Fréttablaðið - 20.07.2017, Side 24
Síðar buxur og
jakki við eru
uppáhaldi hjá
Gisele.
Gisele hefur prýtt
meira en 1.200 for -
síður tímarita um allan
heim. Hún er í eftir læti
hjá Vogue og hefur verið
14 sinnum á forsíðu
bresku útgáfunnar.
Gisele var í þessum fagra síðkjól við opnun sýningar í Metropolitan lista-
safninu í New York.
Gisele Caroline er fædd í borg-inni Horizontina í Brasilíu þann 20. júlí 1980. Hún vakti
fyrst athygli innan tískuheimsins
seint á níunda áratugnum þegar
brasilískar konur fóru að láta að
sér kveða á þessu sviði. Gisele er
ein þeirra sem áttu strax mikilli
velgengni að fagna og skaust hratt
upp á stjörnuhimininn. Á þeim
tíma voru hraustlegar fyrirsætur
með heilbrigt útlit ekki sérlega
eftirsóttar en Gisele breytti því og
var talað um að hún hefði komið
kynþokkanum aftur í tísku.
Þegar Gisele Bündchen ákvað að
gefa sýningarpöllunum frí í apríl í
fyrra og snúa sér að öðru hafði hún
verið ein hæst launaða fyrirsæta
í heimi um árabil. Hún er enn á
meðal ríkustu kvenna í afþreyingar-
iðnaðinum og tímaritið Forbes
hefur valið hana sem eina af áhrifa-
mestu konum í heimi. Þótt Gisele
þyki ein fegursta kona heims hefur
hún sagt að hún sé ekki fræg fyrir
útlitið heldur góðan persónuleika.
Gallabuxur í uppáhaldi
Fatastíll Gisele er fremur ein-
faldur og hún sést ósjaldan í niður-
þröngum, síðum gallabuxum og
flottum toppi eða peysu við og stór
taska setur svo punktinn yfir i-ið.
Þegar hún kemur fram opinberlega
er hún oft í smart buxnadragt eða
síðum kjólum, með látlausa förðun.
Gisele er hreystin uppmáluð og svo
virðist sem öll föt fari henni vel.
1.200 sinnum á forsíðunni
Gisele hefur prýtt meira en 1.200
forsíður tímarita um allan heim.
Hún er í miklu eftirlæti hjá Vogue
og hefur verið á forsíðu tímaritsins
alls 137 sinnum en þá eru með-
taldar útgáfur þess um heim allan.
Hún hefur fjórtán sinnum verið á
forsíðu bresku útgáfunnar og ellefu
sinnum á þeirri amerísku en fátt
þykir toppa það að prýða forsíðu
Vogue. Gisele var lengi vel ein af
aðalsýningarstúlkum Victoria’s
Secret en hún hefur einnig unnið
fyrir hátískumerki á borð við Marc
Jacobs, Mikael Kors, Dior, Valent-
ino, Versace og Dolce & Gabbana.
Kvikmyndaferill Gisele hófst
þegar hún lék í Taxi en hún var til-
nefnd til nokkurra verðlauna fyrir
hlutverk sitt í þeirri mynd. Hún
lék einnig í The Devil Wears Prada
og hefur auk þess verið með eigin
þætti sem snúast um umhverfismál
og heita Gisele & the Green Team.
Árið 2009 giftist Gisele Tom
Brady og þau hjónin eiga tvö börn.
Þau hafa styrkt góð málefni af
mikilli rausn, svo sem Rauða kross-
inn og Lækna án landamæra.
137 sinnum á
forsíðu Vogue
Gisele Caroline Bündchen á 37 ára afmæli í dag. Hún er
ein þekktasta fyrirsæta heims og hefur prýtt meira en
1.200 tímaritaforsíður. Gisele hefur getið sér gott orð fyrir
kvikmyndaleik og mannúðarmál eru henni hugleikin.
Fa
rv
i.i
s
//
0
71
7
KRINGLUNNI | 588 2300
LITLIR
DISKAR
2.995
SPARISTELL
PLAIN GOLD
STÓRIR
DISKAR
3.995
HAUSTVÖRUR
ÁSKRIFTIN
FYLGIR ÞÉR
Með sjónvarpsáskrift hjá 365 getur þú horft á
uppáhaldssjónvarpsefnið þitt, hvar og hvenær
sem er – því áskriftin fylgir þér 365ASKRIFT.is
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-B
E
6
8
1
D
5
8
-B
D
2
C
1
D
5
8
-B
B
F
0
1
D
5
8
-B
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K