Fréttablaðið - 20.07.2017, Side 20
Regnbogalitir tangóskór úr smiðju
Helenar eru tilvaldir í hinsegin tangó.
Glamúr og kvenlegur yndisþokki
stafar af tangóskóm Helen la Vikinga
og fást þeir í úrvali fyrir bæði kynin.
Gamaldags kvikmyndastjörnusjarmi
einkennir Monroe-hælaskóna.
Tískan í tangó er munúðarfull og
skótauið setur oft punktinn yfir i-ið.
Helen er stórglæsileg, hér í tangókjól sem hún hannaði í samstarfi við arg-
entínska kjólahönnuðinn Florence Darlan í París. MYNDIR/ÚR EINKASAFNI
Framhald af forsíðu ➛
Í fyrsta sinn í Argentínu þótti kunningja mínum ég vera hug-rökk og þorin. Og þar sem ég
var íslensk datt honum í hug að
kalla mig „Qué bra la Vikinga“, eða
Hugrakka víkinginn. La Vikinga
festist fljótt við mig enda mikið
um að fólki séu gefin gælu- eða
auðkennisnöfn í Argentínu,“ segir
Helen Halldórsdóttir, sem fæddist
að Stöð í Stöðvarfirði en ólst upp í
Reykjavík frá þriggja ára aldri, eða
allt þar til hún flutti til Grinda-
víkur sextán ára. Þar giftist hún
ung að árum og eignaðist tvær
dætur.
„Ég var orðin ekkja 25 ára
og flutti með dæturnar til Sví-
þjóðar þaðan sem ég útskrifaðist
sem félagsmannfræðingur frá
Háskólanum í Lundi. Þegar inn-
blásturinn kemur yfir mig er ég
líka ljóðskáld. Í skáldskapnum er
að finna allt milli himins og jarðar,
en vitaskuld mikið um ást, sorg
og vináttu,“ segir Helen sem árið
2002 gaf út ljóðabókina Lífið er
tangó; ljóð um ástina og lífið.
Líf Helenar hefur einmitt snúist
um tangó undanfarin ár.
„Ég held við höfum valið hvort
annað; tangóinn og ég. Kannski
var hann eitthvað sem ég þurfti á
þeim tíma. Tangó kennir manni
sitthvað um lífið og til að geta
tekið tangó að hjarta sínu þarf
maður að tengjast dansfélaganum,
tónlistinni, hinum á dansgólfinu
og ekki síst sjálfum sér. Það þýðir
að maður þarf að vera í núinu; hér
og nú, og það er gott fyrir okkur
öll. Að virkilega vera og bara vera.“
Braut blað í hinsegin tangó
Fyrstu kynni Helenar við mun-
úðar fulla dansmenningu tangós
má rekja til mekka tangósins í
Buenos Aires, höfuðborgar Arg-
entínu, þar sem Helen hefur nú
búið í þrettán ár.
„Mig langaði bara allt í einu
að flytja til Argentínu og þegar
yngri dóttir mín hafði lokið
stúdentsprófum lét ég verða af því.
Skömmu síðar hafði ég opnað La
Vikinga, fyrsta tangóstaðinn minn
(s. milonga). Síðan opnaði ég Bien
Pulenta, sem var fyrsti reyklausi
og „gay-friendly“ tangóstaðurinn
í Buenos Aires; sem var vinveittur
hinsegin fólki en þó ekki eingöngu
hinsegin tangóstaður. Þar á eftir
opnaði ég tangóstaðinn Mano o
Mano, síðan tangóskólana Escuela
La Vikinga og þar á eftir skómerk-
ið La Vikinga Shoes,“ segir Helen
sem nú stendur á tímamótum og
hefur lokað bæði tangóstöðum
sínum og tangóskólum.
„Ég lokaði síðasta tangóstaðnum
þegar ég byrjaði að ferðast fyrir
alvöru um heiminn til að kenna
og sýna tangó en hélt lengi vel
áfram að reka tangóskólana. Það
er óneitanlega skondið að hafa
kennt mörgum Argentínubúanum
tangó, og meira að segja í reglu-
legum einkatímum, en þeim þykir
ekkert athugavert við að læra
tangó hjá konu frá ísaköldu landi
sem kennir þennan eldheita og
tilfinningaþrungna dans“, segir
Helen og skellir upp úr.
Óplanað ævintýralíf
Ástríðufull rómantík svífur yfir
vötnum í tangódansi sem fylgir
þokkafull tíska.
„Í hefðbundnum tangó klæðist
karlmaður jakkafötum, flottri
skyrtu og skóm, og konan kven-
legum kjól eða pilsi og háhæla
skóm. Tangó á sér þó fjölbreyttari
hliðar í dag og á yngri og hinsegin
tangóstöðum klæðir fólk sig óhefð-
bundnar og frjálslegar,“ segir Helen
sem hannar sjálf sína tangóskó sem
nú eru orðnir þekktir í tangóheim-
inum undir nafninu La Vikinga
Boutique – Design & Quality Shoes.
Hefur hún rekið skóbúð í Málmey í
hálft annað ár og selur skóna einn-
ig í vefversluninni lavikingabouti-
que.com.
„Allt sem gerist í lífi mínu er
nokkuð óplanað og það gerðist
einmitt með skóhönnunina. Hún
kom til vegna þess að argentínskir
skór eru oftast alltof mjóir fyrir
fætur okkar í Norður-Evrópu og
Norður-Ameríku. Því byrjaði ég á
því að breyta skóm og fá nýja skó
gerða fyrir mig og mína nemendur
á Skáni og eitt leiddi af öðru. Ég
hanna líka suma kjólanna minna
í dansinn en góð argentínsk vin-
kona mín og kjólahönnuður í París,
Florence Darlan, hannar flesta
kjólana mína, sem og dóttir mín,
Svanhildur Aþena.“
Helen er nú stödd á Íslandi en
fram undan eru flutningar til Sví-
þjóðar.
„Litla fjölskyldan mín kallar frá
Skáni. Ég á þar dætur og þrjá dætra-
syni, einn þrettán ára og fimm
mánaða tvíburastráka. Annars er
ég laus og liðug og ánægð með lífið
og tilveruna. Tangó mun áfram og
Argentínubúum
þykir ekkert
athugavert við að læra
tangó hjá konu frá ísa-
köldu landi sem kennir
þennan eldheita og
tilfinningaþrungna dans.
Helen la Vikinga Halldórsdóttir
alltaf vera til staðar í lífi mínu og ég
mun áfram ferðast um heiminn til
að kenna og sýna tangó, sem og að
selja skóna mína sem ég framleiði
áfram í Buenos Aires. Ég hef því
ekki sagt skilið við Argentínu sem
verður alltaf mitt annað heimili.“
Í kvöld klukkan 20 kennir
Helen hinsegin tangó í Regnboga-
salnum á opnu húsi Samtakanna
'78 að Suðurgötu 3. Á eftir verður
tangóball þar sem Helen þeytir
tangóskífum fyrir gesti. Allir eru
hjartanlega velkomnir og ekki er
nauðsynlegt að mæta með dans-
félaga. Um helgina stendur Helen
fyrir helgarnámskeiði í Regn-
bogasalnum og á mánudagskvöld
verður hún með kennslu og ball
hjá Tangóævintýrafélaginu á Sólon
í Bankastræti.
Helen byrjaði að hanna eigin skólínu þegar hún uppgötvaði að argentínskir
tangóskór eru alltof mjóir fyrir fætur Norður-Evrópu og Norður-Ameríkubúa.
Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir
thordisg@365.is
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Útsala - Útsala
Buxur á útsölu
40-50% afsláttur
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Stærðir 38-58
Nýjar vörur streyma inn
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 0 . j ú l í 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
2
0
-0
7
-2
0
1
7
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
5
8
-E
5
E
8
1
D
5
8
-E
4
A
C
1
D
5
8
-E
3
7
0
1
D
5
8
-E
2
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
1
9
_
7
_
2
0
1
7
C
M
Y
K