen sem hannar sjálf sína tangóskó sem nú eru orðnir þekktir í tangóheim- inum undir nafninu La Vikinga Boutique – Design & Quality Shoes. Hefur hún rekið skóbúð í Málmey í hálft annað ár og selur skóna einn- ig í vefversluninni lavikingabouti- que.com. „Allt sem gerist í lífi mínu er nokkuð óplanað og það gerðist einmitt með skóhönnunina. Hún kom til vegna þess að argentínskir skór eru oftast alltof mjóir fyrir fætur okkar í Norður-Evrópu og Norður-Ameríku. Því byrjaði ég á því að breyta skóm og fá nýja skó gerða fyrir mig og mína nemendur á Skáni og eitt leiddi af öðru. Ég hanna líka suma kjólanna minna í dansinn en góð argentínsk vin- kona mín og kjólahönnuður í París, Florence Darlan, hannar flesta kjólana mína, sem og dóttir mín, Svanhildur Aþena.“ Helen er nú stödd á Íslandi en fram undan eru flutningar til Sví- þjóðar. „Litla fjölskyldan mín kallar frá Skáni. Ég á þar dætur og þrjá dætra- syni, einn þrettán ára og fimm mánaða tvíburastráka. Annars er ég laus og liðug og ánægð með lífið og tilveruna. Tangó mun áfram og Argentínubúum þykir ekkert athugavert við að læra tangó hjá konu frá ísa- köldu landi sem kennir þennan eldheita og tilfinningaþrungna dans. Helen la Vikinga Halldórsdóttir alltaf vera til staðar í lífi mínu og ég mun áfram ferðast um heiminn til að kenna og sýna tangó, sem og að selja skóna mína sem ég framleiði áfram í Buenos Aires. Ég hef því ekki sagt skilið við Argentínu sem verður alltaf mitt annað heimili.“ Í kvöld klukkan 20 kennir Helen hinsegin tangó í Regnboga- salnum á opnu húsi Samtakanna '78 að Suðurgötu 3. Á eftir verður tangóball þar sem Helen þeytir tangóskífum fyrir gesti. Allir eru hjartanlega velkomnir og ekki er nauðsynlegt að mæta með dans- félaga. Um helgina stendur Helen fyrir helgarnámskeiði í Regn- bogasalnum og á mánudagskvöld verður hún með kennslu og ball hjá Tangóævintýrafélaginu á Sólon í Bankastræti. Helen byrjaði að hanna eigin skólínu þegar hún uppgötvaði að argentínskir tangóskór eru alltof mjóir fyrir fætur Norður-Evrópu og Norður-Ameríkubúa. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@365.is Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook Útsala - Útsala Buxur á útsölu 40-50% afsláttur Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Nýjar vörur streyma inn 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 0 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 8 -E 5 E 8 1 D 5 8 -E 4 A C 1 D 5 8 -E 3 7 0 1 D 5 8 -E 2 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.