Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 3
Skil á upplýsingum
vegna
skattframtals
Skila skal eftirtöldum upplýsingum vegna ársins 2016
á rafrænu formi á þjónustusíðunni skattur.is
Skilafrestur er til 20. janúar
Launa- og verktaka upplýsingar o.fl.
Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi
launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og
söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki,
happdrættis- og talnavinninga (skattskylda sem
óskatt skylda), greiðslur til verktaka fyrir þjónustu
(efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu-
eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.).
Bifreiðahlunnindamiðar
Skilaskyldir eru allir þeir sem í rekstri sínum eða
annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða
öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota.
Hlutafjármiðar
Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög,
samlagshlutafélög og sparisjóðir.
Stofnsjóðsmiðar
Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög
og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög.
Viðskipti með hlutabréf/afleiður
og önnur verðbréf
Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki
og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu,
umboðsviðskipti og aðra umsýslu með
hlutabréf/afleiður og öll önnur verðbréf.
Innstæður
Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir
og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til
ávöxtunar, eða hafa milligöngu um ávöxtun
eða aðra ráðstöfun fjármuna.
Hlutabréfakaup
skv. kaupréttarsamningi
Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa
kaupréttarsamninga við starfsmenn sína
samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við
um söluréttar samninga.
Takmörkuð skattskylda
- greiðsluyfirlit
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers
konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem
bera takmarkaða skattskyldu hér á landi.
Lánaupp lýsingar
Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur
lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir
(bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög,
fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til
einstakl inga og lögaðila.
Greiðslur fyrir leigu eða afnot
Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers
konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé,
fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum
réttindum.
Fjármagnstekjur
Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila
upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur og
tilgreina sundurliðun á móttakendur og þá
staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið
hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða
innheimtu aðila, t.d. lögmannsstofur.
Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum
(listi yfir þátttakendur)
Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög
sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að
þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga
á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt
rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga
nr. 90/2003.
2017
Nánari upplýsingar á rsk.is
Þjónustuver 9:30-15:30
442 1000
rsk.is/hafa-samband