Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2017, Blaðsíða 18
Vikublað 17.–19. janúar 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
6. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Fyrirgefðu!
Ekki er tilefni til að athuga hvort
Bjarni Benediktsson hafi brotið
gegn siðareglum ráðherra með
því að birta ekki skýrslu um eignir
Íslendinga í aflandsfélögum fyrr
en hann gerði. Þetta er niðurstaða
Tryggva Gunnarssonar, umboðs-
manns Alþingis. Röksemdin sem
umboðsmaður færir fyrir niður-
stöðunni er sú að Bjarni hafi í
raun og veru viðurkennt nú þegar
að það hafi verið mistök að birta
ekki skýrsluna fyrr en gert var.
Velta má því fyrir sér hvort með
þessu sé Tryggvi að setja fordæmi
fyrir því að stjórnmálamenn fari
í auknum mæli að biðjast af-
sökunar á því þegar þeir klúðra
hlutunum. Í það minnsta er ágætt
að vera laus við
athugun umboðs-
manns með þeim
einfalda hætti að
segja bara „sorrí“.
Felix Bergsson
hlýtur nú að vera
að íhuga endur-
komu með þáttinn Fyrirgefðu, í
sjónvarpi, nú er lag.
Ef hún hefði verið í Sopranos þá hefðu
hinir gæjarnir litið út eins og statistar
Einar Kárason um frammistöðu Steinunnar Ólínu í Föngum.
Það velur sér enginn
að vera sjúklingur
Ragnheiður Guðmundsdóttir – DV
Þjálfarateymið þarf að taka
liðið og slá hnefanum í borðið
Guðjón Guðmundsson, Gaupi, um gengi Íslands á HM – X977
Ö
rar tækniframfarir hafa leitt
til þess að við þurfum ekki
lengur einungis að hitta fólk
augliti til auglitis til að eiga
við það samskipti, við getum allt eins
nýtt til þess samfélagsmiðla. Ekki
ættum við að bölva tækninni sem
virðist hafa auðveldað líf okkar svo
mjög, en þarna er samt hætta sem
við verðum að gera okkur grein fyrir.
Það er hægt að ánetjast svo mörgu og
einnig samfélagsmiðlum. Það getur
varla verið eðlilegt að eyða mörgum
klukkustundum á dag á
Facebook og halda því
áfram í sama mæli dag
eftir dag, viku eftir viku,
mánuð eftir mánuð
og ár eftir ár. Samt er
það einmitt þetta sem
margir gera og sjá fátt
athugavert við það, þótt
einhverjir heyrist and-
varpa og viðurkenna að
þarna séu þeir að eyða
of miklum tíma. Gríðar-
mikill tími á samfélags-
miðlum hlýtur að bjóða
upp á að eitthvað láti
undan, sérstaklega ef
viðkomandi er barn eða
unglingur.
Síðustu ár höfum við
fengið æ fleiri fréttir af
rannsóknum sem sýna
að íslensk ungmenni
verja ískyggilega mikl-
um tíma á samfélagsmiðlum með
þeim afleiðingum að kvíði þeirra fer
vaxandi, og þá sérstaklega stúlkna.
Öll speglum við okkur í umhverfinu
(samt í mismiklum mæli) og það er
þáttur í mannlegu eðli að vilja fá hrós.
Facebook-færslur hrópa á athygli og
biðja um hrós og ef viðbrögðin eru
lítil sem engin og fá „like“ berast þá
er hætt við vonbrigðum, jafnvel svo
miklum að sjálfsmynd viðkomandi
láti á sjá. Það er ekki hollt að eiga of
mikið undir hrósi og athygli annarra
og getur ekki annað en aukið á kvíða
og skapað öryggisleysi.
Inga Dóra Sigfúsdóttir, prófess-
or við Háskólann í Reykjavík og Col-
umbia-háskólann í New York, er í
forsvari fyrir rannsóknarmiðstöðina
Rannsóknir og greining, sem í langan
tíma hefur rannsakað líðan barna og
unglinga. Í nýlegu viðtali sagði Inga
Dóra að of lítill svefn, samfélagsmiðl-
ar, kvíði og líkamsímynd séu allt þætt-
ir sem tengist. Það segir sig líka sjálft
að ungmenni sem vakir fram á nótt
til að vera á samfélagsmiðlum og fær
fyrir vikið ekki sinn níu tíma svefn
er ekki upp á sitt allra besta daginn
eftir. Samkvæmt mælingum Rann-
sókna og greiningar eru 40 prósent
þeirra stúlkna sem sofa minna en sex
klukkustundir á sólarhring taugaó-
styrkar. Ekki kemur það beinlínis á
óvart en það er sláandi að margar
unglingsstúlkur skuli ekki fá fullan
nætursvefn.
Margoft hefur verið bent á og ít-
rekað að foreldrar eigi að fylgjast með
netnotkun barna sinna og fræða þau
um ýmsa vafasama þætti í netheim-
um. Það er vissulega rétt að þetta
ættu þeir að gera. Þær spurningar
vakna hins vegar hversu vel allir for-
eldrar eru í stakk búnir til að sinna
þessu hlutverki sínu þegar þeir eru
sjálfir tímunum saman á netinu að
safna „likum“. n
Kvíðin æska á Facebook
„Það er ekki hollt að
eiga of mikið undir
hrósi og athygli annarra og
getur ekki annað en aukið
á kvíða og skapað öryggis-
leysi.
Leiðari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Myndin Stakkaskipti Miðborgin er óðum að taka stakkaskiptum enda rísa byggingar á ógnarhraða á reitum við Lækjargötu og Kalkofnsveg og ekki síður þar sem ný hótel
rísa hvert á fætur öðru við Hverfisgötu. mynd SiGTRyGGuR ARi