Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2017, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 20.07.2017, Qupperneq 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Fyrir um þremur árum fór flugfreyjan Sigríður Lena Sigurbjarnadóttir að finna fyrir löngun til að eignast börn. Sigríður hefur ekki verið í alvar- legu sambandi í nokkur ár og hún segir það vissulega flækja málin. „Ég hef ekki verið í alvarlegu sam- bandi í nokkur ár og þess vegna fór ég að hugsa um aðrar leiðir til þess að stofna fjölskyldu. Ég fór að afla mér upplýsinga um það hvort ein- hverjar konur á Íslandi hefðu farið í gegnum tæknifrjóvgun einar síns liðs, en ég vissi að þetta var gert í Danmörku. Ég komst svo að því að búið var að leyfa tæknifrjóvgun hérna heima og að einhleypar og samkynhneigðar konur voru að nota þessa aðferð til þess að eignast fjölskyldu,“ útskýrir Sigríður sem íhugar nú að eignast barn ein með gjafasæði. Aðspurð hvort það sé eitthvað sem hræði hana við tilhugsunina um að eignast barn ein segir Sig- ríður: „Nei, í sjálfu sér er ekkert rosalega mikið sem hræðir mig við að gera þetta án maka. En ég á mjög gott bakland þannig að ég myndi í sjálfu sér ekki vera að gera þetta alein. Ég á frábæra fjölskyldu og magnaða vini sem eru allir af vilja gerðir til að hjálpa. Samt sem áður er ég 100% viss um að þetta eigi ekki eftir að vera auðvelt ferli ef til þess kæmi.“ Sigríður, sem er 32 ára, kveðst hafa fundið fyrir miklum stuðningi frá sínum nánustu eftir að hún byrj- aði að ræða þetta. „Stuðningurinn er ómetanlegur. Fólkið mitt er fullt skilnings og skilur vel að ég vilji eignast barn, en hvort það verður með þessum hætti kemur í ljós,“ útskýrir Sigríður sem hefur fengið góð viðbrögð við hugmynd sinni úr öllum áttum. „En auðvitað er alltaf einhver sem er ekki sammála þessu og það er auðvitað bara allt í góðu,“ segir Sigríður sem ætlar að taka sér ár í að hugsa málið nánar. „Ég ætla að sjá hvort eitthvað breytist í ásta- málunum en ef ekki þá er þetta næsta skref sem ég mun sennilega taka.“ Finnur fyrir pressu Spurð hvort hún verði vör við að það sé mikil pressa á barnlausar konur á hennar aldri að eignast börn svarar Sigríður játandi. „Já, ég finn fyrir þessari pressu og veit að barnlausar vinkonur mínar sem eru í samböndum finna mikið fyrir þessu, þá er alltaf verið að spyrja. Samt sem áður hef ég líka tekið eftir því hvað barneignum hefur seinkað og finnst það bara af hinu góða.“ Eins og áður sagði lagðist Sigríður í smá rannsóknarvinnu þegar hug- myndin kviknaði hjá henni og hún var forvitin um hvort fleiri konur væru í sömu sporum og hún. „Ég hef lesið sögur íslenskra kvenna sem hafa gengið í gegnum þetta ferli og þegar ég fór að tala um þetta við vin- konur mínar þá vissu þær undan- tekningarlaust um einhverja sem væri í þessum hugleiðingum eða búin að fara í þetta ferli. Ég er nokk- uð viss um að það eru fleiri konur að hugleiða þetta en við ímyndum okkur,“ segir Sigríður sem bloggar á fagurkerar.is. Nýverið birti hún færslu með pælingum sínum um barneignir á blogginu. „Þá sendu nokkrar konur mér sínar sögur. Mér þykir rosalega vænt um það og met mikils. Reyndar hef ég líka fengið mikið af skilaboðum og vinabeiðn- um á Facebook frá karlmönnum sem ég hef einhvern tímann talað við á Tinder. Ég hlæ bara því að það er eiginlega of fyndið.“ gudnyhronn@365.is Íhugar að eignast barn með gjafasæði Sigríður Lena er 32 ára og barnlaus. Hún er ekki í sambandi en finn- ur fyrir löngun til að eignast börn. Hún íhugar að stofna fjölskyldu ein með því að þiggja gjafasæði og veit um konur í sömu pælingum. Sigríði Lenu grunar að margar konur séu í sömu hugleiðingum um barneignir og hún. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR Ég ætla að sjá hvort eitthvað breytist Í ástamálunum en ef ekki þá er þetta næsta skref sem Ég mun sennilega taka. 365.ISSÍMI 1817 SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2017 KL. 19:15 VÍKINGSVÖLLUR LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2017 KL. 14:00 KAPLAKRIKAVÖLLUR SUNNUDAGUR 23. JÚLÍ 2017 KL. 17:00 AKUREYRARVÖLLUR *miðað við 12 mánaða bindingu Tryggðu þér áskrift á aðeins 399 kr. á dag 11.990 kr. á mánuð i * VINNUR ÞÚ MIÐA Á LEIKINN? ÁSKRIFENDUR SPORTPAKKANS EIGA NÚ MÖGULEIKA Á ÞVÍ AÐ FARA FRÍTT Á VÖLLINN! VERÐUR ÞÚ Í HÓPI ÞEIRRA HEPPNU Í NÆSTU UMFERÐ? 2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M M T U D A G U R34 l í F I ð ∙ F R É T T A B l A ð I ð 2 0 -0 7 -2 0 1 7 0 4 :3 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 5 8 -C 8 4 8 1 D 5 8 -C 7 0 C 1 D 5 8 -C 5 D 0 1 D 5 8 -C 4 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 9 _ 7 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.