Fréttablaðið - 16.10.2017, Síða 34
Leikmaður helgarinnar
Crystal Palace var hvorki búið að skora mark eða fá stig þegar liðið tók á
móti Englandsmeisturum Chelsea á Selhurst Park um helgina. Það hefur
verið erfið byrjun hjá Roy Hodgson síðan hann settist í stjórastólinn en
nú er liðið búið að endurheimta Wilfried Zaha úr meiðslum og það er
óhætt að segja að framherjinn öflugi
hafi haldið leikmönnum Chelsea við
efnið á laugardaginn. Zaha átti frá-
bæran leik og þó að hann hafi ekki
endað 731 mínútna bið liðsins eftir
marki þá skoraði hann sigurmarkið
rétt fyrir hálfleik. Fyrsta markið var
hins vegar sjálfsmark Chelsea. Zaha
var frá í sex leiki vegna hnémeiðsla
en sóknarleikur liðsins er þúsund
sinnum betri með mann eins og hann
sem er stór og fljótur og getur búið til
mikið úr litlu. Hann sýndi það
um helgina af hverju
Palace er búið að
sakna hans svona
mikið.
Stóru málin
eftir helgina í enska boltanum
Stærstu úrslitin
7-2 stórsigur Manc-
hester City á Stoke
City eru ekki úrslit
sem við sjáum oft
í ensku úrvalsdeild-
inni en Stoke eins og
önnur lið eiga bara fá svör á móti
sóknarþunga lærisveina Guardi-
ola þessa dagana. Stoke minnkaði
reyndar muninn í 3-2 en City
svaraði þá með fjórum mörkum
í viðbót.
Hvað kom á óvart?
Crystal Palace var
hvorki búið að skora
mark eða fá stig í
sjö fyrstu leikj-
unum þegar kom að
heimsókn frá ríkjandi
meisturum. Crystal Palace liðið
náði loksins á brjóta ísinn og ná
inn marki og vann á endanum
sanngjarnan sigur á mótio læri-
sveinum Antonio Conte sem hafa
nú tapað tveimur leikjum í röð.
Mestu vonbrigðin
Margir biðu með eftirvæntingu
eftir leik Liverpool og Manchester
United en leikur liðanna á Anfield
um helgina olli miklum vonbrigð-
um United-liðið pakkaði í vörn og
Liverpool komst lítiið áleiðis og
úr varð hundleiðinlegur leikur.
Enska úrvalsdeildin
Staðan
Úrslit 8. umferðar 2017-18
Liverpool - Man. United 0-0
Man. City - Stoke 7-2
1-0 Gabriel Jesus (17.), 2-0 Raheem Sterling
(19.), 3-0 David Silva (27.), 3-1 Mame Biram
Diouf (44.), 3-2 sjálfsmark (47.), 4-2 Gabriel
Jesus (55.), 5-2 Fernandinho (60.), 6-2 Leroy
Sané (62.), 7-2 Bernardo Silva (79.).
Tottenham - Bournem. 1-0
1-0 Christian Eriksen (47.)
Burnley - West Ham 1-1
0-1 Michail Antonio (19.), 1-1 Chris Wood
(85.)
Crystal Palace - Chelsea 2-1
1-0 Sjálfsmark (11.), 1-1 Tiemoue Bakayoko
(18.), 2-1 Wilfried Zaha (45.)
Swansea - Huddersfield 2-0
1-0 Tammy Abraham (42.), 2-0 Tammy
Abraham (46.)
Watford - Arsenal 2-1
0-1 Per Mertesacker (39.), 1-1 Troy Deeney
(71.), 2-1 Tom Cleverley (90.).
Brighton - Everton 1-1
1-0 Anthony Knockaert (82.), 1-1 Wayne
Ropney, víti (90.).
Southampt. - Newcastle 2-2
0-1 Isaac Hayden (20.), 1-1 Manolo Gabbiad-
ini (49.), 1-2 Ayoze Pérez (51.), 2-2 Manolo
Gabbiadini (75.)
FÉLAG L U J T MÖRK S
Man. City 8 7 1 0 29-4 22
Man. United 8 6 2 0 21-2 20
Tottenham 8 5 2 1 15-5 17
Watford 8 4 3 1 13-13 15
Chelsea 8 4 1 3 13-8 13
Arsenal 8 4 1 3 12-10 13
Burnley 8 3 4 1 8-6 13
Liverpool 8 3 4 1 13-12 13
Newcastle 8 3 2 3 9-8 11
Southampt. 8 2 3 3 7-9 9
West Brom 7 2 3 2 6-8 9
Huddersf. 8 2 3 3 5-9 9
Swansea 8 2 2 4 5-8 8
Brighton 8 2 2 4 6-10 8
West Ham 8 2 2 4 8-14 8
Everton 8 2 2 4 5-13 8
Stoke 8 2 2 4 9-18 8
Leicester 7 1 2 4 9-12 5
Bournem. 8 1 1 6 4-12 4
Cry. Palace 8 1 0 7 2-18 3
Gabriel Jesus og félagar í Manchester City skora og skora þessa dagana og í flestum markanna sundurspila þeir mótherja sína. Hér fagnar Brasilíumaðurinn ungi öðru marki sína á móti Stoke og félagar hans fagna fyrir aftan. FRÉTTABLAðið/GETTy
Okkar menn
Íslendingar í efstu tveimur
deildunum í Englandi
Everton
Gylfi Þór Sigurðsson
Lék allan leikinn þegar
Everton bjargaði stigi á
útivelli á móti nýliðum Brighton
með marki úr víti á 90. mínútu.
Cardiff City
Aron Einar Gunnarsson
Kom inn á sem varamaður
og fór af velli meiddur á
ökkla þegar Cardiff tapaði á móti
Birmingham.
Reading
Jón Daði Böðvarsson
Lék allan leikinn þegar
Reading vann 1-0 útisigur
á Leeds með marki í lokin.
Aston Villa
Birkir Bjarnason
Sat allan tímann á
bekknum í 2-0 tapi Villa í
nágrannaslag á móti Úlfunum.
Bristol City
Hörður B. Magnússon
Sat allan tímann á vara-
mannabekknum í marka-
lausu jafntefli Bristol City.
Burnley
Jóhann Berg Guðm.
Kom inn á sem varamaður
og lagði upp jöfnunar-
mark Burnley með frá-
bærri fyrirgjöf frá hægri.
Fótbolti Manchester-liðin komu
kannski ekkert á óvart um helgina
þrátt fyrir að staðan breyttist á
toppnum. Manchester City tók enn
eitt liðið í kennslustund á Ethiad-
leikvanginum á meðan Jose Mourin-
ho mætti að venju eins og varkárasti
þjálfari deildarinnar á útivöll á móti
einu af stóru liðum deildarinnar.
Stórleikur helgarinnar var marka-
laust jafntefli Liverpool og Man-
chester United á Anfield og olli hann
vonbrigðum. Ekki kom þó frammi-
staða United-liðsins mikið á óvart
enda hefur liðið aðeins skorað eitt
mark samanlagt í síðustu sex úti-
leikjum sínum á móti sex bestu
liðum deildarinnar.
Sóknarleikurinn var hins vegar á
oddinum hjá nágrönnum þeirra í
Manchester City sem sóttu á öllu lið-
inu í bókstaflegri merkingu í 7-2 sigri
á Stoke. Gott dæmi um það er að 10
af 11 útileikmönnum liðsins bjuggu
til sextán færi liðsins í leiknum.
City-liðið komst tveimur stigum
fram úr nágrönnum sínum um
helgina en United-liðið hélt aftur
á móti marki sínu hreinu í sjöunda
sinn í fyrstu átta umferðunum. Við
þurfum hins vegar að bíða fram
í jólamánuðinn eftir því að besta
sóknin og besta vörnin mætist en þá
er líklegt að forskot City verði meira.
Besta frammistaðan
„Ég er mjög ánægður. Við urðum að
ná upp einbeitingu eftir landsleikja-
fríið. Við töpuðum ekki boltanum
að óþörfu, spiluðum hratt og ein-
falt. Þess vegna er ég svona ánægður.
Magnaðir Manchester City menn í sjöunda himni
Sjö mörk um helgina og 29 mörk í fyrstu átta umferðunum. Aldrei áður hefur enska úrvalsdeildinni séð svona markaveislu í upphafi tímabils eins og hjá lærisveinum
Peps Guardiola í Manchester City. Gullsendingar Kevins De Bruyne sundursprengdu Stoke-vörnina hvað eftir annað. „Hafa aldrei spilað betur,“ sagði Pep eftir leik.
Þetta er besta frammistaða liðsins
síðan ég kom hingað,“ sagði Pep
Guardiola eftir leikinn.
Hvaða lið skelfur annars ekki
á beinunum þessa dagana þegar
það mætir á Ethiad-leikvanginn í
Manchester. Síðustu þrír leikirnir
segja vissulega sína sögu: 5-0 sigur á
Liverpool, 5-0 sigur á Crystal Palace
og nú 7-2 sigur á Stoke City. Manc-
hester City liðið er að gera sig líklegt
til að stinga af í ensku úrvalsdeild-
inni enda virðist ekkert lið ráða við
sóknarþunga strákana hans Guardi-
ola þessa dagana.
„Þeir voru sneggri, sterkari og
miklu fljótari að bregðast við. Við
áttum á endanum engin svör. Það
var nánast ómögulegt að verjast
sumum þessara marka vegna gæða
sendinganna,“ sagði Mark Hughes,
knattspyrnustjóri Stoke. Það má
heldur ekki gleyma því að liðið
var án síns markahæsta leikmanns
Sergios Aguero.
Manchester City setti ekki bara
1 6 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M Á N U D A G U rS p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
1
6
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
F
9
-6
F
3
0
1
D
F
9
-6
D
F
4
1
D
F
9
-6
C
B
8
1
D
F
9
-6
B
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K