Fréttablaðið - 16.10.2017, Qupperneq 12
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili
á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105
reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Halldór
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Urðarhvarf 14 203 Kópavogur s: 510 6500 www.hv.is
Eyjólfur Guðmundsson
Heimilislæknir/General Practitioner
Eyjolfur@hv.is
HEILSUGÆSLA
Urðarhvarf 14 203 Kópavogur s: 510 6500 www.hv.is
Eyjólfur Guðmundsson
Heimilislæknir/General Practitioner
Eyjolfur@hv.is
HEILSUGÆSLA
Vantar þig
heimilislækni?
Ný heilsugæslustöð Urðarhvarfi 14, Kópavogi
Skráning stendur yfir, opin öllum,
óháð búsetu. verið velkomin !
Sími 510 6500, www.hv.is
Þvert á mót er
það í raun
aðför að
lýðræðinu að
bera á borð
rangar
upplýsingar
og að auki
skerðing á
mannrétt-
indum þeirra
sem eru
hafðir fyrir
rangri sök. Sautján aðildarfélög BHM hafa verið með lausa samninga við ríkið frá 1. sept. sl. eða frá því að úrskurður gerðardóms, sem settur var í kjölfar
lagasetningar á lögmætar verkfallsaðgerðir, féll úr gildi.
Um er að ræða 6.000 starfsmenn á 200 ríkisstofnunum.
Hvert félaganna sautján fer með samningsréttinn fyrir
hönd félagsmanna sinna.
Það eru um margt óvenjulegar aðstæður uppi í
stjórnarráðinu. Ríkisstjórnin er fallin tæpu ári eftir
kosningar og boðað hefur verið að nýju til alþingiskosn-
inga. Í þessu róti er mikilvægt að missa ekki sjónar á því
mikilvæga verkefni að ná kjarasamningum við BHM-
félögin. Af okkar hálfu er skýrt að samningur tekur við
af samningi, þ.e.a.s. nýir kjarasamningar þurfa að gilda
frá 1. september 2017. Fyrir afturvirkni eru fjölmörg
fordæmi og varla þarf að eyða orku samningafólks í að
þrasa um sjálfsagða hluti. Það er nóg annað um að ræða
við samningaborðið.
Samninganefndir BHM hafa ítrekað bent ríkinu á
þann vanda sem skapast þegar launasetning stétta er
ólík á milli stofnana, auk þess sem fyrir liggur hvaða
ríkisstofnanir eru krónískar láglaunastofnanir og
hverjar ekki. Stofnanasamningakerfið stendur víða á
brauðfótum. Nýtt lífeyriskerfi opinberra starfsmanna
kallar á leiðréttingu launa á milli almenna og opinbera
vinnumarkaðarins og enn er krafan um að menntun
skuli metin til launa jafn brýn og áður.
Ríkið er stærsti vinnuveitandi landsins en ber einnig
ásamt sveitarfélögunum ábyrgð á almannaþjónustu við
alla landsmenn á sviði heilbrigðis- og menntamála. Það
heldur úti stjórnsýslu og réttarvörslukerfi og ber ábyrgð
á uppbyggingu innviða hvort heldur er samgöngum eða
sjúkrahúsbyggingum. Það er afar mikilvægt að stjórn-
völd hafi vilja og getu til að aðgreina þetta tvíþætta hlut-
verk hins opinbera sem framkvæmdarvald annars vegar
og vinnuveitandi hins vegar í kjaraviðræðum vetrarins.
Lausir kjarasamningar
BHM – skýr krafa um
afturvirkni
Þórunn Svein-
bjarnardóttir
formaður BHM
Fyrir aftur-
virkni eru
fjölmörg
fordæmi og
varla þarf að
eyða orku
samninga-
fólks í að
þrasa um
sjálfsagða
hluti.
Manneklan
Á þessum vettvangi í Frétta-
blaðinu á föstudaginn var því
fagnað að Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri hefði lagt fram
tillögur til þess að takast á við
manneklu á leikskólum, frí-
stundaheimilum og félagsmið-
stöðvum Reykjavíkurborgar.
Var þetta meðal annars gert
með því að greiða leikskóla-
stjórnendum eingreiðslu vegna
álags í starfi. Hins vegar var
spurt hvort almennir starfs-
menn á leikskólunum ættu
ekki líka að fá umbun fyrir
álag, sem hlýtur að lenda á
þeim.
Viðbótin
Eftir að blaðið kom út á föstu-
dag tilkynnti borgin svo að
almennir starfsmenn á þessum
vinnustöðum fengju ein-
greiðslu að upphæð 20 þúsund
krónur. Það er rétt og skylt að
halda þessum upplýsingum
til haga og fagna allri viðleitni
Reykjavikurborgar til þess að
umbuna því fólki sem tekur að
sér þessi vandasömu verk sem
felast í því að gæta og kenna
nemendum á yngsta skólastig-
inu. Það mun síðan koma í ljós
í fyllingu tímans hvort þessi að
viðbættum öðrum aðgerðum
Reykjavíkurborgar reynast
nægar til þess að takast á við
mannekluna, sem virðist vera
árlegt vandamál og snertir allt
samfélagið.
jonhakon@frettabladid.is
Það er vandlifað í veröld stjórnmálaumræðu á Íslandi í dag. Í aðra röndina er réttilega brýnt fyrir öllum að halda sig nú við að fara í boltann en ekki manninn en það getur reynst ansi snúið þegar stakir leikmenn spila eftir eigin leikreglum. Gefa lítið fyrir
mikilvægi þess að rétt sé farið með upplýsingar og stað-
reyndir, kasta fram staðleysu um mikilvæg málefni og
nýta svo vitleysuna til þess að róa á mið afkomuótta og
óöryggis þeirra sem standa höllum fæti í samfélaginu.
Viðkomandi virðist vera á eigin vegum, óháð því að
hann er í framboði fyrir stóran stjórnmálaflokk, en það
er nú einu sinni þannig að flokkar eru auðvitað ekkert
annað en fólkið sem í þeim starfar.
Leikmaðurinn sem hér um ræðir er auðvitað Ásmund-
ur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og annar
maður á lista í Suðurkjördæmi í komandi kosningum, en
boltinn, eða með öðrum orðum málefnið, er staða hælis-
leitenda á Íslandi. Ásmundur skrifaði grein sem birtist
í Morgunblaðinu síðastliðinn laugardag þar sem hann
viðrar skoðanir sínar á málefnum hælisleitenda og þeim
kostnaði sem þeim fylgir. Í greininni setur Ásmundur
fram fjöldann allan af staðreyndavillum, bæði tölulegar
upplýsingar og annað, sem hefur þegar margsinnis verið
hrakið á opinberum vettvangi.
Markmiðið virðist einkum vera að koma umræðu
um málefnið inn á svið upphrópana, fordæminga og
sleggjudóma og þaðan sleppa fáir óskaddaðir, síst af öllu
hinn almenni kjósandi sem þráir ekkert frekar en upp-
lýsta umræðu um mikilvæg málefni. Umræðu þar sem
staðreyndir mála eru settar fram á ábyrgan hátt og síðan
leitað lausna með mannúð og réttlæti að leiðarljósi.
En slíkar leikreglur virðir Ásmundur að vettugi og
dembir vitleysunni yfir lesendur Morgunblaðsins í krafti
þess að hann hafi hugrekki til þess að taka umræðuna
eins og hann kallar það sjálfur. Það er merkilegt í ljósi
þess að þöggun miðaldra og eldri karlmanna í valda-
stöðum hefur almennt séð ekki þótt vandamál í íslensku
samfélagi, eins og birtingin á grein Ásmundar staðfestir.
Staðreyndavillurnar nýtir Ásmundur svo til þess að
höfða til þeirra sem hafa lengi mátt bíða eftir bættum
kjörum með þeirri fádæma smekkleysu að kenna
kostnaðinum af hælisleitendum um stöðu þeirra, fremur
en t.d. lækkun auðlindagjalds eða aðra skerta tekjustofna
ríkisins á síðustu árum.
Það eru hvorki mannréttindi né lýðræðislegur réttur
Ásmundar að fara með staðlausa stafi og ósannindi til
þess að ala á ótta og fordómum sjálfum sér og flokki
sínum til fylgis. Þvert á móti er það í raun aðför að lýð-
ræðinu að bera á borð rangar upplýsingar og að auki
skerðing á mannréttindum þeirra sem eru hafðir fyrir
rangri sök. Þessu hlýtur Sjálfstæðisflokkurinn að taka á
og það er erfitt að sjá hvernig flokkurinn á að geta sætt
sig við að einn af þeirra liðsmönnum spili með þessum
hætti. Vilji Sjálfstæðisflokkurinn taka þátt í vandaðri
umræðu um viðkvæm málefni, halda áfram að kalla eftir
því að farið sé í boltann en ekki manninn, þá getur hann
ekki boðið landsmönnum upp á mann sem virðir ekki
leikreglurnar.
Leikreglurnar
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U r12 s k o ð U N ∙ F r É t t A b L A ð i ð
SKOÐUN
1
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
F
9
-5
1
9
0
1
D
F
9
-5
0
5
4
1
D
F
9
-4
F
1
8
1
D
F
9
-4
D
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K