Fréttablaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.07.2017, Blaðsíða 24
Síðar buxur og jakki við eru uppáhaldi hjá Gisele. Gisele hefur prýtt meira en 1.200 for - síður tímarita um allan heim. Hún er í eftir læti hjá Vogue og hefur verið 14 sinnum á forsíðu bresku útgáfunnar. Gisele var í þessum fagra síðkjól við opnun sýningar í Metropolitan lista- safninu í New York. Gisele Caroline er fædd í borg-inni Horizontina í Brasilíu þann 20. júlí 1980. Hún vakti fyrst athygli innan tískuheimsins seint á níunda áratugnum þegar brasilískar konur fóru að láta að sér kveða á þessu sviði. Gisele er ein þeirra sem áttu strax mikilli velgengni að fagna og skaust hratt upp á stjörnuhimininn. Á þeim tíma voru hraustlegar fyrirsætur með heilbrigt útlit ekki sérlega eftirsóttar en Gisele breytti því og var talað um að hún hefði komið kynþokkanum aftur í tísku.   Þegar Gisele Bündchen ákvað að gefa sýningarpöllunum frí í apríl í fyrra og snúa sér að öðru hafði hún verið ein hæst launaða fyrirsæta í heimi um árabil. Hún er enn á meðal ríkustu kvenna í afþreyingar- iðnaðinum og tímaritið Forbes hefur valið hana sem eina af áhrifa- mestu konum í heimi. Þótt Gisele þyki ein fegursta kona heims hefur hún sagt að hún sé ekki fræg fyrir útlitið heldur góðan persónuleika. Gallabuxur í uppáhaldi Fatastíll Gisele er fremur ein- faldur og hún sést ósjaldan í niður- þröngum, síðum gallabuxum og flottum toppi eða peysu við og stór taska setur svo punktinn yfir i-ið. Þegar hún kemur fram opinberlega er hún oft í smart buxnadragt eða síðum kjólum, með látlausa förðun. Gisele er hreystin uppmáluð og svo virðist sem öll föt fari henni vel. 1.200 sinnum á forsíðunni Gisele hefur prýtt meira en 1.200 forsíður tímarita um allan heim. Hún er í miklu eftirlæti hjá Vogue og hefur verið á forsíðu tímaritsins alls 137 sinnum en þá eru með- taldar útgáfur þess um heim allan. Hún hefur fjórtán sinnum verið á forsíðu bresku útgáfunnar og ellefu sinnum á þeirri amerísku en fátt þykir toppa það að prýða forsíðu Vogue. Gisele var lengi vel ein af aðalsýningarstúlkum Victoria’s Secret en hún hefur einnig unnið fyrir hátískumerki á borð við Marc Jacobs, Mikael Kors, Dior, Valent- ino, Versace og Dolce & Gabbana. Kvikmyndaferill Gisele hófst þegar hún lék í Taxi en hún var til- nefnd til nokkurra verðlauna fyrir hlutverk sitt í þeirri mynd. Hún lék einnig í The Devil Wears Prada og hefur auk þess verið með eigin þætti sem snúast um umhverfismál og heita Gisele & the Green Team. Árið 2009 giftist Gisele Tom Brady og þau hjónin eiga tvö börn. Þau hafa styrkt góð málefni af mikilli rausn, svo sem Rauða kross- inn og Lækna án landamæra. 137 sinnum á forsíðu Vogue Gisele Caroline Bündchen á 37 ára afmæli í dag. Hún er ein þekktasta fyrirsæta heims og hefur prýtt meira en 1.200 tímaritaforsíður. Gisele hefur getið sér gott orð fyrir kvikmyndaleik og mannúðarmál eru henni hugleikin. Fa rv i.i s // 0 71 7 KRINGLUNNI | 588 2300 LITLIR DISKAR 2.995 SPARISTELL PLAIN GOLD STÓRIR DISKAR 3.995 HAUSTVÖRUR ÁSKRIFTIN FYLGIR ÞÉR Með sjónvarpsáskrift hjá 365 getur þú horft á uppáhaldssjónvarpsefnið þitt, hvar og hvenær sem er – því áskriftin fylgir þér 365ASKRIFT.is 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 2 0 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 5 8 -B E 6 8 1 D 5 8 -B D 2 C 1 D 5 8 -B B F 0 1 D 5 8 -B A B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.